Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 03.11.2016, Side 28

Fréttatíminn - 03.11.2016, Side 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 3. nóvember 2016 5 vinsælustu hlutir IKEA Erfitt getur verið að velja hvað á að fá sér í IKEA Til að komast hjá kvíðakasti yfir því hvað á að kaupa nýtt fyrir heimilið hefur Fréttatíminn ákveðið að aðstoða við valið með því að af- hjúpa fimm vinsælustu hlutina í IKEA: 1 HEIMABAKARINN pítsudeig Mest keypti hluturinn í Ikea, hver hefði giskað? Hver elskar ekki að fara í Ikea og kaupa pítsudeig? Pítsa er aldrei slæm ákvörðun sama hvar þú ert. Sérstaklega gott er að henda í eina heimapítsu, það gerir lífið betra. 2 GLIMMA sprittkerti Sprittkerti eru nauðsynleg eign á hverju heimili. Nú þegar vetur- inn er að banka upp á fer hver sál í Ikea að kaupa birtu og hlýju í kuldanum. 3 ANTAGEN uppþvottabursti Gott er að eiga fleiri en einn upp- þvottabursta, alltaf geta orðið uppþvottaslys og þá er ekki nóg að eiga bara einn svo það er ekki skrítið að það sé þriðji vinsælasti hluturinn í sænska himnaríkinu. 4 ISTAD plastpokar Skipulagið getur ekki orðið betra þegar það kemur að matar- afgöngum. Af hverju að nota box fyrir afganginn af spaget- tíinu þegar þú getur notað poka? 5 FRAKTA innkaupapoki Flestir Íslendingar hafa nýtt sér bláa burðarpokann til að flytja búslóð sína í flutningum eða nota til að ferja jólapakkana. Góðir vin- ir/pokar geta gert kraftaverk. Losaðu þig við IKEA- kvíðahnútinn! Ekkert leiðinlegra en að vera illt í fótunum á Airwaves Andrea Röfn Jónasdóttir, verslunarstjóri dömuverslunar Húrra Reykjavík, mælir með hinni fullkomnu flík fyrir hinn almenna Airwavesfara. Mikilvægt er að klæða sig vel fyrir stærstu tónlistarhátíð haustsins, Iceland Airwaves. Bæði er gott að klæða sig vel í skammdeginu svo manni verði ekki kalt og svo er auka plús ef maður lítur vel út í leiðinni. „Ég myndi klárlega segja góðir strigaskór. Airwaves kvöldin geta byrjað snemma og endað seint og þá er mikilvægt að vera vel skó- aður. Það er ekkert leiðinlegra en að vera illt í fótunum þegar mað- ur vill vera einbeita sér að hafa gaman.“ Mikilvægt að vera vel skóaður á tónlistarhátíðum eins og Iceland Airwaves Einmana hvalur gefur út sína fyrstu breiðskífu Hljómsveitin Milkywhale syngur um lífið, dauðann og ástina. „Við erum að leggja lokahönd á plötuna sem kemur út í lok mánað- ar eða byrjun þess næsta,“ segir Melkorka Sigríður, annar meðlima hljómsveitarinnar Milkywhale, sem gefur út sína fyrstu plötu á næstu misserum og spilar jafnframt á tón- listarhátíðinni Iceland Airwaves sem þegar er hafin. Hljómsveitin spratt út frá dans- verki fyrir Reykavík Dance Festical þar sem Melkorka steig fram sem einmana hvalur sem átti erfitt með að feta sig í gegnum lífið en hún fékk Árna Þór, hinn hljómsveitarmeðlim Milkywhale, til liðs við sig varðandi tónlistina. „Í kjölfarið tókum við þátt á Airwaves í fyrra, fengum mjög góðar viðtökur og spiluðum meðal annars á Hróarskeldu í framhaldinu.“ „Og nú erum við að leggja loka- hönd á okkar fyrstu breiðskífu og ef allt gengur að óskum kemur hún í lok þessa mánaðar eða í byrjun næsta. Þetta er allt súperpopp, ekta danstónlist. Bæði eldri lög og nýrri á plötunni. Við vinnum með ljóðræna texta, metafórur um lífið og dauð- ann, ástina og einmanaleikann.“ Þess má geta að rithöfundurinn Auður Ava Ólafsdóttir semur texta hljóm- sveitarinnar. „Einmanaleikinn er gegnumgang- andi þema í okkar textum því við settum Milkywhale upprunalega upp sem einmana hval eða stelpu sem er alltaf að leita að ástinni. En svo kemur andstæðan inn í þessum lög- um sem eru hressleiki og skemmti- legheit, algjör danslög. Leikum okk- ur að andstæðum í texta og tónlist.“ „Löngu eftir að við byrjuðum með Milkywhale þá rakst ég á grein í New York Times um að vísindamenn hefðu fundið þann hval sem var mest einmana í heiminum. Ástæðan fyrir því var að hún eignaðist engan vin né elskhuga því hún syngur á annari tíðni en allir aðrir hvalir. Þegar ég las þetta hugsaði ég: Vá! Milkywhale er til.“ Þess má geta að hljómsveitin hef- ur sent frá sér nýtt myndband með laginu Rhubarb Girl sem sjá má í fréttinni á vefsíðu Fréttatímans. Þá spilar hljómsveitin á Hlemmur Squ- are klukkan 16 í dag á Airwaves-há- tíðinni. | bg Einmana hvalur eða stelpa í leit að ástinni. Mynd | Milkywhale Smiðsbúð 10 | 210 Garðabær Sími: 554 4300 | www.solskalar.is hf Sólskálar Svalaskjól Gluggar og hurðir

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.