Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ Dóttir rússnesks auðmanns sem hagað hefur sér ótil- hlýðilega í umferðinni og kallað yfir sig á fimmta hundrað hraða- og stöðusekta hefur verið dæmd í fang- elsi. Réttur var settur yfir Mara Bagdasaryan vegna þessa og hlaut hún 10 daga fangelsisvist fyrir fjögur brotanna sem fólust í því að hún borgaði ekki sektir sem lögreglumenn höfðu skrifað út á hendur henni. Bagdasaryan var handtekin á Leninsky-breiðgöt- unni í Moskvu í byrjun nóvember, en þar hafði hún lagt bíl sínum uppi á gangstétt. Auk fangelsisrefsingar var hún dæmd til að sinna samfélagsþjónustu í 410 stundir. Hún gæti átt eftir að bíta enn frekar úr nálinni vegna brota sinna því rúss- neskir fjölmiðlar segja að enn eigi eftir að refsa henni frekar vegna rúmlega 50 ógreiddra hraða- og stöðu- sekta. Hefur henni verið stefnt fyrir dóm vegna þessa og verður fyrirtaka í því máli síðar í nóvember. Mara Bagdasaryan er aðeins 23 ára og ekur um á 13 milljóna króna tveggja dyra Mercedes-Benz S-Class. Faðir hennar er milljónamæringur sem auðgast hefur á rekstri sláturhúsa og kjötiðnaðarstöðva. Hún hefur haft til siðs að birta myndskeið af hraðakstursupp- átækjum sínum í umferðinni á samfélagsmiðlum á net- inu. Hefur hún meðal annars sýnt reglum um hámarks- hraða á götum Moskvuborgar tillitsleysi. Meðal myndskeiða var eitt þar sem hún ók á 160 km hraða á götu með 50 km hámarkshraða. agas@mbl.is „Hraðadrottningin send í dýflissuna Stopp Mara Bagdasaryan var ekki upplitsdjörf í búrinu í dómssal í Moskvu. Hraðadrottningin send í dýflissuna Mara Bagdas- aryan við eðalvagn sinn sem hún tryllir óvarlega á í Moskvuborg. É g var á ferðalagi eftir endilangri Jórdaníu þeg- ar ég kynntist fyrst þeim sið að blikka háu ljósunum til að vara aðra öku- menn við hraðaeftirliti. Þar var lögreglan mjög dugleg við að sitja fyrir glönnunum, en ökumenn hjálpuðust að og blikk- uðu aðvífandi umferð ef ekið hafði verið fram hjá lögreglubíl í vegarkantinum. Þegar blikkin fóru að sjást mátti reikna með að ekki væri meira en fimm mínútur í næsta radarmæli. Ég hef séð þetta víðar, og nú síðast í Svartfjallalandi í sumar að blikkið bjargaði mér frá hraðasekt. Væri gaman að sjá Íslendinga tileinka sér þennan sið, enda bæði til þess fallið að spara fólki dýrar sektir, en hefur líka þau áhrif að ökumenn hægja ferðina fyrr og lengur og eru ekki að snarbremsa þegar þeir sjá óvænt glitta í lögreglubílinn. Skilaboð með neyðarljósunum Annað sem ökumenn erlendis gera, en ég hef ekki séð á Ís- landi, er að láta neyðarljósin blikka tvisvar eða þrisvar þegar hætta er framundan á veginum sem bílarnir fyrir aftan geta ekki séð. Þetta auka-blikk getur t.d. forðað slysum á hraðbrautum ef hægist snögglega á umferðinni handan við beygju eða hinum megin við hæð. Á Ítalíu má oft sjá hvernig ökumenn bera blikk- skilaboðin áfram (eða öllu heldur afturábak). Ýta þeir þá örstutt á neyðarljósahnappinn ef þeir sjá ljósin blikka á bílum framar á veginum, án þess að hafa sjálfir séð hættuna sem kom blikkinu af stað. Með þessu móti fá allir betra ráðrúm til að hægja á bíln- um. Að minna náunga sinn á réttan hraða Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Bremsufarið Morgunblaðið/ÞÖK Erlendis tíðkast það að láta neyðarljósin blikka örstutt til að vara bif- reiðir aftar á veginum við hættu eins og þrengingu eða hægari umferð. Fljótt skipast veður í lofti, alla vega á dönskum bílamarkaði. Fyr- ir tveimur til þremur misserum keyptu Danir aðallega smábíla en nú gerast þeir ólmir í stóra bíla. Sjöunda árið í röð stefnir í aukna bílasölu í Danmörku og allt útlit er fyrir að öll fyrri sölumet verði slegin í ár. Danir keyptu alls 208.000 nýja bíla í fyrra og spá sérfræðingar nú, að salan aukist um sex til átta prósent í ár og verði á bilinu 220 til 225 þúsund eintök. Frá áramótum til septemberloka voru nýskráðir bílar 168.470 en á sama tímabili í fyrra var fjöldinn 155.121 eintök. Þegar skoðað er hvaða bílar seljast best er ekkert útlit fyrir að vinsælasta bílnum í langan tíma – Peugeot 208 – verði rutt úr topp- sæti sölulistans. Litlar sem engar líkur eru á að andlitslyftur Volkswagens Up velti þeim franska af stalli sem söluhæsti bíll Danmerkur 2016. Frá áramótum til októberloka voru nýskráð 7.246 eintök af 208 en 5.023 af VW Up sem var söluhæsti bíllinn í Dana- veldi árið 2013 með 12.909 eintök- um. Ástæðan fyrir því að Up nýtur ekki eins mikilla vinsælda eru breytingar á kaupavenjum danskra neytenda; tilhneiging til að kaupa stærri og stærri bíla. Markaðshlutdeild smábíla hefur lækkað úr 23,6% í fyrra í 20,3% í ár. Sá stærðarflokkur sem Peugeot 208 tilheyrir hefur einnig minnkað úr 32,1% í fyrra í 28,4% í ár. Hef- ur þessi flokkur verið sá lang- stærsti og nemur samdrátturinn því um 48.000 eintökum. En á eftir hverslags bílum eru Danir? Jú, jeppar njóta vaxandi vinsælda meðal þeirra. Jeppar sem Nissan X-Trail, stórir fólks- bílar, jafnvel úrvalsbílar eins og Audi A4 hafa verið í sókn. Frá áramótum til septemberloka 2015 jókst jeppasala um 7,6% og sala stórra bíla í milliflokki jókst um 8,9%. Í ár er aukningin 11,2% í jeppum og 10,2% í millistærð- arbílum. Athyglisvert þykir einnig hvernig fjölnotabílar á borð við Volkswagen Touran og Ford S- Max hafa aukist í sölu. Aukningin var 4,9% í fyrra og 6,6 það sem af er árinu 2016. agas@mbl.is Danir kaupa stóra bíla Nissan X-trail jeppinn er vinsæll í Danmörku. Um helgina urðu tímamót í sögu hins létta bifhjóls vespu. Á sýningu í Mílanó á Ítalíu kynnti Piaggio nýja útgáfu af farartækinu goðsagna- kennda, rafknúna vespu. Þetta nýja tákn hins „ljúfa lífs“ kemur á götuna seint á árinu 2017. Á þessu stigi hefur ekkert verið gef- ið upp um hugsanlegan verðmiða á hjólinu og heldur engar tæknilegar upplýsingar um aflrásina. Alvöru vespa með stíl Með Vespa Elettrica bætist raf- hjólið í hóp þar sem fyrir er að finna rafútgáfur af bifhjólum frá Yamaha, Peugeot, Matra, Solex og BMW. „Þetta verður alvöru vespa,“ sagði Piaggio í tilkynningu. „Stíll- inn, lipurðin, meðfærileikinn og akstursánægjan verður söm.“ Útlitið verður geitungslaga eins og allar aðrar vespur í 70 ára framleiðslu hjólsins. Vespa Elettrica er langfrægasta tveggja hjóla vélknúna farartæki Ítalíu. Í 70 ára sögu hjólsins hafa um 18 milljónir eintaka séð dagsins ljós. Nostalgía og notagildi Þar í landi kostar eintak nýrrar vespu frá 3.500 og upp í 5.500 evrur, eða á bilinu 430 til 670 þúsund krón- ur. Talsverð niðursveifla varð í sölu og smíði vespunnar á árunum 1980 til 1990 en þar hefur orðið mikil breyting á og á síðustu 10 árum hef- ur sala vespunnar þrefaldast. Vax- andi borgarumferð og tafsöm ferða- lög af þeim sökum hafa stuðlað að því að fólk hefur fremur gripið til vélhjólsins til að skjótast til vinnu eða annarra erinda í borgum og bæj- um. Þá skýrir fortíðarhyggja auka- sölu að einhverju leyti. Vespan öðlaðist mikla alþjóðlega athygli með tilkomu kvikmyndar- innar „Sumarfrí í Róm“ frá árinu 1953. Í henni eltist Gregory Peck við Audrey Hepburn á einni slíkri. agas@mbl.is Vespa í rafútgáfu Rafmagnað tákn hins ljúfa lífs Piaggio kynnti Vespa Elett- rica til leiks á reið- og mót- orhjólasýn- ingu sem hófst í Mílanó í síð- ustu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.