Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21 Betra start fyrir þig og þína TUDOR TUDOR er hannaður til þess að þola það álag sem kaldar nætur skapa. Forðastu óvæntar uppákomur. Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta TUDOR Veldu öruggt start me ð TUDOR H vaða bílsmiðir framleiða áreiðanlegustu bílana sem um íslenska vegi fara og hverjir þá óá- reiðanlegustu? Já, stórt er spurt en það er að mörgu að hyggja þegar fjárfest er í nýjum bíl. Þar kemur til álita sparneytni, stíll, tæknibún- aður og hver tilfinningin er undir stýri. Áreiðanleiki er þó að líkindum sá þáttur sem neytendur telja einna mikilvægastan. Ætla mætti að lítið væri um óáreiðanlega bíla nú til dags. Miðað við árlega rannsókn í Bretlandi, svonefnda „Driver Po- wer“ könnun, er það þó svo. Í könnuninni sem breska bílarit- ið Auto Express stóð fyrir voru um 50.000 bíleigendur beðnir að gefa bíl sínum einkunn út frá ýmsum forsendum, þar á meðal áreið- anleika. Kom í ljós að sumir fram- leiðendur smíða áreiðanlegri bíla en aðrir. Japanir áberandi á toppnum Á lista yfir áreiðanlegustu fram- leiðendurna er að finna mörg nöfn sem menn eiga að venjast í topp- sætum rannsókna af þessu tagi. Japanskir bílsmiðir eru áberandi því í hópi tíu bestu eru sex þaðan, Lexus, Toyota, Honda, Mazda, Su- zuki og Subaru. Veruleg kemur þó á óvart að í þriðja sæti er að finna Dacia. Það þykir sýna, að ódýr framleiðsla þurfi ekki að vera óáreiðanleg. Einfaldleiki og traustir íhlutir frá Renault koma Dacia til góða. Mest kemur þó á óvart að í efsta sæti sem traustasta bílamerkið í ár situr Tesla. Fyrirtækið hefur haft mikil áhrif í bílgreininni undanfarin misseri þótt módelafjöldi sem það smíðar sé lítill. Kaupendur Tesla- bíla eru greinilega hæstánægðir með traustleika þeirra. Úrtakið 50.000 bíleigendur Til viðbótar þeim nöfnum sem þegar hafa verið nefnd fylla tvö til viðbótar hóp 10 áreiðanlegustu bíl- smiðanna, Skoda, sem er í áttunda sæti, og Kia í því tíunda. Í öðru sæti varð Lexus, Toyota í fjórða og Honda í fimmta. En hvað segir könnunin um þá bílaframleiðendur sem gætu gert betur? Niðurstöðurnar eru að þeir bílsmiðir sem lentu í 10 neðstu sætunum í könnuninni framleiði síst áreiðanlegu bílana. Kemur sá listi á óvart því þar eru bara fyr- irtæki sem smíðað hafa bíla um langan aldur og það með góðum ár- angri. En þá má ekki gleyma að þetta eru niðurstöður eigenda um 50.000 bíla sem standa á bak við útkomuna með einkunnagjöf fyrir bíla sína. Þeir sem geta gert betur Samkvæmt þessu er Mini fram- leiðandi óáreiðanlegustu bílanna í ár, í öðru sæti er Jeep og Land Ro- ver í því þriðja. Volkswagen varð í 29. sæti í könnuninni og þar með fjórði ótraustasti bílsmiðurinn. Dótturfyrirtækið Audi er í tíunda sæti fyrir óáreiðanleika. Nissan er í fimmta sæti á tossalistanum. Alfa Romeo í sjötta, Ford í sjöunda, Hyundai í áttunda og Fiat í því ní- unda. Skýtur útkoma Nissan nokk- uð skökku við samanborið við aðra japanska bílsmiði sem röðuðu sér í hóp 10 áreiðanlegustu. agas@mbl.is Hverjir eru áreiðanlegustu bílarnir á götunum? Dacia þriðji áreiðanlegasti bílsmiðurinn Tesla er áreiðanlegasti bílsmiðurinn samkvæmt könnun Auto Express. Dacia Sandero Stepway hefur hlotið góðar viðtökur og þykir hann og stallbræður hans hinir áreiðanlegustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.