Pilsaþytur - 31.03.1995, Blaðsíða 4

Pilsaþytur - 31.03.1995, Blaðsíða 4
VM Það er vont en það venst Tvöfalt vinnuálag kvenna er orðið stað- reynd á íslandi í dag, en flestar konur vinna fullan vinnudag, ásamt því að sjá um heimilishald. Þrátt fyrir jafnréttislögin frá 1976, sem kveða á um sömu laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf, þá hafa konur enn ekki laun til jafns á við karla. Getuleysi núverandi stjórnvalda er algert í þessum efnum og greinilegt að viljinn til þess að breyta er ekki fyrir hendi. Orsak- imar eru hefðbundin verkaskipting kynj- anna, segir fjármálaráðherra sallarólegur, meira en tilbúinn til þess að bíða í 100 ár til viðbótar eftir hugarfarsbyltingu og laungjafnrétti í kjölfar þess. Það er vont þegar óréttlæti venst... En hvar á að byrja? Getur ekki verið að lág laun kvenna séu einmitt ástæður þess, að ábyrgð á börnum og heimilishaldi hvíl- ir mest. á þeim. Það eru jú konur sem fá lægri laun og það kemur auðvitað í þeirra lilut að vinna minna, til þess að hafa tíma til þess að sinna þessum mikilvægu, en vanvirtu störfum. Launajafnrétti myndi gefa hjónum tækifæri til þess að deila ábygðinni á fjölskyldunni og konum tæki- færi til þess að njóta sín í vinnunni, í fé- lagsstörfum og í stjórnmálum. Einnig má segja að hin endalausa yfir- vinna lijá íslendingum þvingi konur til þess að sjá einar um heimilin, en oft kem- ur það í hlut karla að skaffa meira. Það er jú ekki hægt að framfleyta sér og sínum á þessum lágu grunnlaunum einum saman. Kvennalistinn vill uppstokkun á launa- kerflnu. Gnmnlaun verða að duga til fram- færslu og yfirvinna verður að minnka enda er það öfugsnúið að á tímum aukins atvinnuleysis, vinni sumir myrkranna á milli, en aðrir ekkert. Það þarf að stytta vinnuvikuna og koma á sveigjanlegum vinnutíma. Ókynbundið starfsmat þyrfti að gera, en þá eru störf metin á kerfisbundinn hátt út frá fjórum megin þáttum, þ.e. ábyrgð, áreynslu, vinnuskilyrðum og hæfni. Laun em síðan greidd út frá þessum sjónannið- um, en ekki eftir því hvort um hefðbundið kvenna- eða karlastarf sé að ræða. Langlundargeð kvenna er á þrotum. Við Kvennalistinn er eina stjórnmáiaaflið sem stendur markvisst vörð um hag kvenna og barna Ungt fólk á íslandi sern kýs nú t fyrsta sinn hefur alist upp vt það að til væri sérstakur kvenna- listi. í þeirra huga er hann sjalí- I sagður í umræðunni urn stjóm- mál Til þess að rnál Kvennalist- ans nái fram að ganga þarf hann stuðning kjósenda. viljum framsýnt þjóðfelag, þar sem allir hafa jöfn tækifæri til þess að njóta sín. Munum það, að launajafnrétti mun stuðla að betra lífi fólksins í landinu, jafnt kvenna sem karla. 8 0 « S o/'<}/e/n/t/tyítf* - fSc'/HHi/o f/i íslenskur heimilisiðnaður fyrir öll tækifæri. Urvalið og verðið kemur öllum á óvart Gallerí Sunnuhlíð Akureyri sími 11823 |H Kvennalistinn

x

Pilsaþytur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur
https://timarit.is/publication/1246

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.