Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2015, Page 4
Vikublað 1.–3. desember 20154 Fréttir
Vill kaupa öll
plássin í Firði
Eigendur 220 Fjarðar ehf. vilja koma eignarhaldi verslunarmiðstöðvarinnar undir einn hatt
F
járfestingarfélagið 220 Fjörð-
ur ehf. vill kaupa allt versl-
unarrými í verslunarmið-
stöðinni Firði í Hafnarfirði.
Forsvarsmenn þess hafa boð-
ist til að kaupa rýmin eða leyfa
eigendum þeirra að láta þau upp í
hlutafé í félaginu. Haraldur Reyn-
ir Jónsson, útgerðarmaður sem oft-
ast er kenndur við Sjólaskip, er einn
þriggja eigenda félagsins en aðrir
hluthafar eru Landey ehf., dótturfyr-
irtæki Arion banka, og einkahlutafé-
lagið FM-hús.
„Þarna er um að ræða fjársterka
aðila sem langar að sjá miðbæ
Hafnarfjarðar blómstra. Félagið hef-
ur nú þegar tryggt sér um 70% af öllu
verslunarrými Fjarðar en eigendur
þess áttu aftur á móti nokkur rými
í húsinu áður en ákveðið var að
koma því öllu undir einn
hatt,“ segir Guðmundur
Bjarni Harðarson, fram-
kvæmdastjóri Fjarðar og
fjárfestingarfélagsins.
Um 30 rými
Guðmundur segir ekki ljóst
hversu mikla fjárfestingu
eigendur 220 Fjarðar þurfi
að ráðast í til að ná mark-
miði sínu, en fjárfestingin
sé aftur á móti „gríðar-
lega stór“. Félagið hafi verið
stofnað í júní síðastliðnum
en hjólin farið að snúast í fyrra.
„Það eru um 30 verslunarrými í
Firði og þau voru áður nánast í eigu
jafnmargra aðila. Markmiðið er að
koma öllum plássunum undir einn
hatt þannig að verslunarmiðstöðin
verði samkeppnishæfari. Hingað til
hefur reynst erfitt að móta einhvers
konar framtíðarstefnu fyrir húsið og
því kom þessi hugmynd upp um að
bjóða öllum að koma inn í félagið
eða selja,“ segir Guðmundur.
Haraldur Reynir er eig-
andi útgerðarinnar Úthafs-
skip en skrifstofa fyrirtækis-
ins er staðsett í Firði. Landey
fer með eignarhald Arion
banka á fasteignum, lóð-
um og hlutafé í fasteigna-
félögum sem ekki eru tekjuber-
andi að stórum hluta. Þar er fyrst og
fremst um að ræða umfangsmikl-
ar íbúðabyggingar í vinnslu og önn-
ur fasteignaþróunarverkefni. Úti-
bú bankans í Hafnarfirði er staðsett
í verslunarmiðstöðinni. FM-hús hét
áður Fjarðarmót ehf. og rekur starf-
semi í Hafnarfirði. Fyrirtækið á með-
al annars húsnæði Áslandsskóla.
Misstu ÁTVR
„Verslunareigendur hér eru mjög
ánægðir með þessar breytingar enda
er það hagsmunamál fyrir Fjörð
hvort hann nái að lifa af sem versl-
unarmiðstöð eða ekki. Þetta hefði átt
að gerast fyrir tíu árum,“ segir Guð-
mundur og heldur áfram:
„Nú er stefnan sett á að setja Fjörð
í andlitslyftingu enda er barnið orðið
tuttugu ára gamalt. Það sem hefur
verið jákvætt er að það hefur verið
aukning í verslun þó svo að Fjörður
hafi misst ÁTVR.“ Guðmundur rifj-
ar upp fréttir af áhyggjum verslunar-
eigenda vegna brotthvarfs einu vín-
búðar ÁTVR í Hafnarfirði úr húsinu.
„Jólaverslunin í fyrra var betri en
hún hafði verið í mörg ár. Það sem
af er þessu ári hefur gengið betur en
allt á árið í fyrra hvað varðar sölu í
verslunum. Eigendur félagsins vilja
því móta stefnu Fjarðar fyrir næstu
fimm til tíu ár en þeir eru einnig að
skoða miðbæ Hafnarfjarðar í heild
sinni og horfa til þess að gera hann
að hinum nýja Skólavörðustíg.“ n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
„Þarna er um að
ræða fjársterka
aðila sem langar að sjá
miðbæ Hafnarfjarðar
blómstra.
Bæjarstjór-
inn mokaði
innkeyrsluna
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, hugsaði sig ekki
tvisvar um þegar hann kom að
öldruðum manni í Hafnarfirði
um helgina þar sem maðurinn
var að moka snjó frá innkeyrsl-
unni við heimili sitt.
Eiginkona mannsins greindi
frá þessu á Facebook, þar sem
hún segir frá því hvernig Gunnar
bauð fram aðstoð sína.,
„Ég vil endilega segja ykkur
frá því, að í dag var Svenni úti að
moka snjó af stéttinni fyrir fram-
an húsið okkar þegar hann tók
eftir að bíl, sem var ekið framhjá,
var snúið við og út kom maður
sem bauð honum hjálp sína við
snjómoksturinn. Hann sagðist
ekki geta hugsað sér, að gamal-
menni væri eitt að moka allan
þennan snjó. Svenni spurði hann
áður en hann fór hvað hann héti
og gerði og sagðist hann heita
Gunnar Einarsson og væri bæjar-
stjóri í Garðabæ. Einstök hjálp-
semi af manni sem þekkir okkur
ekkert og á hann þúsund þakkir
skildar,“ sagði konan en maður
hennar er kominn á níræðisaldur,
orðinn 82 ára.
DV sló á þráðinn til Gunnars
og kannaðist hann við að hafa
komið manninum til aðstoðar.
„Þetta var nú bara svona spont-
ant. Ég sá hann vera að moka
þarna og hugsaði með mér að
það væri ágætt að hjálpa honum.
Ég gerði það og hafði gaman af og
við spjölluðum heilmikið saman,“
segir Gunnar.
Gunnar segist hafa farið að
hugsa um þetta eftir á og hvort
það væri ekki sniðugt að stofna
félagsskap skóflueigenda – hóp
sem gæti komið öðrum til að-
stoðar í vetrarfærðinni. Þeir sem
væru í hópnum væru þá með
skóflu og sandpoka til reiðu í
bílnum og þeir myndu létta undir
ef þeir sæju samborgara í vanda.
Framkvæmdastjórinn Guðmundur Bjarni Harðarson segir 220 Fjörð nú eiga um
70% af öllu verslunarrými í Firði.
s
tjórnendur og starfsfólk íslenskra
fjármálafyrirtækja eru vel með-
vituð um að sú áhættumenn-
ing sem viðgekkst fyrir banka-
hrun var ekki ásættanleg og varð þess
valdandi að orðspor fjármálamark-
aðarins laskaðist verulega. „En það er
eins og sumir haldi að ekkert hafi breyst
– sem er auðvitað kolrangt,“ sagði
Steinþór Pálsson, bankastjóri Lands-
bankans og stjórnarformaður Samtaka
fjármálafyrirtækja (SFF), í ræðu sinni á
árlegum SFF-degi samtakanna sem var
haldinn síðastliðinn fimmtudag.
Hann nefndi að þrátt fyrir að
gagnrýni geti verið til góða þá hafi
gagnrýni „á íslenska fjármálakerfið
verið viðvarandi og óvægin. Gagn-
rýnin hefur oft á tíðum verið ósann-
gjörn og byggst á sleggjudómum.
Það er oft erfitt að bregðast við slíkri
umræðu,“ sagði Steinþór.
Staðreyndin væri hins vegar sú,
útskýrði Steinþór í ræðunni, að á
undanförnum árum hefði verið unnið
markvisst í að breyta starfsháttum í
fjármálafyrirtækjunum, svo sem með
bættri áhættustjórnun og eftirliti.
„Vantraust er því miður enn mikið og
það er verk að vinna, ekki bara varð-
andi fjármálafyrirtæki heldur í samfé-
laginu öllu.“ n hordur@dv.is
„Kolrangt“ að ekkert hafi breyst
Segir gagnrýni á fjármálakerfið viðvarandi og óvægna