Fréttablaðið - 14.02.2017, Page 4

Fréttablaðið - 14.02.2017, Page 4
- Vanræktu ekki viðhaldið - Allt til kerrusmíða Veður „Þær voru dásamlega góðar. Brakandi ferskar og fínar,“ segir Guðný Sigríður Ólafsdóttir, kennari á Dalvík, en hún tók upp fulla skál af nýjum gulrótum á sunnudag. Slíkt er auðvitað frekar fjarstæðukennt enda ekki algengt að gulrætur láti á sér kræla í miðjum febrúarmánuði. „Ég hef ekki einu sinni  tekið upp svona stórar gulrætur fyrr,“ segir hún en gulræturnar kúrðu í beðinu austan við hús hennar á Dalvík. Mikill hiti hefur verið á landinu að undanförnu og fór hitinn upp í 19,1 gráðu við Eyjabakka en Trausti Jónsson veðurfræðingur á þó eftir að staðfesta það. Hæsti staðfesti hit- inn í gær var á Seyðisfirði þar sem hitinn sló í 13,7 gráður. Enda hafa margir nýtt sér góða veðrið og farið í golf, sótt kindur á fjall, vegir hafa verið heflaðir og mörg skólabörn nýttu sér góða veðrið með því að vera  á stuttermabol í frímínútum. Séu ve f my n d avé l a r Vegagerðarinnar skoðaðar má sjá að það er varla snjóarða á eða við  vegi lands- ins. „Þetta er óvenju- legt. Tíðin er óvenjuleg,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, fagstjóri almennrar veðurþjónustu hjá Veðurstofu Íslands, og bætir því við að þetta stefni í að verða sögulegur febrúar hvað hita varðar. Fyrir ári var forsíðu- mynd Fréttablaðsins af krökkum að ganga úr skólanum í gríðarlegu fannfergi enda voru a l h v í t i r dagar í Reykjavík alls 27 í febrúar í fyrra. Snjó- magn var einnig í meira lagi, það mesta í febrúar síðan árið 2000. Alhvítt var allan febrúar í fyrra á Akureyri. Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að fyrir helgi hafi byggst upp svokölluð fyrirstöðuhæð sem hafi setið föst og beint köldu lofti frá Austur-Evrópu yfir Bretland meðal annars. Hlýtt loft hafi komið langt sunnan úr höfum og vegna fyrirstöðuhæðar- innar ekki komist neitt annað en til Íslands. Hefði þetta gerst að sumar- lagi hefði hitinn líklega farið yfir 25 stig. benediktboas@365.is Ferskum gulrótum skaut upp á Dalvík í vorveðrinu í febrúar Guðný Sigríður, kennari á Dalvík, smakkaði á brakandi ferskum gulrótum sem hún tók upp um helgina. Hitinn fór upp í 19,1 gráðu við Eyjabakka, en það er óstaðfest af Veðurstofu Íslands. Tíðarfarið er vissu- lega óvenjulegt, segir veðurfræðingur, og bætir við að það stefni í sögulegan mánuð hvað hita varðar. Þær voru dásamlega góðar. Brakandi ferskar og fínar. Guðný Sigríður Ólafsdóttir Höfuðborgarsvæðið er nánast autt af snjó. Fyrir ári var staðan önnur. Fréttablaðið/Eyþór Gulræturnar sem Guðný tók upp. Mynd/Guðný Forsíða Frétta- blaðsins 16. febrúar 2016 — M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * — 3 9 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag skoðun Bleiki skatturinn, sykur-neysla og GoRed. 12 - 15 sport Slæmur dagur í fyrra en draumadagur í ár. 16 Menning Það styttist í Illsku. 22-25lÍfið Hafdís Helgadóttir leikur í Fyrir framan annað fólk. 28-30plús 1 sérblað l fólk *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Munndreifitöflur250 mg Pinex® Smelt H V Í T A H Ú S IÐ / A c t a v i s 5 1 1 07 2 öryggi „Það verður að hvetja til þess að unnið sé hratt. Það er ljóst að fjölg- un ferðamanna er meiri en nokkur gerði ráð fyrir. Þetta er risastórt verk- efni sem margir þurfa að koma að,“ segir Víðir Reynisson, verkefnastjóri hjá embætti lögreglustjórans á Suður- landi, en ofan í mikla umræðu í sam- félaginu um öryggismál ferðamanna, í tengslum við dauðaslys í Reynisfjöru, staðfesti Ferðamálastofa í gær að fjölg- un erlendra ferðamanna milli áranna 2014 og 2015 var tæp 30 prósent.Víðir, sem um árabil gegndi starfi deildarstjóra almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, segir málið ekki snúast um viðbrögð á einum tiltekn- um stað í kjölfar slyss eins og í Reynis- fjöru. Þörfin nái til landsins alls – vissu- lega verði að huga að öryggismálum og aðgengi á ferðamannastöðum sér- staklega, en undir sé öll löggæslan í landinu, uppbygging samgöngumann- virkja, fjarskipti, regluverkið þurfi að gaumgæfa og jafnframt komi þetta inn á svið heilbrigðisþjónustunnar, og tekur dæmi. „Það er fjölmargt sem við þurfum að gera. Við þurfum að drífa okkur, en við þurfum líka að vanda okkur,“ segir Víðir. „Þeir sem nú fjár- festa í ferðaþjónustu hljóta að hafa miklar áhyggjur af neikvæðum áhrif- um umræðu um slysahættu á Íslandi. Það verður að nálgast þetta heild- stætt, og ég finn fyrir vilja stjórnvalda til þess,“ segir Víðir og tekur undir að aðgerðir til bóta vísi allar á mikil fjár- útlát, svo skiptir tugum milljarða. Hins vegar verði stjórnvöld að vinna eftir tillögum sem byggjast á nákvæmri greiningarvinnu, og bendir á að innan- ríkisráðherra hóf vinnu í samvinnu fjölmargra aðila í ágúst í fyrra sem miðar að því að auka öryggi ferða- manna og viðbragðsaðila hér á landi. Tölur Ferðamálastofu sýna að tæp- lega 1,3 milljónir ferðamanna komu hingað til lands um Keflavíkurflugvöll á síðasta ári, miðað við 970 þúsund ferðamenn árið áður. Ferðamönnum í janúar fjölgaði um tæp 24 prósent milli ára. – shá Viðvörunarbjöllurnar klingja sem aldrei fyrrOfan í umræðu um öryggi erlendra ferðamanna staðfestir Ferðamálastofa að fjölgun ferðamanna á milli ára var þrjátíu prósent. Sérfræðingur segir að treysta verði og byggja upp flesta innviði í landinu til að mæta fjölguninni. 1.289.140 ferðamenn komu hingað til lands 2015. Þeir sem nú fjárfesta í ferðaþjónustu hljóta að hafa miklar áhyggj-ur af neikvæðum áhrifum umræðu um slysahættu á Íslandi. Víðir Reynisson, verkefnastjóri hjá lögreglustjóra Suður-lands Fjöll í Fellunum Ungir Breiðhyltingar leika sér í himinháum snjósköflum sem hafa myndast við mokstur síðasta misserið. Búast má við að skaflarnir hafi minnkað ögn í rigningu gærdagsins. Fréttablaðið/SteFán náttúra Gífurlegur og sívaxandi hávaði undir yfirborði sjávar ógnar velferð sjávarspendýra. Þetta segir Azzedine Downes, forseti Alþjóð- lega dýraverndunarsjóðsins.„Fólk gerir sér ekki grein fyrir vandanum vegna þess að hann er undir yfirborði sjávar en dýrin kveljast. Við gætum aldrei þolað viðlíka hávaða,“ segir hann. Boranir við Grænland hafa helst á áhrif vel- ferð hvala í nágrenni við Ísland en Downes bendir einnig á að hvala- skoðunarferðir geti valdið trufl- unum. – kbg / sjá síðu 6 Hvalir kveljast vegna hávaða lÍfið „Ég hef þekkt Mörtu Maríu í tuttugu ár og hún sagði þetta í hita leiksins og bara til gamans,“ sagði Sölvi Fannar Viðarsson um bón ÍGT-dómarans Mörtu Maríu Jónasdóttur um að hann myndi skella sér úr skyrtunni áður en hann flytti atriði sitt. Sölvi Fannar flutti gjörning við ljóð samið sér-staklega fyrir þáttinn. – gjs / sjá síðu 28 Sölva Fannari sárnaði ekki samgöngur Sveitarstjórn Borgar- byggðar lýsir yfir vonbrigðum með fyrirætlanir um að felldar verðir niður fjárveitingar frá ríkinu  til þeirra vegaframkvæmda sem voru fyrirhugaðar 2017 í Borgarbyggð samkvæmt Vegaáætlun 2016. „Daglega aka íbúar varasama malarvegi á leið til skóla og vinnu. Ennfremur knýr mikil aukning ferðafólks á með auknum þunga að unnið verði að nauðsynlegri upp- byggingu vegakerfis í sveitarfélag- inu. Sveitarstjórnin hvetur þing- menn kjördæmisins til að standa vörð um hagsmuni Borgarbyggðar og Vesturlands í þessu efni þannig að nauðsynleg uppbygging og viðhald vegakerfisins dragist ekki enn frekar en orðið er,“ segir í ályktun. – gar Afturkalla vegafé í Borgarbyggð Í borgarfirði. Fréttablaðið/VilHElM stjórnsýsla Úrskurðarnefnd um Viðlagatryggingar gagnrýnir Við- lagatryggingasjóð harðlega í úrskurði sínum um málefni Friðarstaða sem kveðinn var upp í desember. Telur nefndin málið hafa tekið óeðlilega langan tíma. Framkvæmdastjóri Við- lagatryggingar segir það mat byggt á reginmisskilningi. „Úrskurðarnefndin telur að end- ingu óhjákvæmilegt að gera athuga- semdir við meðferð Viðlagatrygg- ingar Íslands á málinu, allt frá því að það kom fyrst til kasta stofnunarinnar í júní 2008. Telur úrskurðarnefndin að það verklag sem og sá tími sem farið hefur í meðferð málsins sé vart viðunandi,“ segir í úrskurðinum. Telur nefndin verklagið ekki teljast til góðrar stjórnsýslu og bætur til kæranda komi mjög til álita en dóm- stólar þurfi að skera úr um það. „Þetta hefur tekið gríðarlega langan tíma og hefur töfin kostað mig yfir tíu milljónir króna sem Viðlagatrygging vill ekki greiða fyrir,“ segir Diðrik Sæmundsson. „Eins og þetta horfir við mér eftir allan þennan tíma þá hef ég þá tilfinningu að eignir fólks séu í raun ótryggðar fyrir svona tjónum,“ bætir Diðrik við. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar Íslands, segir úrskurð nefndarinnar byggðan á misskilningi. „Málið hefur verið jafn lengi hjá úrskurðarnefnd- inni sjálfri og hjá okkur. Við höfum sýnt fram á það að við höfum alla tíð verið að vinna að málinu. Málið hefur aldrei legið hjá okkur óhreyft,“ segir Hulda Ragnheiður. „Persónu- lega finnst mér þetta hins vegar mjög langur tími og vil að málin taki styttri tíma. Hins vegar eru mál stjórn- sýslulega mjög flókin þegar uppi er ágreiningur um nánast öll efnisatriði málsins.“ sveinn@frettabladid.is Tók á níunda ár að klára mál hjá Viðlagatryggingu eftir skjálfta DómsmÁl Tvær konur voru fyrir viku sakfelldar í Héraðsdómi Norð- urlands eystra fyrir þjófnað. Kon- urnar höfðu brotist inn í fatasöfn- unarkassa nytjamarkaðar á vegum Hjálpræðishersins. Brotið átti sér stað í október síðastliðnum. Báðar konurnar játuðu brot sín skýlaust fyrir dómi, lýstu iðrun en þær höfðu skilað þýfinu. Hvorug þeirra hefur áður gerst brotleg við lög. Með hliðsjón af því að verðmæti hinna stolnu muna lá ekki fyrir var ákvörðun refsingar kvennanna frestað og mun hún falla niður haldi þær skilorð í eitt ár. Málsvarnarlaun verjanda ann- arrar konunnar og málskostnaður, 210.800 krónur, greiðast úr ríkis- sjóði. – jóe Stálu frá hernum umferðaröryggi Fjórðungur öku- manna yngri en 24 ára segist aka hraðar en 101 km/klst. á þjóðvegum landsins. Þrír af hverjum fjórum í sama aldurshópi segjast aka yfir leyfi- legum hámarkshraða að jafnaði. Þetta má lesa úr niðurstöðum könnunar á umferðarhegðun almennings sem Gallup framkvæmdi fyrir Samgöngustofu. Slík könnun hefur verið gerð árlega frá árinu 2005. Niðurstöðurnar eru að mestu svip- aðar og síðustu ár. Hlutfall þeirra sem aka á yfir 90 km/klst. að jafnaði lækk- ar lítillega á milli ára en hlutfall þeirra sem aka á yfir 100 km/klst. hækkar, er nú sjö prósent og hefur aldrei verið hærra. Meðalhraði hækkar lítillega og er tæplega 96 km/klst. Könnunin sýnir einnig að konur bera meiri virðingu fyrir hámarks- hraða en rúmlega helmingur kvenna segist halda sig fyrir innan 90 km/klst. Hjá körlum er hlutfallið 43 prósent. Úr slysaskýrslum undanfarinna ára má lesa að jafn miklar líkur eru á að kona valdi slysi og karl. Slys af völdum karlkyns ökumanna eru hins vegar líklegri til að vera alvarleg. Um helmingur ökumanna verður sjaldan eða aldrei var við eftirlit lög- reglu. Það hlutfall hefur hækkað tölu- vert frá árinu 2013 en þá var það 36 prósent. – jóe Ungir ökumenn aka áberandi hraðast Fáir ökumenn verða varir við eftirlit lögreglu. Fréttablaðið/antOn brinK Telur úrskurðar- nefndin að það verklag sem og sá tími sem farið hefur í meðferð málsins sé vart viðunandi. Úrskurðarorð frá úrskurðarnefnd um viðlagatryggingar 1 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r i ð j u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 A -D 1 3 4 1 C 3 A -C F F 8 1 C 3 A -C E B C 1 C 3 A -C D 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.