Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2015, Page 30
30 Menning Vikublað 8.–9. apríl 2015
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Vönduð og endingargóð
vetrardekk sem koma þér
örugglega hvert á land sem er
Menningarmiðstöð
í gömlu frystihúsi
n Frystiklefinn á Rifi hlaut Eyrarrósina í ár n Látlaus athöfn um borð í Húna
E
yrarrósin 2015 var veitt við
hæfilega látlausa athöfn um
borð í eikarbátnum Húna
við Ísafjarðarbryggju síðast-
liðinn laugardag. Í ár var það
Frystiklefinn, sem hlaut Eyrarrósina,
en að auki kepptu Sköpunarstöðin
Stöðvar firði og Listasafn Árnesinga
um hnossið.
Sjónum beint að menningu á
landsbyggðinni
Eyrarrósin er viðurkenning sem
Listahátíð veitir framúrskarandi
menningarverkefni á landsbyggð-
inni. Viðurkenningin hefur verið veitt
árlega síðan 2005 en eins og segir á
heimasíðu Listahátíðar er markmið
hennar að beina sjónum að og hvetja
til menningarlegrar fjölbreytni, ný-
sköpunar og uppbyggingar, á sviði
menningar og lista.
Frystiklefinn, menningarmiðstöð
og listamannaaðsetur á Rifi á Snæ-
fellsnesi, hlaut elleftu Eyrarrósina, en
það var Dorrit Moussaieff forsetafrú
sem afhenti Kára Viðarssyni, fram-
kvæmdastjóra og eiganda Frystiklef-
ans, viðurkenningu og peningaverð-
laun upp á 1.650.000 krónur.
Í Frystiklefanum eru haldnir
menningar- og sögutengdir viðburð-
ir allt árið um kring auk þess sem þar
er rekið gistiheimili. Markmið Frysti-
klefans er að stuðla að auknu fram-
boði og fjölbreytni í menningarlífi á
Vesturlandi, auka þátttöku bæjarbúa
og gesta í menningar- og listviðburð-
um og að varðveita, nýta og miðla
sagnaarfi Snæfellinga.
Leiksýningar í frystihúsi
Kári Viðarsson, maðurinn á bak við
Frystiklefann, er alinn upp á Hell-
issandi, en eyddi miklum hluta upp-
vaxtaráranna á Rifi. Hann lærði í leik-
list í Rose Bruford College í London,
en fyrir fjórum árum byrjaði hann að
setja upp leiksýningar í gömlu frysti-
húsi á Rifi. Fyrir ári ákváðu eigendur
frystihússins að selja það og þá var að
hrökkva eða stökkva.
„Mig langaði að skapa menningar-
og listatengt fyrirtæki sem bland-
ar saman ferðaþjónustu, viðburðum
og listamannaaðsetri. Ég ákvað að
kaupa húsið og breyta hluta af því í
gistipláss.“ Gistiheimilið í Frystiklef-
anum er opið árið um kring og að-
sókn í listamanna-
aðsetrið er mikil.
„ Setrið er bókað út
árið 2015 og fólk
er farið að senda
inn fyrirspurnir
um næsta ár. Það
er fjöldi spennandi
fólks að koma, til
dæmis sviðslistamenn, kvikmynda-
gerðarmenn og tónlistarmenn. Rif er
frábær staður til að vinna í listsköpun
og það er mjög gefandi fyrir mig sem
listamann að fá innblástur frá fólki
víðs vegar að úr heiminum.“
Peningarnir nýtast vel
Kári segir það hafa verið mikið sjokk
og spennufall að heyra forsetafrúna
nefna Frystiklefann sem vinnings-
hafann um borð í Húna.
„Þetta er mikill fjárhagslegur
stuðningur og góður styrkur. Ég mun
nýta peningana í alls kyns verkefni,
meðal annars til að gera aðstöðuna
betri og auðvitað í menningarvið-
burði. Það er svo margt í gangi hjá
mér að þessir peningar geta nýst í
ótrúlega marga hluti.“
Kári hefur áður fengið styrki, að-
allega tengda ákveðnum menningar-
verkefnum, til dæmis uppsetningu
leiksýninga.
„Menningarráð Vesturlands hefur
alltaf haft trú á þessu verkefni og stutt
mig vel. Það gildir líka um góða að-
ila á Vesturlandi, fyrirtæki, samtök
og síðast en ekki síst bæinn sjálfan
sem hefur mikla trú á verkefninu og
sér hversu mikil áhrif þetta hefur á
bæjarlífið. Bæjarbúar eru líka mjög
hjálpsamir í alls konar verkefnum og
reddingum. Þetta er það sem gerir
það svo yndislegt að vera úti á landi –
gott aðgengi að hjálpsömu fólki sem
er til í að mæta með lyftara eða gefa
mér gamla sófa. Það er það fallega við
að vera hérna.“
Kemur ekki suður
Um þessar mundir er leiksýningin
Mar sýnd í Frystiklefanum en verkið
var frumsýnt um miðjan desember.
„Það er algjör regla hjá mér að fara
ekki suður með sýningarnar mínar.
Fólk kemur alls staðar að af landinu
á leiksýningar Frystiklefans og býr
sér gjarnan til lítið menningarferða-
lag á Snæfellsnes. Kíkir á leiksýningu,
gistir í Frystiklefanum, fer út að borða
og upplifir þjóðgarðinn. Sýningarnar
hafa fengið fína dóma og það er hluti
af upplifuninni að koma hingað til
að sjá þær. Þess vegna kem ég ekki
með þær til Reykjavíkur, þó að ég hafi
að sjálfsögðu ekkert á móti höfuð-
borginni,“ segir Kári og hlær.
Upplýsingar um starfsemi Frysti-
klefans er að finna á heimasíðunni
www.frystiklefinn.is. n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Áhöfnin á Húna Handhafar Eyrarrósarinnar 2014 tóku lagið um borð í
Húna. MyndiR HELga BjöRg KjERúLf
frystiklefinn Gamla frystihúsinu á Rifi hefur
verið breytt í gistiheimili og menningarsetur.
forsetahjónin Hugguleg um borð í Húna.
„Mig langaði að búa til menn-
ingar- og listatengt fyrirtæki
sem blandar saman ferðaþjónustu,
viðburðum og listamannaaðsetri.
S
tutt- og heimildamyndahátíðin
Reykjavík Shorts & Docs verð-
ur haldin dagana 9.–12. apríl í
Bíó Paradís. Þetta er í þrettánda
sinn sem hátíðin er haldin.
Óskarsverðlaunamyndin Citizen-
four um uppljóstrarann Edward
Snowden er ein heimildamynda
Reykjavík Shorts & Docs-hátíðar-
innar í ár, en leikstjóri myndarinnar,
Laura Poitras, verður viðstödd sýn-
ingu hennar.
Meðal annarra spennandi mynda
má nafna Sumé – The Sound of
Revolution sem fjallar um græn-
lensku rokkhljómsveitina Sumé sem
gerði garðinn frægan á 8. áratugnum
á Grænlandi og víðar í Evrópu. Þetta
er fyrsta grænlenska heimildamyndin
sem gerð er í fullri lengd.
Rokkið verður líka í aðalhlutverki
í íslensku heimildamyndinni Bann-
að að vera fáviti, en hún er opnunar-
mynd hátíðarinnar í ár. Í henni segir
frá rokkhátíðinni Eistnaflugi sem
haldin er árlega í Neskaupstað. Há-
tíðin hlaut nýverið Menningarverð-
laun DV í flokki tónlistar.
Fjöldi annarra stutt- og heimilda-
mynda verður sýndur á Reykjavík
Shorts & Docs-hátíðinni. Upplýsingar
um allar myndir hátíðarinnar og sýn-
ingartíma má finna á www.shorts-
docsfest.com og miða má nálgast í
Bíó Paradís. n
Kvikmyndahátíð um helgina
Reykjavík Shorts & Docs haldin í þrettánda sinn
Citizenfour Heimildamynd um uppljóstr-
arann Edward Snowden er ein myndanna á
hátíðinni.
Eyrarrósin afhent Fyrir miðju sjást Kári Viðarsson og Dorrit
Moussaieff, skömmu eftir að úrslitin voru kunngjörð.