Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2015, Qupperneq 15
Fréttir Erlent 15Vikublað 1.–3. desember 2015
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is
Ákæra ekki móður barnsins í jötunni
skjól“ (e. Safe Haven) í New York
ber þeim sem vill yfirgefa barnið
sitt að gera það á öruggum stað,
svo sem í kirkju, á sjúkrahúsi eða
hjá lögreglu. Einnig verður viðkom
andi að gefa sig fram við einhvern
og láta vita af fyrirætlunum sínum.
Ekki er nóg að koma með barnið
á staðinn og fara. Barnið má ekki
vera eldra en þrjátíu daga gamalt.
Saksóknarinn segir að móðirin hafi
talið sig vera að fara með barnið
á öruggan stað og taldi það finn
ast fljótt. Hún sneri að auki aftur
næsta dag til að kanna hvort barnið
hefði ekki örugglega fundist. Það sé
því samkvæmt anda langanna að
ákæra hana ekki, enda erfiðleikar
hennar nógir fyrir. n
astasigrun@dv.is
„Heimsbyggðin reiðir sig á ykkur“
og sú síðasta sem getur gert eitt
hvað í málinu,“ sagði Barack Obama
þegar hann ávarpaði samkomuna.
Engin þjóð, hvorki rík né fátæk, sé
ónæm fyrir hlýnun jarðar. „Ég kom
hér í eigin persónu til að segja ykk
ur að Bandaríkin átta sig ekki að
eins á vandamálinu, heldur eru
skuldbundin til að grípa til aðgerða.“
Hann sagði að áðstefnan gæti orðið
vendipunktur á þeirri leið að koma í
veg fyrir hnattræna hlýnun.
Kaupmannahöfn skilaði litlu
Fram hefur komið að 150 ríki heims
hafi lofað að draga úr loftmengun en
þessi ríki losa níu tíundu hluta þeirra
gróðurhúsalofttegunda sem losaðar
eru í heiminum. Forvitnilegt verð
ur að sjá hvort ríkjum heimsins tekst
að komast að samkomulagi um að
gerðir í þessari atrennu en loftslags
ráðstefnan sem haldin var í Kaup
mannahöfn árið 2009 þótti litlu skila.
Eitt af því fáa sem þó var ákveðið
í Kaupmannahöfn 2009 var að verja
yrði 100 milljörðum dollara árlega
til að aðstoða vanþróuð ríki að inn
leiða og þróa tækni sem dregur úr
mengun þeirra. Ekki hefur verið
ákveðið hvaðan þeir fjármunir eiga
að koma.
Margir vilja ganga lengra
Þróunarríki, og ríki sem standa lágt
yfir sjávarmáli, vilja raunar mörg
hver að þeim ríkjum sem meng
að hafa mest í gegnum tíðina verði
gert að ganga lengra í takmörkun
losunar gróðurhúsalofttegunda og
krefjast þess að markið verði sett við
hálfa aðra gráðu, í stað tveggja gráða
hækkunar. Um 100 smærri ríki hafa
lýst þessari skoðun sinni en stóru
ríkin impra á móti á því að allir þurfi
að axla jafnar byrðar. n
Herfilegt
vandamál
David Attenborough mun
ávarpa ráðstefnugesti
„Við þekkjum hverjar afleiðingarnar af
hlýnun loftslags eru á hafið, svo dæmi
séu tekin,“ hefur BBC eftir Sir David
Attenborough. Hann er ekki bjartsýnn
á að viðræðurnar í París muni leiða til
þess að tekið verði á þessum „herfilega
vanda“ en segir þó að í ljósi þess hve vel
ráðstefnan er sótt, að eitthvað jákvætt
gæti komið út úr henni.
Hlýnun sjávar muni leiða til þess að fiski-
stofnar muni þurrkast út á sama tíma
og eyðimerkur stækka. „Aðsteðjandi
vandmál eru geigvænleg og þau þarf að
forðast hvað sem það kostar.“
vill lagalega bindandi samning„Sáttmálinn ætti
að vera yfirgrips-
mikill, metnaðarfullur og
lagalega bindandi.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti.
T
hom Miller á von á barni
með nítján ára eigin
konu sinni. Það væri svo
sem ekki í frásögur fær
andi nema fyrir þær sakir
að Thom á fyrir aðra eiginkonu,
Belindu Miller, sem er fyllilega
sátt við ráðahaginn.
Vefútgáfa breska blaðsins
Mirror greinir frá þessu. Þar seg
ir að Thom njóti fulls stuðnings
Belindu og hún sé fyllillega sátt
við að hann eigi kærustu, eða
öllu heldur eiginkonu sem sé
rúmum fjörutíu árum yngri en
hann. Sjálfur er Thom sextugur.
Hann vinnur nú að því að stækka
heimili sitt svo eiginkonurnar
tvær – og væntanlegur erfingi –
komist fyrir.
Handrukkari sem varð
prestur
Thom er fyrrverandi handrukk
ari en hann sneri við blaðinu
og gerðist prestur. Í umfjöllun
Mirror kemur fram að þau hjón
in, það er Thom og Belinda svo
öllu sé haldið til haga, hafi fyrst
rætt um fjölkvæni fyrir nokkrum
árum. Það var svo nýlega að
Thom kynntist hinni nítján ára
gömlu Rebu Kerfootruba og fór
svo að hún varð ólétt. Þau ætla
að búa öll undir sama þakinu um
ókomna tíð.
„Fyrst um sinn fannst fjöl
skyldu minni þetta ekki rétt, að ég
væri í sambandi með kvæntum
manni. En svo fór hún að sýna
þessu skilning,“ segir Reba og
bætir við að vinkonur hennar hafi
verið á sama máli. Í fyrstu hafi
þeim þótt þetta óeðlilegt en í dag
sýni þau stöðu hennar skilning.
Þrjár nætur hjá hvorri
„Það getur tekið á að þurfa að
deila honum með annarri konu
en ég reyni að verða ekki afbrýði
söm,“ segir unga stúlkan. Óhætt
er að segja að Thom skipti tíma
sínum bróðurlega á milli Belindu
og Rebu; þrjár nætur er hann hjá
Belindu og næstu þrjár hjá Rebu –
og svo koll af kolli.
Sjö ár eru síðan Thom og
Belinda gengu í hjónaband, en
Thom setti svo hring á fingur
Rebu ekki alls fyrir löngu. Belinda
segir að Reba sé henni eins og
systir. Fjölskyldan býr í Ohio þar
sem fjölkvæni er ólöglegt og því
er það aðeins í orði en ekki á
borði að Thom og Reba séu hjón.
Ríkið viðurkennir ekki hjónaband
hans við hana. „Ég hef ekkert á
móti samkynhneigðum en mér
finnst rangt að hjónaband þeirra
sé leyfilegt en ekki fjölkvæni. Ég
ætla að berjast fyrir þessu – þetta
eru Bandaríkin og ég og eigin
konur mínar eigum rétt á að lifa
eins og okkur sýnist – svo lengi
sem við sköðum engan.“
Biblían breytti lífinu
Sem fyrr segir er Thom fyrrver
andi handrukkari, en hann starf
aði fyrir mafíuna í Cleveland.
Hann sneri við blaðinu árið 1991
en þá hafði hann nýlokið við að
afplána átta ára fangelsisdóm
fyrir hnífstungu. „Ég stal Biblíu í
fangelsinu og las hana spjaldanna
á milli – þá breyttist líf mitt.“ n
Kvæntist nítján
ára hjákonu sinni
Presturinn Thom Miller barnaði 19 ára stúlku og á tvær eiginkonur
„Það getur tekið á
að þurfa að deila
honum með annarri konu
en ég reyni að verða ekki
afbrýðisöm.
Hamingjusöm
Báðar konurnar
eru sáttar við
ráðahaginn.