Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Blaðsíða 2

Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Blaðsíða 2
Kvennalistinn — nýr valkostur í Kópavogi Ágæti Kópavogsbúi. Þann 11. þessa mánaðar verður bærinn okkar 35 ára. Það telst víst ekki hár aldur bæjarfélags. Upphaflega voru hér eingöngu sveitabæir svo og nokkrir sumarbústaðir. íbú- um Reykjavíkur fjölgaði ört og voru margar fátækar fjöl- skyldur í húsnæðisvandræðum. Lóðir í Reykjavík voru og dýrar. Fluttu þá margir suður í Kópavog og settust að í sum- arbústöðunum. En fólkinu hér fjölgaði einnig ört svo að brátt var hægt að stofna hér bæjarfélag. Þeir Kópavogsbú- ar sem hafa búið hér frá fyrstu tíð hafa séð bæjarfélagið þróast á stuttum tíma úr óskipulögðu sumarbústaðalandi í 16000 manna bæ. Bær barnanna — Rödd kvennanna Kópavogur státar sig af því að vera bær barnanna og mikill félagsmálabær. Við Kvennalistakonurnar sem hittumst skömmu eftir áramót og fórum að ræða saman um ástand mála hér vorum sammála um að svo væri ekki lengur. Vissulega hefur margt gott verið gert í Kópavogi til þess að hér mætti verða gott mannlíf. Getur verið að því fólki sem stjórnað hefur bænum undanfarin ár sé farin að förlast sýn. Hlusta þeir kannski ekki nægilega á kon- urnar í flokkunum sínum, konurnar sem bera ætíð hag barna sinna fyrir brjósti. í bæjarstjórn sitja nú ellefu bæjarfulltrúar, þar af þrjár konur. Greinilegt er að hér eins og annars staðar gætir áhrifaleysis kvenna við stjórnun bæjarins. í Kópavogi eru boðnir fram fjórir framboðslistar auk Kvenna- listans. Á engum þessara lista skipar kona efsta sætið. Hver er ástæðan? Gæti ástæðan verið sú að þeir fjórir flokkar sem standa að umræddum listum eru byggðir upp af körlum, að þar er unnið eftir leikreglum karla og út frá forsendum karla. Nú má enginn skilja orð okkar svo að sjónarmið og reynsla karla eigi ekki rétt á sér, það eiga bara sjónarmið og reynsla kvenna líka. Annað get- ur ekki talist eðlilegt, bæinn byggja jú bæði karlar og konur. Niðurstaða okkar er því sú að betur má ef duga skal og teljum við það ábyrgðarleysi að bjóða ekki fram til bæjarstjórnar í næst- komandi kosningum. Markmið Kvennalistans Markmið Kvennalistans er að gera reynslu, viðhorf og menn- ingu kvenna sýnilega og að stefnumótandi afli í samfélaginu til jafns við karla. Öll mál koma okkur konum við. Við vinnum ekki eingöngu fyrir sjálfar okkur, við vinnum fyrir alla, börn, konur og karla. Hlutverk kvenna er að fæða af sér líf og hefur umönnun barna, aldraðra og sjúkra svo til eingöngu verið í höndum kvenna. Kvennalistinn leggur mikfa áherslu á að þessi umönnunarstörf séu metin að verðleikum. Fjölskyldumál eru ofarlega í hugum okkar. Undirstaða bæjar- ins er fólkið sem í honum býr. Til að fólkinu líði vel þarf það að hafa mannsæmandi aðstæður til að geta byggt upp traust fjöl- skyldubönd. Fjölskyldan þarf að hafa þau skilyrði að geta haft at- vinnu, örugga gæslu fyrir börnin sín og haft þak yfir höfuðið án þess að kollvarpa fjárhagsafkomu sinni. ÚTGEFANDI: Samtök um Kvennalista í Kópavogi Ábyrgð: Guöbjörg Emilsdóttir, Hulda Haröardóttir Póstfang: Hamraborg 20 A, 200 Kópavogur Setning og prentun: Prentþjónustan hf., Prentberg hf. Einnig leggjum við mikla áherslu á atvinnuuppbyggingu í bæn- um og þá með sérstöku tilliti til atvinnutækifæra fyrir konur. Umhverfis og skipulagsmál eru ofarlega í hugum okkar og leggjum við áherslu á að heildaráætlun verði gerð varðandi frá- gang gatna í bænum, lokið verði við hafin verk og að gerð verði útivistarsvæði fyrir alla aldurshópa í öllum hverfum. Það skiptir máli með hvaða hætti og hvaða ákvarðanir eru tekn- ar í bænum okkar og því leggjum við áherslu á að stofnuð verði hverfasamtök og að valddreifing og lýðræði verði aukið. Vagga barna og blóma Orð Þorsteins Valdimarssonar ,,Vagga börnum og blómum“ viljum við gera að orðum okkar. Við viljum að bærinn okkar verði í raun vagga barna og blóma. Um leið og við óskum Kópavogsbúum gleðilegs sumars, viljum við hvetja ykkur til að kynna ykkur stefnu og markmið Kvenna- listans og það sem við höfum fram að færa í málefnum bæjarins. Kjósandinn á valið, enginn á atkvæðin nema sú eða sá sem stend- ur með atkvæðaseðilinn í kjörklefanum, það ert þú kjósandi góð- ur, þitt er valið. Kvennalistinn er einn af valkostunum. Barnasmiðjan LEIKTÆKI • LEIKFÖNG HÚSGÖGN • FÖNDURVÖRUR KÁRSNESBRAUT108 SfMI 43003 Hjá okkur færðu sumarleikföngin og leiktækin fyrir öll ,,börn“ á heimilinu. 2

x

Kvennalistinn í Kópavogi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennalistinn í Kópavogi
https://timarit.is/publication/1229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.