Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans í Vestfjarðakjördæmi - 01.04.1987, Qupperneq 10
10
PILSAÞYTUR
Rödd úr Djúpinu
Kvennalistinn hefur boðið
fram á Vestfjörðum. Það hlaut
að koma að því, að vestfirskar
konur létu eitthvað til sín heyra
og tækju á þeim málum, sem
brenna á þeim, ekki síður en
konum annars staðar á landinu.
Hvers vegna er Kvennalist-
inn með sérframboð? Lengi
virtist mér sjálfsagt og eðlilegt,
að konur jafnt sem karlar skip-
uðu sér hlið við hlið í öllum
stjórnmálaflokkum. En veru-
leikinn er að þrátt fyrir allt tal
um jafnrétti, þá er mikill munur
þar á og langt frá því að konur
fái tækifæri til að koma fram
áhugamálum sínum. Það er líka
bitur staðreynd, að störfin, sem
konur vinna eru mikið minna
metin til launa, sama hvað er.
Hjúkrun og alls konar umönn-
un er orðin láglaunastarf, sem
enginn karlmaður léti bjóða sér.
Sama er að segja um kennslu,
þar sem konur eru í meirihluta.
Fiskvinnslan er borin uppi af
konum, og þær eru fyrst sendar
heim, ef um einhvern samdrátt
er að ræða. Til skamms tíma var
vinnuframlag sveitakvenna
metið aðeins brot af vinnu
bóndans. Er þó sannast sagna,
að þær ganga jafnt honum til
allra verka, og vinna allt sem til
fellur við hlið hans. Og að sjálf-
sögðu taka þær á sig hans hlut,
þegar á þarf að halda. Þar á of-
an eiga útivinnandi konur, og
þar tel ég sveitakonur hiklaust
með, tvöfaldan vinnudag, þar
sem heimilisstörfin bætast við,
þó þau séu ekki metin til starfs-
reynslu. Og húsmóðir sem fer
að vinna við ræstingar, fær
lægra kaup en þær sem hafa
farið á námskeið í ræstitækni og
fá starfsheitið ræstitæknar.
Það hafa orðið geysilegar
breytingar í þjóðfélagi okkar á
aðeins 20—30 árum, og enn eru
þær svo stórstígar að við liggur
að tilvera manns riði til falls.
Búháttabreytingum þeim sem
boðaðar eru af landbúnaðar-
ráðuneyti, virðist stefnt á svo
stóran hluta bænda, að til
auðnar horfi. Það er til lítils að
gefa út í rauðu kveri alls konar
tillögur og vísbendingar um at-
vinnugreinar, sem eiga að koma
í staðinn fyrir sauðfjárrækt og
kúabúskap.
Allir, nema þeir sem unnu
þennan óskapnað, ýmist draga
hann sundur og saman í háði
eða svíður sárt sú ósvífni, sem
fólki er sýnd með svo fáránlegum
uppástungum, að til einskis
verði jafnað. Afleiðingar eru
þær að fólk, hvort sem það vill
eða ekki, safnast á suðvestur-
hornið. En áfram sogast fjár-
magnið utan af landi og það
sem fæst til baka er afhent með
ólund og eftirsjá. Það ber víst
enginn á móti því, að Vestfirðir
eiga stóran hlut í þjóðarfram-
leiðslunni. Og hvað fáum við í
staðinn? Sjúkrahjúsið á ísafirði
er ekki fullgert enn eftir 15 ár.
Vilmundur landlæknir kom
gamla sjúkrahúsinu upp á 18
mánuðum og voru þó öðruvísi
aðstæður. Vegakerfi okkar er
eins og allir vita og við liggur að
bæði sveitir og sjávarþorp fari í
auðn. Þó eigum við eða höfum
átt þingmenn og ráðherra, fleiri
en einn og fleiri en tvo, en
gagnsemi þeirra virðist tak-
mörkuð.
Ný sjónarmið og nýtt gildis-
mat verða að koma fram, og
Kvennalistinn hefur sýnt það
og sannað á þeim fjórum árum,
sem hann hefur átt setu á Al-
þingi, að það er þess virði að
styðja hann og efla og fjölga
þingkonum hans. Það þarf átak
til að rífa sig upp úr venju-
bundnum farvegi, að hugsa
sjálfstætt og láta sér ekki nægja
að nöldra inni í eldhúsi. Að
standa á rétti sínum og vinna að
því, að konur fái jafnan rétt á
við karlmenn.
Sýnum, hvers við erum
megnugar og gerum hlut
Kvennalistans á Vestfjörðum
það stóran að eftir verði tekið.
Ása Ketilsdóttir.
Vinsamlegast pantið myndatökuna tímanlega
í SÍma 3860 eða 4460 (opið alla daga frá kl. 9 til 12 og 13 til 18)
Verð á fermingarmyndatöku: 7 prufumyndir í stærð 9X13 cm
og ein stækkuð mynd 18X24 cm að eigin vali er innifalin
fyrir aðeins kr. 3.300.- og að sjálfsögðu allt í lit.
ATH. PRUFUMYNDIRNAR ERU TILBÚNAR
STRAX NÆSTA DAG! _ Æ /
STUDIO LEO UÓSMYNDASTOFA HAFNARSTRÆTI 7 II. HÆÐ
JíldlO