Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2015, Síða 38
Vikublað 1.–3. desember 201530 Fólk
Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I
LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND
Röflar í manninum
„Ég er að gera voðalega lítið
merkilegt – aðallega röfla
í manninum mínum, éta
súkkulaði og blaðra út í loft-
ið. Það kemur mér því mjög
á óvart hversu margir horfa
á þetta,“ segir Guðrún Veiga
Guðmundsdóttir en rúmlega
4.000 manns horfa á snöpp
Guðrúnar Veigu á hverjum
degi en notandanafn Guðrún-
ar Veigu er Gveiga85.
Guðrún Veiga segist oft
vera misskilin á snappinu
og sérstaklega hvað varðar
manninn hennar. „Ég miða
við að þeir sem fylgist með séu
einnig lesendur á blogginu
mínu og þekkja því kaldhæðni
mína. Maðurinn minn hefur
fullan skilning á þessu öllu og
mikinn húmor fyrir mér, þótt það líti ekki alltaf svoleiðis út.“
Aðspurð nefnir Guðrún Veiga Katrínu Eddu og Birnu Magg sem sína upp-
áhaldssnappara. „Katrínedda1 súkkulaðiæta er sálufélagi minn og Birna-
magg er bloggari sem býr, að ég held á Hornafirði. Hún er stórskemmtilegt
og ropar og er mjög eðlileg.“
Guðrún Veiga viðurkennir að hún eyði of miklum tíma í Snapchat. „Ég þyrfti
eiginlega að líma símann við ennið á mér eða fara að hætta þessari maníu. Ég
hélt spilakvöld um daginn og gestirnir neituðu að mæta nema ég skildi símann
eftir inni á herbergi. Ég hlýddi því enda er fólk ekkert alltaf í stuði fyrir þetta.“
Langar að gera
þetta vel
„Ég byrjaði að sýna frá heimsmeistaram
ótinu í
crossfit í júlí og eftir það varð eftirspurn
in mikil
auk þess sem ég var beðinn um að sjá u
m Nova-
snappið sem 10% þjóðarinnar fylgjast m
eð,“ segir
Snorri Björnsson sem er með yfir 6.500
fylgjendur
á Snapchat þegar þetta er skrifað.
Snorri er ljósmyndari og hleypir fylgjend
um
sínum inn í daglegt líf sitt í gegnum snap
pið.
„Ég ferðast mikið vegna vinnunnar og h
itti
margt skemmtilegt fólk. Stundum gerist
eitthvað
skemmtilegt sem mér finnst eiga heima
á Snapchat
og þá set ég það inn,“ segir Snorri sem se
gist ekki
eyða miklum tíma í forritið dagsdaglega
. „Suma
daga set ég ekkert inn og þá er ég ekkert
að spá í
þetta. Svo ef ég fæ hugmynd um að gera
eitthvað þá
er ég gjörsamlega með það á heilanum o
g tilbúinn
að taka upp símann allan daginn.“
Aðspurður neitar Snorri því að svona mi
kill
fjöldi fylgjenda skapi pressu á hann um
að vera
fyndinn og skemmtilegur. „Ég var ótrúle
ga smeykur
að vera með Nova-snappið, tók endalau
st upp en
eyddi því aftur. Svo hugsaði ég með mér
að þar sem
ég væri kominn með þetta snapp á eigin
verðleik-
um ætlaði ég bara að gera þetta áfram ei
ns og ég
væri vanur og þar með var stressið farið.
Þetta var
í rauninni ekkert stress, mig langaði bara
að gera
þetta vel. Pressan kemur bara frá mér sjá
lfum.“
Útrás fyrir kaldhæðni
Í raun hef ég ekki hugmynd um fjölda fylgjenda, enda bæði flókið og leiðin-
legt að fylgjast með tölum. Hins vegar finnst mér ágætt að vita ekki hversu
margir fylgjast með fíflaganginum mínum. Annars yrði ég bæði stíf og form-
leg og fyndist ég þurfa að kenna unga fólkinu góða og mæta siði. Sem ég
kann hvort eð er ekkert,“ segir Anna Margrét Gunnarsdóttir, Adhd-kisan,
sem segir sín snöpp helst byggja á eigin húmor. „Ég þarf útrás fyrir kald-
hæðnina. Ég bý nefnilega í Noregi og hér finnst engum ég fyndin. Ég þyrfti
helst að vera með pínulítið trommusett á mér til að geta látið fólk vita þegar
ég segi brandara og að það eigi nú að hlæja, mér til samlætis.“
Anna Margrét segist eyða meiri tíma í þetta en hún þori að viðurkenna.
„En ég er nú ekki alveg forfallin, ég snappa til dæmis aldrei þegar ég sef – það
er prinsipp!“ segir hún og bætir við að vanalega fái allt að flakka. „Ég eyði
sjaldnast neinu út, nema mér finnist ég hafa sagt eitthvað sérlega óviðeig-
andi. Hins vegar set ég yfirleitt alltaf litafilter á mynd-
irnar, enda er ég að reyna að sannfæra fólk um að ég
sé fullkomin og líf mitt sé litað blárri slikju.“
Uppáhaldssnapparar Önnu Margrétar eru aðrar
stelpur. „Þar á meðal eru Berglind Péturs @berglindp,
Hildur Ragnars @hildurragnars, Nanna Hermanns @
nannahermanns og Erna Hreinsdóttir @ernaferna.
„Þær eru brjálæðislega fyndnar, klárar og stór-
skemmtilegar. Ég hef alltaf haft gaman af því að sjá
fullorðið fólk láta eins og fífl og sjálfri líður mér best í
óformlegu umhverfi. Snapchat er því ljómandi góður
miðill fyrir slíka iðju.“
Vantaði tilgang
„Ég hef notað Snapchat í tæpa tvo mánuði og er komin með um tvö
þúsund fylgjendur,“ segir Hrefna Líf Ólafsdóttir sem lætur allt flakka
á snappinu sínu, hrefnalif. „Ég „edita“ mig aldrei og hef aldrei gert og
ef ég er mygluð þá ýti ég frekar undir mygluna. Ég hef voðalega litlar
hömlur og finnst ekkert tabú,“ segir Hrefna Líf sem tók þátt í #éger-
ekkitabú herferðinni í gegnum Snapchat og sagði fylgjendum sínum frá
lífi sínu með geðröskunum. „En til þess var byltingunni ýtt af stað. Svo
að fólk sem er í stöðu til að opna umræðuna nýti sér það. Ég vil ekki
vorkunn heldur samkennd. Það var bara gaman að fá að ræða þetta.
Fólk býst ekki við að ég sé veik en staðan er sú að ég er með geð-
hvarfasýki og þótt ég eigi fullt af vinum og æðislega fjölskyldu þá hefur
mig vantað tilgang. Snapchat hefur verið besta endurhæfingin. Ég fæ
aldrei neitt neikvætt til mín í gegnum Snapchat. Það eru allir virkilega
almennilegir. Kannski vegna þess að ég legg mig fram um að svara öll-
um sem senda mér. Sumum finnst skrítið að ég svari, eins og ég sé eitt-
hvað ósnertanleg en mér finnst svo skrítið að fólk sé virkilega að senda
eitthvað á mig. Þetta er gaman fyrir báða aðila.“