Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Síða 5

Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Síða 5
„Alltmittlíf erævintýri og saga,“ segir Rannveig Löve, ,,heiöursborgarinn“ á Kvennalistanum. Hún tekur á móti mér í fall- egri íbúð sinni, einni af iitlu íbúðunum sem reistar hafa verið fyrir aldraða á Voga- tungureitnum svokallaða. Þar hefur hún búið í rúmt ár en bjó áður lengi í Hraun- tungu. Rannveig er kennari að mennt, kenndi við Mela- skólann í 30 ár og kom þar upp fyrsta íslenska lesverinu að sænskri fyrirmynd. Þegar hún varð 55 ára fékk hún af- slátt á kennslu en þá varð hún í vandræðum með tím- ann og dreif sig í Háskólann og tók BA-próf í dönsku og almennri bókmenntafræði. Nú vinnur hún á Fræðslu- skrifstofu Reykjanesum- dæmis við gerð könnunar- prófa fyrir börn; litlu börnin sem eiga erfitt með að fóta sig á námsbrautinni. Og ekki nóg með það, Rannveig hefur verið ötul síðustu vikurnar að vinna fyrir Kvennalistann í Kópavogi og skipar heiðurs- sætið á listanum. Rannveig er því ,,heiðursborgari“ okkar kvennanna en hún seg- ist vilja vera það í fleiri en einum skilningi. Er það satt, Rannveig? ,,Já ég vil verða heiðurs- borgari. Ég vil að bæjarfélagið heiðri þá sem komnir eru á minn aldur og segi við okkur: ,,Nú skuluð þið sjálf fá að ráða hvað þið gerið við peningana ykkar á meðan þið eruð enn heil heilsu og getið notið lífs- ins. Við viljum láta ykkur njóta þess hvað þið hafið verið góðir borgarar áratugum saman, ver- ið skilvís og greitt samvisku- samlega ykkar hlut til samfé- lagsins." Þetta vil ég að bæjar- stjórinn segi við okkur. Ég er ekkert að setja út á það sem gert er fyrir gamla fólkið í bænum en ég vil ekki láta mata okkur eða tala við okkur eins og börn. Hins vegar á að skapa okkur tækifæri til að velja sjálf. Mig langar til að ferðast, mig langar til að sjá allan heim- inn en ég hef ekki efni á því þó að ég hafi fremur góð laun.“ Það er greinilegt að þú ert ekkert á því að setjast í helgan stein á nœstunni, jajhvel þó að þú verðir 'ekki , ,heiðursborg- ari“. En segðu mér svolítið jrá foreldrum þínum og uppvexti. „Foreldrar mínir hétu Eirík- ur Einarsson og Sigrún Bene- dikta Kristjánsdóttir og ég er elst af 15 börnum þeirra, 15 systrum sem allar lifa nema tvær. Ég er fædd á Bíldudal, þó bjuggum við í Reykjavík í nokkur ár áður en faðir minn gerðist bóndi en það var það sem hugur hans stóð til. Þess vegna fluttist fjölskyldan suður með sjó þegar ég var 7 ára. Þar vorum við til ársins 1935 en þá keyptu foreldrar mínir nýbýlið Réttarholt í Sogamýri. Ég er því í rauninni sveitabarn og hef alltaf kunnað best við mig í ró- legu og persónulegu umhverfi. Þess vegna leið mér strax svo vel í Kópavogi. Sumum finnst þetta vera svefnbær og ekki nógu mikið um að vera en mér finnst það gott. Kópavogur er góð sveit.“ Nú gekkst þú menntaveginn eins og sagt er, fékkstu til þess hvatningu frá foreldrum þín- um? ,,Ef ég hefði mátt ráða hefði ég farið í MR en um það var ekki að ræða, það var alltof fjarlægt — og fjarstæða fyrir stelpur að láta sig dreyma um það. Þær fengu í besta falli að fara í gagnfræðaskóla. Ég var einn vetur í Flensborg, það var meðan við vorum suður með sjó en eftir að við komum til Reykjavíkur var ekkert gert til þess að ég færi í skóla. Ég var samt alltaf ákveðin í því að læra eitthvað sem ég gæti lifað af. Ég vildi ekki verða eins og konurnar sem ég sá allt um kring. Þær voru svo sem ekkert óánægðar en þær litu aldrei upp í bókstaflegri merkingu. Það var barn á hverju ári og þær gátu aldrei um frjálst höf- uð strokið. Ég vildi verða eins og kennslukonan mín góða, Viktoría Guðmundsdóttir frá Gýjarhóli. Hún var allt öðru- vísi en hinar konurnar, teinrétt og fallega búin. Hún rabbaði við alla og var ákaflega vel lát- in. Hún var vel menntuð og vel lesin, kunni erlend tungumál, t.d. las hún fyrir okkur úr sænskri bók um merkan land- könnuð. Hún las eins og það væri íslenska, ekkert hik eða hnökrar í málinu. Þetta ætlaði ég að gera, verða landkönnuð- ur eða fornleifafræðingur. Ég varð raunar hvorugt en komst nálægt því að láta drauminn rætast þegar ég fór í þjóðfræði í Háskólanum 55 ára gömul. Það var mikið ævintýri, kennsluskyldan hafði lækkað um nokkra tíma á viku og þá vissi ég ekkert hvað ég átti að gera við allan þennan tíma.“ Varstu þá orðin kvenrétt- indakona strax á barnsaldri? ,,Ég hlýt að hafa verið það þó að ég hafi ekki gert mér grein fyrir því. Og þó, ég veit að ég var það. Ég ætlaði að lifa sjálfstæðu lífi og standa karl- mönnum jafnfætis." En þegar þú giftist, hvernig fór þá með sjálfstæðisdraum- inn? ,,Það var óumflýjanlegt á þeim tíma að laga sig að hefð- inni og aðstæðum. Konan hef- ur verið þjálfuð í því í gegnum aldirnar. T.d. kom ekki til greina að gift kona og móðir héldi áfram námi, hún varð að hætta eða fresta námi. Það á samt að vera hægt að lifa sjálf- stæðu og athafnasömu lífi í hjónabandi og það gerði ég þegar mér óx þroski og þrek. Nú ert þú komin á kafí kosn- ingastarf jyrir Kvennalistann hér í bœ, ertu kannski að byrja á nýju ævintýri? ,,Já, kannski er ég að því og satt að segja finnst mér allt mitt líf vera ævintýri og saga. Ég er svo sem ekki á kafi í kvenna- starfi en ég hef fylgst með Kvennalistanum frá fyrstu tíð og ég dáist að þessum hug- rökku og staðföstu konum sem láta hvorki ógna sér né hræða og hvika ekki frá trú sinni á góðan málstað.“ Ég kveð þessa skemmtilegu konu og óska þess að hún geti látið ferðadrauminn rætast. Kannski finnur hún ekki nýjar álfur, hún þarf þess ekki, ætli innri auðurinn — arfurinn frá móður hennar, beri hana ekki um víðar lendur enn um sinn og færi henni ný ævintýri og nýjar sögur. Helga. 5

x

Kvennalistinn í Kópavogi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennalistinn í Kópavogi
https://timarit.is/publication/1229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.