Fréttatíminn - 15.07.2016, Side 47
„Það er virkilega gaman að vinna
með leikmönnum, ungum sem
eldri, og hjálpa þeim að verða betri.
Þú kynnist mörgu skemmtilegu
fólki, bæði leikmönnum, foreldr
um, og svo þjálfurum í þínu félagi
og öðrum liðum. Mér hefur alltaf
þótt sérstaklega skemmtilegt að fara
í keppnisferðir út á land eða út fyrir
landsteinana,“ segir Orri Þórðarson,
þjálfari meistaraflokks kvenna í FH.
Orri segir framtíð kvenna
knattspyrnu vera bjarta. „Það er
gott grasrótarstarf í félögunum víða
um landið og ég held að fótbolti sé
vinsælasta íþróttagreinin hjá stelp
um. Við eigum gott landslið og efsta
deild kvenna er í mikilli sókn. Um
fjöllun hefur aukist jafnt og þétt og
vonandi heldur sú þróun áfram.“
Hvaða ráð hefur þjálfarinn fyrir
upprennandi knattspyrnustelpum?
„Setja sér raunhæf markmið og
vinna að því að ná þeim. Verið dug
legar að æfa ykkur sjálfar. Það þarf
ekkert að fara í einkaþjálfun til þess
að verða betri í fótbolta, það eina
sem þarft er bolti. Leitið ráða hjá
þjálfurum ykkar hvernig þið getið
æft ykkur heima til þess að verða
betri í ákveðnum þáttum leiksins.“
Orri leggur áherslu á mikilvægi
þess að borða góðan kvöldmat og
hvílast vel. „Á leikdegi á að borða
góðan morgunmat og byrja að hugsa
um leikinn. Passa sig á að gleyma
ekki neinu, mæta á réttum tíma,
hlusta á þjálfarann og leggja sig alla
fram fyrir liðið. Gefa af sér til liðsins
með því að tala inn á vellinum; leið
beina, hrósa og hvetja. Og síðast en
ekki síst að njóta þess að spila fót
bolta með vinkonum sínum.“
Öflugt grasrótarstarf
leiðir bjarta framtíð
Nafn: Orri Þórðarson
Starf: Þjálfari meistaraflokks
kvenna í FH.
Menntun: Grunnskólakennari,
UEFA A-réttindi.
Áhugamál: Tónlist, útivera, fót-
bolti, stjórnmál, umhverfisvernd,
bókmenntir og margt fleira.
Met í að halda á lofti: Eitthvað í
kringum 1500–2000, minnir mig.
Gló · Hæðasmára 6 · Kópavogi · Sími 553 1111 · www.glo.is · #GloMeUp · @gloiceland
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
kjúklinga
vefjur og borgarar
…símamótið 20167 | amk… FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2016
Verið duglegar
að æfa ykkur
sjálfar. Það þarf ekk-
ert að fara í einka-
þjálfun til þess að
verða betri í fótbolta