Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 03.11.2016, Side 30

Fréttatíminn - 03.11.2016, Side 30
Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Um daginn úrbeinaði ég átján framparta á lambi,“ segir Garðar á meðan hann sker með beittum hníf í gegnum lambastykki. Garðar hefur verið lærlingur í kjötiðn í þó nokkra mánuði undir handleiðslu Árna Vigfúsar kjötiðnaðarmeistara. Áður var Garðar táknmálskennari í Danmörku, „Dagurinn byrjar klukkan 6 en þá byrjum við á að gera hakkið og kjötfarsið tilbúið og komum því í umferð,“ segir Árni. „Þá er ég búinn að drekka tvo kaffibolla,“ skýtur Garðar inn í og hlær. „Ég drekk svona tíu kaffi- bollla á dag.“ „Síðan fer maður í úrbeiningu en þá úrbeinar mað- ur til dæmis nauta- vöðva eða frampart sem vega 70-120 kíló. Við úrbeiningu notast maður við beitta hnífa og klæðist brynju og hönskum úr áli,“ segir Árni en í sömu andrá gengur annar starfsmaður kjöt- vinnslunnar framhjá og ræðir við Garðar á táknmáli. „Bróðir minn er heyrnarlaus. Kærastan mín og nokkrir vinir mínir líka. Ég tala þess vegna táknmál og er stundum látinn túlka í vinnunni en þrír starfs- menn eru heyrnarlausir.“ „Ég plataði hann eiginlega í kjötiðn en hann var að kenna táknmál í Danmörku. Síðan gekk það ekki og hann kom að vinna hérna á skrifstofunni. Ég sagði bara: Af hverju ferðu ekki bara á samning? Og hann gerði það.“ „Kosturinn við þetta nám er að maður byrjar að vinna klukkan 7 og klárar um þrjúleytið, þannig að ég hef tíma til að vera með strákn- um mínum. Síðan getur maður spjallað við samstarfsmenn sína á meðan maður er að úrbeina,“ segir Garðar. 30 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 3. nóvember 2016 Árni Vigfús kjötiðnaðarmaður og  Garðar lærlingur. Mynd | Rut Blóði drifnir hnífar og brynjuklæði í vinnunni Meistarinn og lærlingurinn Fyrsti bulsudagur íslenska lýðveldisins Fyrsti bulsudagur íslenska lýðveldisins verður haldinn há- tíðlegur í dag. Svavar Pétur tónlistarmað- ur, Prins Póló, segir daginn verða árlegan viðburð. Mynd | Hari „Þetta er ákveðinn óður til hljóm- sveitarinnar Yo la tengo, amerísku nýbylgjusveitarinnar. Hún á lag sem heitir Autum Sweater eða haustpeysa og er gríðarlega gott lag. Við ákváðum vinirnir þarna árið 2012 að hittast og fara í haust- peysur og það var í rauninni eini tilgangurinn með þessum fögnuði. Við vildum bara hittast utan dyra niður í Þingholtum og viðra okkur og peysurnar og fagna haustinu,“ segir Svavar Pétur, söngvari hljómsveitarinnar Prins Póló. Bulsudagur íslenska lýðveldis- ins og hauspeysufagnaður verður haldinn hátíðlegur á Hlemmi Squ- are í dag, fimmtudaginn 3. nóv- ember: „Það kom sú hugmynd að endurtaka leikinn núna, 4 árum síðar. Þetta verða tónleikar og myndlistarsýning og svo fögnum við grænmetisbulsunum og haust- peysunum okkar. Sindri Már Sig- fússon í Sin Fang og Örvar í Múm hafa haldið árlegar haustmyndlist- arsýningar þannig það er gríðar- legur fengur að fá þá inn í þetta mengi.“ Er þetta fyrsti bulsudagur lýðveldisins? „Já og nú verður þetta bara ár- legur viðburður. Það er heppilegt að þetta detti inn á Iceland Airwa- ves, þá eru nú einhverjar hræður í bænum til að fagna bulsunum.“ Spila allir í haustpeysum? „Ég á von á því. Ég skora á bæði listamenn og áhorfendur að mæta í sínum fegurstu haustpeysum. Haustpeysa er teygjanlegt hugtak og ýmislegt opið í því og geta allir sem vilja tekið þátt.“ | hdó Tónlistarmaðurinn Prins Póló skorar á borgarbúa að fagna með sér og vinum sínum í uppáhalds haustpeysunni sinni og fá sér saman bulsu. Svona lítur malakoff út áður en það fer í plastumbúðir. Mynd | Rut Blóðið drýpur á gólf við úrbeiningu. Mynd | Rut Áður en kjötið er úrbeinað verður starfsfólk að klæða sig í brynju og hanska úr áli. Mynd | Rut Notar verk af sam­ sýningu með Erró sem gluggatjöld. „Það á að rífa húsið niður á næsta ári. Byggja hótel,“ segir Úlfur myndlistarmaður þegar hann tekur á móti blaðamanni á Mýrargötu þar sem hann hefur vinnuaðstöðu. „Dagurinn byrjar hér um níu og er til hádegis. Þá fer ég að vinna á frístundaheimili í Grafarholti. Maður er enn ekki farinn að lifa á myndlistinni. Svo fer ég heim að borða og kem aftur á kvöldin.“ Þessa dagana vinnur Úlfur að sýningu sem haldin verður í Duus- húsi í Keflavík. „Sýningin er innan árs þannig ég hef smá tíma. Í verk- inu sem ég er að vinna núna og er á veggnum er ég að vinna með ákveðna karaktera, Draumaliðið í bandarískum körfubolta, Franken- stein og Boris Johnson til dæmis.“ Hann segir að ekki væsi um sig í vinnustofunni en þurfi stund- um að verjast sólinni sem skín inn um gluggann og hefur því komið tveimur verkum fyrir eina glugga stofunnar þar sem sjá má verk sem hann sýndi á samsýningu með Erró fyrir rúmu ári síðan en hluti verka af þeirri sýningu eru á sýningu í Vínarborg um þessar mundir. „Ég hef unnið dálítið með kvikmyndir og myndlist og á þessari mynd sem er fyrir glugganum stendur EXIT eins og við útganginn í bíósölum.“ Úlfur segist ekki finna fyrir ein- manaleika þegar vinni að mynd- listinni. „Mér finnst gott að vera einn, með útvarp eða eitthvað. Þá get ég einbeitt mér algjörlega. Hér er ég ekki nettengdur eða með síma. Á reyndar ekki síma.“ „Leitt að missa vinnustofuna á næsta ári. Er ekki byrjaður að pæla hvar ég verð eftir það. Myndlistar- menn ganga ekki að vinnuaðstöðu hvar sem er. Draumurinn er að vera með eigið verkstæði þar sem ég hef nóg pláss.“ |bg Vinnustofan: Rifin niður á næsta ári fyrir hótel Úlfur Karlsson á vinnustofu sinni. Vinstra megin má sjá verkið sem hann vinnur í þessa  dagana. Mynd | Rut Jólablaðið Þann 24. nóvember auglysingar@frettatiminn.is 531 3310 Endilega hafið samband við okkur til að vera með

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.