Morgunblaðið - 03.12.2016, Page 1

Morgunblaðið - 03.12.2016, Page 1
L A U G A R D A G U R 3. D E S E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  284. tölublað  104. árgangur  FUGLAR OG ENGLAR ÚR TRÉ ÓTRULEG ORKA OG UPPLIFUN JÓLATÓNLEIKAR MÓTETTUKÓRSINS 46GLERAUGU MEÐ TRÉUMGJÖRÐUM 12 Jólauppskriftirnar eru á jolamjolk.is dagar til jóla 21 KAUPTU MIÐA Á WWW.DAS.IS EÐA Í SÍMA 561 775751.000 VINNINGAR DREGNIR ÚT Á ÁRINU!  Metumferð var í nóvember síðast- liðnum. Aldrei fyrr hefur sést jafn mikil umferðaraukning á hringveg- inum á einu ári og nú. Umferðin jókst um 11,3% samanborið við sama mánuð í fyrra. Þetta er mesta aukning milli nóvembermánaða síð- an árið 2007. Alls fóru 61.098 ökutæki á degi hverjum um mælisniðin sextán á hringveginum í nóvember, sam- kvæmt upplýsingum frá Vegagerð- inni. Í fyrra voru ökutækin 54.893 eða 6.205 færri en nú. Mikil umferð var einnig á höfuð- borgarsvæðinu í nóvember og mældist mismikil aukning í öllum mælisniðum Vegagerðarinnar. Á hverjum degi óku að meðaltali 156.094 bílar um götur höfuð- borgarsvæðisins. Í sama mánuði í fyrra voru þeir 143.355 eða rúm- lega 12.700 færri á hverjum degi. Alls voru 278.344 bifreiðar af öll- um stærðum og gerðum á skrá hjá Samgöngustofu í gær. Þar af var 228.641 bifreið á númerum. »4 Umferðarmet var slegið í nóvember Umferðin Þyngist ár frá ári.  Petsamo, nýj- asta skáldsaga Arnaldar Indr- iðasonar, er söluhæsta bók síðustu viku, samkvæmt lista sem Félag ís- lenskra bókaút- gefenda birti í gær. Hún er líka söluhæsta bók ársins hingað til. Á Bóksölulistanum er Petsamo Arnaldar í fyrsta sæti, Aflausn eftir Yrsu Sigurðardóttur í öðru sæti og Pabbi prófessor eftir Gunnar Helgason í þriðja sæti. Söluhæstu ævisögur eru Tví- saga: móðir, dóttir, feður eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur, Elsku Drauma mín eftir Vigdísi Gríms- dóttur og Heiða - fjalldalabónd- inn eftir Steinunni Sigurðar- dóttur. Arnaldur efstur Arnaldur Indriðason Mikil er eftirvænting barnanna á leikskólanum Drafnarsteini eftir jólasýningunni sem haldin er ár hvert. Leikkonan Þórdís Arnljótsdóttir bregð- ur sér í hlutverk Grýlu í leiksýningunni Leikhús í tösku og að sögn leikskólastjórans Elínar Mjallar staddir sýninguna vegna samstarfsverkefnis þeirra og leikskólans Drafnarsteins sem ber heit- ið Áskoranir við að kenna nýsköpun í leikskólum. Að sögn Elínar voru þeir mjög hrifnir af Grýlu og sögum hennar af jólasveinunum. Jónasdóttur er það fastur liður á aðventunni að fá Þórdísi með töskuna sína. „Hún hefur komið til okkar í tugi ára og alltaf hlakka krakkarnir jafn mikið til,“ segir Elín. Að þessu sinni voru starfsmenn frá leikskóla í Rúmeníu einnig við- Árleg sýning Þórdísar Arnljótsdóttur vekur lukku á Drafnarsteini Grýla segir börnunum skemmtilegar sögur Morgunblaðið/RAX „Þetta er nær einstakt og við erum líklega að fara að sjá lengstu upp- sveiflu í lýðveldissögunni,“ segir Ás- geir Jónsson hagfræðingur við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til þess að Seðlabanki Íslands birti í gær bráðabirgðayfirlit um greiðslu- jöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórð- ungi 2016 og stöðu þjóðarbúsins í loks sama ársfjórðungs. Þar kemur meðal annars fram að erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.040 milljörðum kr. í lok áðurnefnds tímabils, en skuldir 3.980 milljörð- um. Hrein staða við útlönd var því já- kvæð um 60 milljarða kr. eða því sem nam 2,6% af vergri landsfram- leiðslu. „Erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð í fyrsta sinn frá því að mælingar hóf- ust,“ segir í til- kynningu Seðla- banka Íslands. „Við erum enn að sjá fram á gríðarlegan stíganda í ferðaþjónustunni, sem keyrir kerfið áfram, svo það gæti verið töluvert eftir,“ segir Ásgeir enn fremur. „Nettóskuldir lækkuðu um 30 ma.kr. eða sem nam 1,3% af VLF á milli ársfjórðunga. Hrein fjármagns- viðskipti leiddu til um 129 ma.kr. bættrar erlendrar stöðu þjóðarbús- ins,“ segir í tilkynningu bankans. Hagstæður um 100 milljarða Þá kemur þar einnig fram að við- skiptajöfnuður hafi mælst hagstæð- ur um 100,4 milljarða kr. á ársfjórð- ungnum samanborið við 32,5 milljrða fjórðunginn á undan. Er þetta mesti afgangur af viðskiptajöfnuði frá upp- hafi mælinga, samkvæmt upplýsing- um frá Seðlabanka Íslands. »11 Lengsta uppsveifla í lýð- veldissögunni blasir við  Hrein staða þjóðarbúsins við útlönd jákvæð um 60 milljarða Túristar Erlendir gestir skipta miklu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.