Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2015, Side 2
2 Fréttir Vikublað 8.–9. apríl 2015
Heill heimur af pylsum!
Hrísateig 47
Pylsur á pönnuna
en einnig úrvals skinkur og álegg á veisluborðið
að ógleymdri svínasultunni, beikoninu og ýmsu öðru góðgæti.
Gæðapylsur og skinkur án allra auka-
og fylliefna og án MSG. Framleiddar eftir
uppskriftum frá öllum heimshornum.
Íslenskt kjöt – íslensk framleiðsla!
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
UPPFYLLIR
SKILYRÐI
NÁLARAUGANS
Paleo
GABS
SCD
Yfirdráttarlánin felldu
sparisjóðinn í Eyjum
n Eignir sjóðsins rýrnuðu um tæpa 1,2 milljarða n Yfirdráttarlánin ofmetin um hálfan milljarð
S
tjórnendur Sparisjóðs
Vestmannaeyja (SV) þurftu
að afskrifa yfirdráttarlán til
viðskiptavina fyrir um 500
milljónir króna á seinni
hluta síðasta árs. Eignir SV rýrn-
uðu um alls 1.166 milljónir í fyrra
sem skýrir að mestu 957 millj-
óna króna tap sparisjóðsins á ár-
inu 2014. Óvíst er hvenær end-
anleg niðurstaða um verðmæti
lánasafns sjóðsins fæst en þangað
til verður því ekki svarað hvernig
útlánatöp leiddu til þess að eigið
fé hans var nánast uppurið í árs-
lok 2014.
Þetta kemur fram í ársreikn-
ingi SV sem var samþykktur af
stjórn sparisjóðsins 26. mars síð-
astliðinn. Rannsókn á virði útlána
sjóðsins, sem ráðist var í á síðasta
ári, var ekki lokið við undirritun
reikningsins. Þremur dögum síðar
heimilaði Fjármálaeftirlitið (FME)
samruna SV og Landsbankans.
Hefur engar skýringar
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, fyrrver-
andi stjórnarformaður SV, hefur
engar skýringar á því hvernig það
gat gerst að yfirdráttarlán spari-
sjóðsins til viðskiptavina voru of-
metin um rúman hálfan milljarð
króna.
„Stjórn sjóðsins óskaði eftir sér-
stakri greiningu hjá endurskoð-
anda þegar þessar tölur lágu fyrir
og hann var einfaldlega ekki búinn
að ljúka þeirri vinnu þegar við fór-
um frá,“ segir Þorbjörg.
Fjallað hefur verið um þátt úti-
bús SV á Selfossi í falli sparisjóðs-
ins. Fréttastofa RÚV greindi í síð-
ustu viku frá því að útibúið hefði
lánað um 100 milljónir króna til
félaga sem höfðu enga raunveru-
lega starfsemi. Pétri Hjaltasyni,
fyrrverandi útibússtjóra SV á Sel-
fossi, var sagt upp störfum í byrjun
desember, eins og DV hefur greint
frá. Í frétt RÚV var fullyrt að þáttur
Péturs í lánveitingunum sé til
skoðunar og að hann hefði einnig
verið kærður til lögreglu fyrir sjö
milljóna króna fjárdrátt.
„Ég get ekkert sagt um það en
það hefur svo sem komið fram í
fréttum áður að stór hluti af þess-
um afskriftum eða virðisrýrnun
safnsins var vegna þess útibús,“
segir Þorbjörg, aðspurð hvort stór
hluti þeirra yfirdráttarlána sem
sjóðurinn þurfti að afskrifa hafi átt
rætur að rekja til útibúsins á Sel-
fossi.
Pétur Hjaltason vildi ekki tjá sig
um starfslok sín hjá SV í samtali
við blaðamann DV. Hann svaraði
því þó aðspurður að rannsóknin
á lánasafni sjóðsins hefði átt ein-
hvern þátt í starfslokunum.
Lánasafnið skoðað 2011
Samkvæmt ársreikningnum námu
eignir SV 12,3 milljörðum í árslok
2014. Eigið fé sparisjóðsins nam
þá 98 milljónum samanborið við
1.055 milljónir á sama tíma 2013.
Tæpum þremur mánuðum síð-
ar heimilaði FME samruna SV og
Landsbankans eftir að rannsókn
stjórnar sparisjóðsins á lánasafn-
inu hafði leitt í ljós að eiginfjár-
hlutfall hans var undir lágmarki
FME. Áhlaup á sparisjóðinn, sem
nam tæpum 700 milljónum króna,
átti einnig þátt í ákvörðun FME en
það rýrði laust fé hans um helm-
ing.
„Það sem kom mér mest á
óvart við þetta allt saman var að
það komu ekki fram neinar upp-
lýsingar um útlánatöp sjóðsins
þegar reikningar hans voru gerð-
ir á sex mánaða fresti síðustu ár.
Sérstaklega af því að við fórum
síðast í svona útlánaskoðun í lok
september 2011. Þá voru engar
athugasemdir gerðar en ég hef
ekki þær upplýsingar hvort all-
ar þessar kröfur sem við vorum
að vinna úr núna eftir áramót hafi
verið til þá eða ekki. Ég á því erfitt
með að skilja hvernig þetta gat
komið upp með þessum hætti,“
segir Þorbjörg. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Sameinaðist
Landsbankanum
73 ára sögu Sparisjóðs
Vestmannaeyja lauk
29. mars þegar FME
heimilaði samruna
sjóðsins og Lands-
bankans. Mynd Eyjafréttir
Þorbjörg inga jónsdóttir Fyrrverandi
stjórnarformaður SV segir FME hafa gefið
stjórnendum sjóðsins of skamman frest
til að skila inn tillögum að aðgerðum sem
hefðu getað bætt eiginfjárgrunn hans.