Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1963, Qupperneq 18
16
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Nú, en störfin á deildunum verða að ganga
jafnt fyrir sig, þó það séu jól, og það er veitt
kvöldkaffi og slíkt skeður ekki á hverjum degi.
En flestir eru svo saddir eftir jólamatinn, að
kvöldkaffið verður næstum óþarfa fyrirhöfn.
En það er ekki að spyrja að aganum á sjúkra-
húsunum. Kvöldvaktin veldur almennum von-
brigðum. Hún ætlast til að allir fari að sofa
á sama tíma og vant er. Það mætti halda að
þessir blessaðir hjúkrunarnemar, sem hér eru
í kvöld væru algjörir fáráðlingar, í það minnsta
illa að sér í fornum fræðum. Það var heilög
skylda að vaka á jólanótt hér áður fyrr, og það
væri nú ekki mikið, þótt ofboðlítið væri farið
eftir því ennþá. En það væri víst til of mikils
mælzt. Koddar eru hristir, gengið vel frá öllu
og við bjóðum góðar nætur. Og hjúkrunarkon-
umar koma á eftir með svefnlyf og þess háttar.
Ekki eru þær óákveðnari en nemamir og þá
vottar fyrir skilningi á atferli nemanna. Þeir
voru bara eins og fyrirmyndin bauð þeim.
En það eru sumir hér, sem þrá svefn, sem ekki
vill koma. Þeir biðja ekki um vökuna, en hún
kemur samt. Og jólanóttin verður þeim löng og
sár, full af örvæntingu.
Veðrið er milt og jörð er auð, rauð jól þetta
árið. Ljósin glitra og bílar þjóta eftir götun-
um. En á sjúkrahúsinu liggja þeir, sem kannske
aldrei framar eiga eftir að ganga um þessar
götur, eiga aldrei eftir að sjá ljósadýrðina nema
í fjarlægð. Á einni stofunni liggur sárþjáð kona.
Hún á aðeins einu sinni eftir að sjá gráan morg-
uninn læðast yfir bæinn. Nóttin kemur hljóðlát
og dimm, hin heilaga nótt.
E. t. v. vaka góðir englar við rúm sjúkling-
anna í nótt. Það heyrist ekkert fótatak og eng-
inn sést á ferli. En maður hefur svo sem einu
sinni verið barn og trúað því að guð væri ein-
hvers staðar uppi á himnum og stjörnurnar væru
augu hans, sem allt sjá og sólin sé sál hans,
sem vakir yfir okkur allan daginn til sólarlags.
Sigurveig Sigurðardóttir.
Laun hjúkrunarkvenna d mdnuði
Samkvæmt launalögum og lögum nr. 1/1959
og tilskipun 1961 að viðbættum 11,28%.
Skólastjóri Hjúkrunarskólans:
VI. flokkur: kr. 8.263,06
Skurðstofu- og röntgenhjúkrunarkonur:
X. flokkur: Næturvinnuálag:
1. ár .... kr. 5.611,46 kr. 10,58
2. ár .... — 5.981,37 — 11,27
3. ár .... — 6.351,46 — 11,97
Yfirhjúkrunar- og forstöðukonur á stærri stofn-
unum.
VII. flokkur:
1. ár ................ kr. 6.813,90
2. ár .................. — 7.291,84
3. ár .................. — 7.769,60
Yfirhjúkrunar- og forstöðukonur á minni stofn-
unum ásamt kennurum Hjúkrunarskólans.
VIII. flokkur:
1. ár ................ kr. 6.289,78
2. ár .................. — 6.783,05
3. ár .................. — 7.276,32
Deildarhjúkrunarkonur:
IX. flokkur:
1. ár .... kr. 5.827,34
2. ár .... — 6.305,11
3. ár .... — 6.783,05
Næturvinnuálag:
kr. 10,98
— 11,90
— 12,79
Heilsuverndarhjúkrunarkonur (sérmenntaðar):
IX. flokkur:
Bæjarhjúkrunarkonur: X. flokkur:
kr.
Aðstoðarh j úkrunai'konur:
XI. flokkur:
1. ár .... kr. 5.118,18
2. ár .... — 5.488,08 —
3. ár .... — 5.858,19 —
X. flokkur eftir 4 ár kr. 5.981,37 —
X. flokkur eftir 5 ár — 6.351,46 —
Næturvinnuálag:
9,65
10,35
11,05
11,27
11,97
Eftirvinna fastráðinna hjúkrunarkvenna:
Eftirv. Næturv.
Deildarhjúkrunarkonur ......... 67,84 90,45
Aðstoðarhjúkrunarkonur XI. fl. 58,59 78,12
Aðstoðarhjúkrunarkonur X. fl. . 63,52 84,68
Lausavinna hjúkrunarkvenna:
Fyrir 8 tíma vinnu á tímabilinu kl. 8—21 kr. 39,06
(dagvinna).
Fyrir 8 tíma vinnu á tímabilinu kl. 21—8 kr. 51,95
(næturvinna).
Sé unnið meira en 8 tíma í einu verða næstu 4
tímar kr. 58,59. Eftir það kr. 78,12.