Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1947, Síða 5

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1947, Síða 5
HJÚKRUNARKVENNABLAÐIÐ 3 stundum fyrr en aðrir vinnandi menn? Hjá flestum sjúklingum kemur það sér líka illa að vera rifnir upp mjög snemma að morgninum. Oft eiga þeir erfilt með að sofna að kvöldi eða fram cftir nóttu og svefn þeirra ef til vill værastur þegar þeir eru vaktir árla dags til þess að þvo sér og mæla sig. Allan daginn er vanalega eitt- hvað um að vera og litið næði til svefns. Óviðkomandi fólk setur upp meðaumkv- unarsvip, er það heyrir, live árla dagur- inn byrjar á sjúkrahúsunum, og munu margar ungar stúlkur hugsa sem svo, að hjúkrun geti varla verið svo eftirsóknar- vert starf að það borgi sig, að vcrða af einnar til tveggja stunda svefni alla daga, árum saman, sem þær annars gætu látið eftir sér við skrifstofustörf eða aðra vinnu. Mælir þá nokkuð með þessari tilhögun? Viða eru sjúklingarnir rifnir upp kl. 6—7 árd., og stundum byrjar næturvakt- in jafnvel fyrr, vekur börnin kl. 5 og' huggar sig við það, að þau muni sofna strax aftur. Þetta er talið nauðsynlegt til þess að sjúklingarnir séu hreinir, er þeir neyta morgunverðar. En fer þvotturinn þá ekki einmitt of snemma fram? Flest- ir sjúklinganna byrgja sig niður aftur og revna að sofna þar til kemur að því að búa um rúmin, og svo aftur þar til bor- inn er morgunvcrður. Þegar búið er að mæla sjúklinginn og Iiann búinn að þvo sér, kemur brált að þvi að búið sé um rúm og gólf þvegin til þess að alll sé hreint þegar morgun- maturinn kemur. Væri nú ekki notalegra fyrir sjúklinginn, að hann fengi fullkom- ið næði þar til rétt áður en borinn er morgunverður og honum ætlaður timi aðeins til að þvo sér og mæla sig? Þetta mundi vera fullt eins hagkvæmt hrein- læti, eins og það, sem tíðkað er mest, þótt alll liti ekki jafn snyrtilega út, þá væri þó ekki búið að þyrla upp ryki úr rúmfötum rétt fyrir máltíðina. Þó kæmu hér sennilega til greina undantekningar með veikustu sjúklingana, sem yrði að ætla nægan tíma til alls aðbúnaðar og matar, eftir þörfum þeirra og óskum. Ein ástæðan til þess að talið er nauð- synlegt að búið sé snemma um rúmin, er sú, að þessu sé lokið er stofuganga lækn- anna hefst. En hvers vegna er slíkt nauð- svnlegt? Þarf læknirinn nauðsynlega að sjá sjúklinginn sem bezt tilhafðan? Oft þarf læknirinn að róta við rúmfötunum og þarf þá að framkvæma umbúnað þeirra að nýju og er slíkt óþarfa umstang fyrir sjúklinginn. Auk þess er stofugang- ur lækna á mismunandi tíma og getur því ekki verið neinn sjálfsagður mæli- kvarði í þessum efnum. Það mun tíðkast víðast hvar, að hjúkr- unarkonur eða nemar gangi strax eftir morgunmat að frekari hreingerningu, svo sem afþurrkun, þvotti skolgólfanna, taln- ingu óhreinna rúmfata og spjara, og fleiru. Auðvitað þarf enga lijúkrunar- konu til að vinna slik störf. Væri heppi- legra að hún gæti notað þann tíma, sem fer lil slíkra starfa, til þess að stunda sjúklingana og gera ýmislegt fyrir þá, sem hún telur æskilegt, en fær oft ekki tíma til að sinna. A hinum minni sjúkrahúsum er nokkru öðru máli að gegna um þessa tilhögun, þar sem oftast eru aðeins ein eða tvær hjúkrunarkonur og þurfa þær að liafa lokið umbúnaði rúma og ýmislegu fyrir morgunmat til þess að geta svo sinnt ýmsum aðgerðum eða aðstoðað lækna við uppskurði. Þá er það heimsóknartíminn. Hérlendis líðkast að heimsóknartími sé daglega, einu sinni eða tvisvar, allt frá einni og liálfri klukkustund til tveggja og liálfrar samtals. Þótt sumir sjúkling- ar kunni vel samneyti við aðra menn, mun þó mörgum þeirra þykja heimsókn- artímarnir óþarflega langir og margir. Sjúklingurinn kemur á sjúkrahúsið til

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.