Morgunblaðið - 18.11.2016, Síða 16

Morgunblaðið - 18.11.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 Rjóminn í ísnum Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hugsanlega heyrði hlustun á hluta samskipta í gegnum svokallað Tetra-kerfi, undir fjarskiptalög. „Ef um hlerun er að ræða, þá myndi ég horfa á 47. grein fjar- skiptalaga um öryggi og þagnar- skyldu. Þar segir í fjórðu máls- grein: „Óheimil er hlustun, upptaka, geymsla eða hlerun fjar- skipta með öðrum hætti, nema hún fari fram með samþykki notenda eða samkvæmt heimild í lögum.“ Við höfum ekki fengið málið til úr- skurðar. En ef málinu yrði beint hingað til þess að stofnunin úr- skurði um það hvort um hlerun var að ræða, eða ekki, þá myndum við horfa á þessa grein,“ sagði Hrafn- kell. Hrafnkell segir að ef um lögbrot sé að ræða, þá fari rannsókn máls- ins fram hjá lögreglu. Á heimasíðu Póst- og fjarskipta- stofnunar segir m.a.: „CERT-ÍS er netöryggissveit á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar. Hún starfar samkvæmt 47 gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 og reglugerð nr. 475/2013. Sveitin hóf formlega starfsemi árið 2013. Starfsemi sveitarinnar snýr fyrst og fremst að fjarskiptafyrirtækjum sem mynda þjónustuhóp hennar, en hún gegnir einnig hlutverki net- öryggissveitar fyrir Ísland (e. Nat- ional CERT) Markmið CERT-ÍS er að fyrirbyggja, draga úr og bregð- ast við hættu vegna netárása eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla undir starfs- svið hennar. Starfsemin felst í að greina atvik af þessu tagi, tak- marka útbreiðslu þeirra og tjón af þeirra völdum. Við útbreidd og al- varleg öryggisatvik skal sveitin samhæfa viðbrögð og aðgerðir.“ Saga Tetra-kerfisins flókin Jónas Ingi Pétursson, fram- kvæmdastjóri rekstrar hjá Ríkis- lögreglustjóranum, segir að ekki sé hægt að fullyrða að það hafi verið klúður að ráðast ekki fyrr í dulkóð- un kerfisins. „Saga Tetra-kerfisins er nokkuð flókin, því þegar verið var að koma upp þessum kerfum á sínum tíma voru tveir eða þrír að- ilar sem voru að reka þessi kerfi. Það er því búið að vera að púsla saman tveimur eða þremur kerfum, sem hefur flækt málið. Hvort það hafi verið hægt í upp- hafi að dulkóða kerfin, skal ég ekki segja til um, en það er erfitt að dul- kóða kerfi, þegar um tvær eða þrjár gerðir af innviðum er að ræða. Þetta er svo langt tímabil og um að ræða ólíka birgja frá ólíkum tím- um,“ sagði Jónas Ingi í samtali við Morgunblaðið í gær. Líkt og fram kom á mbl.is í fyrra- dag, var hluti samskipta um Tetra- kerfi Neyðarlínunnar tvær vikur aftur í tímann aðgengilegur al- menningi á netinu um tíma. Um er að ræða samskipti milli viðbragðs- aðila og annarra sem notfæra sér Tetra-kerfið. Meðal þeirra sem það nota er lögreglan, björgunarsveitir, Strætó, slökkvilið höfuðborgar- svæðisins og orkufyrirtæki. Fram kom á mbl.is að samskipti lögregl- unnar voru kóðuð strax í fyrradag samkvæmt Neyðarlínunni. Þórhallur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, sagði í samtali við mbl.is að vitað hefði verið af þessum veikleika um nokkurn tíma og því hefði verið far- ið í heildaruppfærslu á öllu Tetra- kerfinu hér á landi. Hann hefði ítrekað bent á þennan veikleika. Það var um 250 milljóna fjárfesting að sögn Þórhalls og er búið að heimsækja alla senda á landinu til að uppfæra þá. Hann segir hlerun á kerfið vera ólöglega þar sem um sé að ræða kerfi viðbragðsaðila. Gerir Þórhall- ur ráð fyrir að lögreglan muni rann- saka málið, enda sé um að ræða samskipti þeirra. Hlustun, upptaka eða hlerun sögð óheimil  Brot á fjarskiptalögum eða lögbrot  Verður rannsakað Lögreglan Hafi verið um lögbrot að ræða við hlustun á Tetra-kerfinu, kem- ur það til kasta Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að rannsaka málið. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Sérsveit Ríkislögreglustjóra fær afhentar sérbúnar bifreiðar, sem koma fullbúnar frá framleiðanda, samkvæmt upplýsingum frá emb- ætti Ríkislögreglustjóra en ekki er gefið upp hvenær bifreiðarnar verða teknar í notkun. „Verði reynslan af innkaupum á fullbúnum bifreiðum góð mun Rík- islögreglustjóri endurskoða fyrir- komulag bifreiðakaupa hjá lög- reglunni. Umræddar bifreiðar verða af gerðinni Ford Interceptor sem eru sérbúnar lögreglubif- reiðar frá framleiðenda,“ segir Jónas Ingi Pétursson hjá Ríkislög- reglustjóra, en innkaup lögreglu á bifreiðum fara fram í dag á grund- velli rammasamnings Ríkiskaupa. Fjármagn ræður m.a. ferð Hvenær óskað er eftir nýjum bifreiðum fer að sögn Jónasar eftir fjármagni, búnaði sem þarf og stöðu þjónustuaðila, þ.e. verkefna- stöðu þjónustuaðila á hverjum tíma. „Ríkislögreglustjóri á og rekur allar lögreglubifreiðar í landinu. Á hverju ári hafa 12 til 15 bifreiðar verið endurnýjaðar og er algengt verð bifreiða um 6,5 til 7,5 m.kr. Auk þess er kostnaður vegna sér- búnaðar lögreglunnar og stand- setning hverrar bifreiðar er um 3-7 m.kr, sem ræðst af því hversu mikið af búnaði fer í bifreiðina. Standsetning bifreiðanna tekur um 1-2 mánuði og árlegur kostn- aður vegna endurnýjunar lög- reglubifreiða er um 130-160 millj- ónir króna. Hvenær bifreiðarnar eru keyptar og standsettar fer svo m.a. eftir peningalegri stöðu, bún- aði og hvort þjónustuaðilar geti sinnt umbeðnum verkefnum á hverjum tíma.“ Sérsveitin fær sér- búna lögreglubíla  Tilraunaverkefni á innkaupum bifreiða fyrir lögregluna Bíll Sérsveitin fær sérbúna Ford Interceptor frá Bandaríkjunum. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hyggst taka á leigu 350-400 fer- metra húsnæði fyrir vínbúð í Garðabæ. „Við höfum fundið fyrir áhuga á að opna aftur í Garðabæ,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Ef áformin ganga eftir gæti hin nýja verslun verið opnuð á nýju ári. Fyrirtækið rak áður vínbúð á Garðatorgi í Garðabæ en henni var lokað frá og með 1. janúar 2011. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að leigusamningur um hús- næðið rann út um áramótin, en vínbúðin í Garðabæ hafði verið á þessum stað frá því í maí 2001. Staðsetningin hentaði illa „Staðsetning og stærð húsnæðisins sem Vínbúðin í Garðabæ er í hentar illa fyrir verslun af þessu tagi og á síðustu misserum hefur mikið af verslun flust af svæðinu. Þá hefur sala í Vínbúðinni í Garðabæ á undan- förnum árum dregist hægt og ró- lega aftur úr almennri þróun sölu, bæði á landsvísu og á höfuðborg- arsvæðinu. Sem dæmi má nefna að magnsala Vínbúðarinnar í Garðabæ er um 40 – 50% minni en meðalsala Vínbúða með svipað umfang og opnunartíma,“ sagði í frétt á heimasíðu ÁTVR á sínum tíma. Í auglýsingu sem birtist í Morgunblaðinu um helgina eru gerðar kröfur um húsnæðið í 13 liðum. Þar er meðal annars tekið fram að húsnæðið skuli vera á skilgreindu verslunarsvæði, það skuli vera nálægt stofnbraut eða tengibraut og bílastæði skuli vera fyrir a.m.k. 25-35 bíla. Tilboðs- frestur er til föstudagsins 25. nóv- ember næstkomandi. Vínbúð ÁTVR í Grafarvogi var lokað í ársbyrjun 2009 en hún opnuð aftur í lok nóvember 2015. Hafa Grafarvogsbúar tekið búð- inni vel, að sögn Sigrúnar Óskar. Að hennar sögn eru engin áform um að opna fleiri vínbúðir á höfuð- borgarsvæðinu. Morgunblaðið/Júlíus Vínbúð Ef áætlanir ganga eftir gæti vínbúð opnað í Garðabæ á næsta ári. Áforma að opna vínbúð í Garðabæ  Vínbúð ÁTVR í bænum var lokað 2011

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.