Morgunblaðið - 03.12.2016, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.12.2016, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2016 10. janúar 1946 siglir farþega- skipið Laxfoss sína fyrstu ferð til Vestmannaeyja. Um borð er ung- ur maður, Sigmundur Andrésson frá Smiðshúsum á Eyrarbakka. Þetta er fallegur dagur, blanka- logn og Eyjarnar standa í vatni. Það er smá snjóföl yfir bænum er skipið leggst að Básaskerbryggju sem öll iðar af lífi. Ungi maðurinn spyr til vegar, hvar hann finni Hótel Berg? Það er ekki laust við að hann stingi dálítið í stúf þar sem hann gengur, nokkuð áber- andi haltur, austur Strandveginn. Afi minn, Simmi bakari, er 23 ára þegar hér er komið sögu. Hann ólst upp á Eyrarbakka við mikla fátækt og aðeins 10 ára gamall var hann lagður inn á spít- ala í kjölfar óhapps er hann féll af hestbaki. Mjaðmarliður skemmd- ist og lá hann á Landspítalanum í þrjú og hálft ár í gipsi frá ökkla upp að brjósti. Þegar Simmi hafði legið rúm tvö ár á spítalanum lést móðir hans og tók hann fráfall hennar afar nærri sér. Þessi erf- iða lífreynsla mótaði afa og kenndi honum að treysta umfram allt á sjálfan sig. Eftir spítalavistina vann hann ýmsa verkamannavinnu á Bakk- anum og stundaði líka sjóinn frá Þorlákshöfn og Sandgerði. Tví- tugur hóf Simmi nám í bakaraiðn hjá Lárusi Andersen, bakara á Eyrarbakka. Lárus og Simmi sömdu síðan um að hann fengi að ljúka námi í nýtískulegra bakaríi hjá Magnúsi Bergssyni, bakara- meistara í Magnúsarbakaríi í Vestmannaeyjum, en Lárus hafði unnið hjá Magnúsi. Þegar Simmi bankaði á dyrnar á Hótel Berg kom ung og falleg kona til dyra. Simmi spurði eftir Magnúsi bakarameistara en stúlkan svaraði: „Ert þú maður- inn sem á að byggja ofninn?“ „Nei, ég kem utan af Eyrarbakka og á að klára að læra hérna í bak- aríinu,“ sagði Simmi. Unga dam- an lét sér fátt um finnast og kall- aði á föður sinn. Teningunum er kastað og ör- lögin ráðin. Ástin tók stuttu síðar völdin hjá Simma og Bíbí og varði hjónaband þeirra í 66 ár en amma lést árið 2013. Afi sagði síðar um ömmu: „Hún er konan sem opnaði mér dyr og átti eftir að verða mér mikill áhrifavaldur og hamingja gegnum lífið.“ Afi og amma ráku Magnúsar- bakarí með miklum myndarskap. Ég man hvað það gladdi þau þeg- ar ég hóf störf hjá föður mínum í bakaríinu og fór að læra fjöl- skylduiðnina. Þau bjuggu þá á efri hæð bakarísins og það gaf mér mikið að geta átt í daglegum samskiptum við þau. Afi Simmi var einhver fróðasti maður sem ég hef hitt og maður kom nánast aldrei að tómum kof- unum hjá honum. Hann sagði skemmtilega frá og var sjálfur sérstaklega skemmtilegur. Afi var alla tíð róttækur í hugsun og vildi að allir hefðu jöfn tækifæri. Lífreynsla afa á hans yngri ár- um herti skrápinn og var hann lít- ið fyrir að bera tilfinningar sínar á torg. Eftir því sem árin færðust yfir upplifði maður þó meira mýkri hliðar hans og þá gafst tækifæri til að kynnast honum betur og skilja hann. Það voru forréttindi fyrir okk- ur krakkana að eiga Simma og Bíbí fyrir afa og ömmu. Það var alltaf gott að vera hjá þeim og betri ömmu og afa er varla hægt að hugsa sér. Við Sara erum líka þakklát fyrir að dætur okkar skyldu fá að njóta samvista og visku langafa og langömmu langt fram á táningsárin. Takk fyrir allt, kæri afi minn. Sigurjón Andrésson. Ég var 15 ára þegar ég kynnt- ist Simma, afa hans Sigurjóns míns. Það eru sannkölluð forrétt- indi að fá auka-afa og -ömmu eins og ég gerði þegar ég kynntist Simma og Bíbí. Við Simmi urðum strax góðir vinir og hef ég kallað hann afa Simma alveg síðan. Afi Simmi var mér og mínum alltaf einstaklega góður og það eru margar dýrmætar minningar sem koma upp í hugann. Heim- sóknirnar á Vestmannabrautina þar sem endalaust af kökum og gotterí var dregið fram líkt og það væri fermingarveisla. Þau hjónin voru höfðingjar heim að sækja og það var sérlega skemmtilegt að spjalla við þau. Ég man vel þegar ég kom í fyrsta skipti með Sigur- jóni á Vestmannabrautina, ástin og virðingin á milli Simma og Bíbíar var einstök og aðdáunar- verð. Simmi var einn best lesni ein- staklingur sem ég hef hitt og við áttum ófáar samverustundirnar þar sem við ræddum um áhuga- verðar bækur. Simmi var glæsi- legur maður. Hann hafði ákveðnar skoðanir á hlutum en líka sérstakt lag á því að vera ósammála og koma skoðunum sínum á framfæri, án þess að særa eða gera lítið úr skoðunum annarra. Dætur okkar Sigurjóns voru sannarlega heppnar að eiga lang- afa eins og afa Simma. Þær áttu fallegt og gott samband við hann og ógleymanlegar eru stundirnar þegar hann var að kenna þeim mjög ungum að tefla. Undanfarin ár hafa heimsóknirnar verið á Hraunbúðir og ætíð var jafn gam- an að koma til afa Simma, spjalla um alla heima og geima, en alltaf um áhugaverðar bækur. Mér er efst í huga þakklæti þegar ég hugsa um afa Simma. Þakklæti fyrir að hafa kynnst honum og eignast auka-afa, þakk- læti fyrir hvað hann var góður við okkur og dætur okkar, þakklæti fyrir allt sem hann hefur kennt okkur og þakklæti fyrir alla vel- vildina. Minningin um afa Simma mun lifa. Kærar þakkir fyrir allt, elsku afi Simmi. Sara Guðjónsdóttir. Sigmundur Andrésson bakari var höfðingi í lund, og höfðingleg- ur að vallarsýn þegar hann stóð beinn í hægra fótinn. Laglegur maður og svipmikill. Hann eltist vel, hélt viti sínu og lífsgleði fram á hinstu daga. Eyrbekkingur var hann, með listamannsæð, efldi og tók þátt í margvíslegu menning- arlífi á ævi sinni. Ég var í æsku eins og heim- ilisköttur í Magnúsarbakaríi, Hótel Berg eða Tungu eins og húsið hét, og man enn alla króka og kima þar þótt langt sé um liðið og húsið horfið undir storkið hraun. Yfir því rausnarmikla heimili var góður svipur og Magn- ús gamli Bergsson, tengdafað- irinn, bakari og útgerðarmaður, var eins og lávarður þessa seturs. Í þetta hreiður íhaldsins kom svo gauksungi, rúmlega tvítugur sósíalisti. En sambúð þeirra Sig- mundar og hins ljúfa Magnúsar, eins af forustumönnum sjálfstæð- ismanna, var í vinsemd og alla tíð með virðingu á báða bóga, friður í húsi. Þótt Sigmundur yrði fyrir því lífsóláni í æsku að fá meinsemd í vinstra fót eftir slys, og gengi skakkur upp frá því, lét hann þau örlög aldrei beygja sig, stóð jafn- fætis öllum sem hann átti skipti við. Spítalavistin var að sönnu erf- ið ungum dreng en gaf færi á að næra andann með lestri og list- nautn sem mótaði hann alla ævi. Bakaraneminn frá Eyrar- bakka sótti til Magnúsar Bergs- sonar í Vestmannaeyjum. Bíbí, dóttir Magnúsar, og síðar eigin- kona Sigmundar, lýsti eitt sinn fyrir mér stundinni þegar knúið var dyra austan megin í Tungu; hún fór fram, leist ekki sérlega vel á komumann en rétti honum þó höndina. Þá gnast í örlagaþráð- um. Hvorugu gat á því augnabliki komið í hug að á stéttinni stæði síðar höfðingi þessa húss, né var þá fyrir sjónum þeirra mynd sem var tekin 60 árum síðar af þeim aldursprýddum og umsetnum af- komendum og tengdabörnum. Sigmundur Andrésson tók daginn mjög snemma, sýndi ein- stæðan dugnað í starfi, rak Magn- úsarbakarí með góðum afgangi, gætinn og hafði einn manna lykil að peningaskápnum. Um sextugt söðlaði hann um, keypti gamalt hús sem hann nefndi Spörvaskjól og tók að binda inn bækur, selja eldri skræður og hafði bókaupp- boð. Þar varð brátt athvarf helstu kvista bæjarins. Starfsævi sinni lauk hann á Byggðasafni Vest- mannaeyja. Sigmundur skrifaði mikið, æskuminningar frá Eyrarbakka, króníku um mannlíf í Eyjum og fleira, flest í handritum. Hann rit- aði kynstur af bréfum og færði dagbók lengi ævinnar. Þess utan teiknaði hann og málaði. Eins og margir sósíalistar var hann esper- antisti, en trúði ekki á anda, svo ég viti, eins og flokksfélagar hans margir. Sigmundur var félagshneigður og hvarvetna hrókur alls fagnað- ar, hafði gleði og gaman af lífs- vatninu og tók stundum rispur, en Bíbí fyrirgaf honum þær, kannski ekki daginn eftir en innan fárra dægra, sagði hann sjálfur. Það er ljúft að minnast samtala við þennan fróða og lífsreynda mann. Og aldrei gleymast toddý- partíin hjá Ingólfi á Oddsstöðum þar sem Sigmundur varð ungur á ný og framdi dans undir írsku hljómfalli. Nú er þessi góði vinur kvaddur sem lífgaði svo marga stund. Guð veiti honum fagra hvíld. Helgi Bernódusson. Sigmundur Andrésson, al- mennt kallaður Simmi eða Simmi bakari, óx úr grasi á Eyrarbakka í heimskreppunni miklu þegar at- vinnuleysi var talsvert og margt fólk bjó við skort. Tíu ára gamall lendir Simmi í slysi, fær upp úr því berkla í fótinn og verður að dveljast á sjúkrahúsi í Reykjavík í þrjú og hálft ár. Það voru ekki bjartar framtíðarhorfur fyrir 13 ára dreng að koma heim í miðri kreppu með bæklaðan fót sem setti skorður við vali á atvinnu auk þess sem móðir hans hafði látist meðan á sjúkrahúsdvöl hans stóð. Í andstreymi hlaut Simmi að bogna en brotnaði aldrei. Hann var ákveðinn í því að vinna bug á öllum erfiðleikum og sýna sjálfum sér og öðrum að hann gæti staðið fyrir sínu. Hann lærði brauðgerð hjá Lúðvík Jónssyni á Eyrar- bakka en síðasta árið hjá Magnúsi Bergssyni í Vestmannaeyjum. Lúðvík hafði numið bakaraiðn í Magnúsarbakaríi og taldi að nema sínum myndi gagnast vel að ljúka náminu þar. Simmi kom til Vestmannaeyja í ársbyrjun 1946 og fór ekki aftur. Fljótlega tókust góð kynni með honum og Dóru Hönnu Magnúsdóttur Bergsson- ar. Þar hjálpaði eflaust til að Dóra Hanna, oft nefnd Bíbí, tók að sér að veita þessum bakaranema til- sögn í bókfærslu. Simmi stóðst prófið með sóma og Bíbí og Simmi urðu hjón. Þau lifðu í farsælu hjónabandi næstu 66 ár. Saman unnu þau ötullega að vexti og við- gangi Magnúsarbakarís, fyrst sem starfsmenn, síðar sem eig- endur. Samhent voru þau í að hlúa að velferð afkomenda og annarra ættingja og þegar kom að velferð Vestmannaeyja og íbúa þeirra þá komu sameiginlegir kraftar þeirra að góðu liði. Þegar annað þeirra var nefnt var nánast sjálfgefið að hitt væri nefnt um leið. Simmi var víðlesinn og fróður um margt. Hann var réttur mað- ur á réttum stað þegar hann starf- aði í nokkur ár sem safnvörður Byggðasafns Vestmannaeyja. Hann lærði bókband og batt inn fjölda bóka af þeirri vandvirkni sem honum var töm. Það starf fór fram í Spörvaskjóli, litlu húsi við Vesturveg, sem kalla hefði mátt menningarmiðstöð Simma bak- ara. Þar voru daglegar umræður nokkurra heimspekinga úr bæj- arfélaginu þar sem settar voru fram djúpspakar hugmyndir um lausnir á vandamálum. Simmi tók þátt í starfi margra félaga, svo sem í samtökum bakarameistara og esperantista. Reyndar voru flestar utanlandsferðir Bíbíar og Simma á vegum þeirra samtaka. Simmi var öflugur félagi Tafl- félags Vestmannaeyja og meðal helstu skákmanna í Eyjum. Hann tók einu sinni sæti á framboðs- lista sósíalista til bæjarstjórnar í Eyjum. Lítið meira varð um virkt stjórnmálastarf en ljóst var að hugsjónir um frelsi, jafnrétti og bræðralag lifðu með honum alla ævi, allt frá uppvaxtarárum á Eyrarbakka. Sigmundur Andrésson var frá- bær félagi, ávallt hlýr og vin- gjarnlegur. Hann naut þess að spjalla og heyra fréttir og frá- sagnir af mönnum og málefnum. Sjálfur var hann sagnabrunnur, spjall við Simma var í senn upp- fræðsla og ánægja. Nú þegar Simmi bakari leggur út á djúpið mikla þakka ég góðum dreng ævilanga vináttu. Halldór S. Magnússon. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EDDA INGIBJÖRG EGGERTSDÓTTIR, Barðastöðum 11, Reykjavík, áður Stigahlíð 91, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á Land- spítalanum 27. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 6. desember klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. . Guðný Edda Gísladóttir, Guðjón Kr. Guðjónsson, Eggert Árni Gíslason, Petra Bragadóttir, Halldór Páll Gíslason, Anna Helga Höskuldsdóttir, Gunnar Þór Gíslason, Sólveig Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og ómetanlega vináttu og aðstoðuðu okkur vegna andláts FRIÐJÓNS FANNARS HERMANNSSONAR sem lést 30. október. Sérstakar þakkir til allra vina Friðjóns sem sáu um tónlistarflutning við útförina og erfidrykkjuna og gerðu daginn svo fallegan. . Margrét Gígja Þórðardóttir, Þórunn, Eysteinn, Emil og Sóla, Hermann Jóhannesson og Elísa Friðjónsdóttir, Hermann og Hjörvar. Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, VALGEIR BJARNI GESTSSON rafvirkjameistari, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 23. nóvember. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 7. desember klukkan 13. . Kristín Erla Jónsdóttir, Jón Óskar Valgeirsson, Benný G. Valgeirsdóttir, Vilhjálmur Karl Karlsson, Jóh. Ellen Valgeirsdóttir, Ingólfur Kristinsson, Gestur Ingi Valgeirsson, Anna Lilja Valgeirsdóttir og aðrir aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR M. SNORRADÓTTIR, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 29. nóvember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 5. desember klukkan 15. . Sigríður Bjarnadóttir, Sigrún Jóhannesdóttir, Jón Sigurðsson, Pálmi Jóhannesson, Soffía Kjaran, Sigurður Jóhannesson, Halla Hafdís Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR JÓNASDÓTTUR. . Erla Snorradóttir, Guðjón Weihe, Sigmundur J. Snorrason, Hrafnhildur Snorradóttir, Gísli Hauksson, Bára Snorradóttir, Viðar M. Jóhannsson, Bryndís Snorradóttir, Eiríkur Rafnsson, Ásdís Snorradóttir, Guðlaugur Þór Böðvarsson, Birna Snorradóttir, Jón Halldórsson, Snorri Birgir Snorrason, Petra Dís Magnúsdóttir, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.