Pilsaþytur á Suðurlandi - 01.04.1991, Side 3

Pilsaþytur á Suðurlandi - 01.04.1991, Side 3
„Konur hejðu átt að fara í stjóm. Þær fá miklu meiri áhrif í stjóm en utan stjóm- ar. Kvennalistinn hefur tap- að á því aðfara ekki í stjóm. Konur vilja ekki axla ábyrgð.“ Setningar eins og þessar koma oft í eyru okkar kvennalistakvenna og auð- vitað voru okkar fyrstu við- brögð þau að fara rækilega ofaní þessar fullyrðingar og ræða og athuga það hvort þær stæðust. En hvemig sem við nálguðumst þetta málefni þá komumst við alltaf að sömu niðurstöðunni. Okkar ábyrgð gerði það að verkum, að við komumst ekki í stjóm með hinum flokkunum fyrir 4 ámm síðan. í dag em eflaust allir sammála um það að lægstu launin em skammarlega lág. En það var einmitt á þessum punkti sem braut þegar verið var að vinna í stj ómarmyndunarviðræðum 1987. Þá var ekki pólitískur vilji fyrir þvi hjá hinum flokkunum að hækka lægstu launin þannig að þau yrðu ekki undir fram- færslumörkum. Kvennalist- inn fann eina leið til að svo mætti verða og hún var sú að binda það í lögum að laun yrðu ekki undir fram- færslumörkum. Þessu vildu hinir flokk- amfr ekki ljá máls á og síð- an hefur kaupmáttur lægstu launanna farið hriðversn- andi og nú tvö síðustu árin í skjóli þjóðarsáttar. SYSTURNAR Þœr sitja hérna báöar viö sœngurstokkinn minn þœr sitja hérna og bíða. Morgunskíman lœðist um litla gluggann inn, Ijósin blika víöa. Marta segir ákveðin: -Nú dugir ekkert droll, þú drífur þig á fœtur því mörgu er aö sinna. Þaö setur aö mér hroll og sálin í mér grcetur. María gluggaskýluna hœgt til hliðar tók og horföi yfir nesin. Hún liggur hérna alltaf þessi undarlega bók sem aldrei veröur lesin. Oddný Kristjánsdóttir í Ferjunesi í dag, núna rétt fyrir kosnlngar þá em allfr já- kvæðir gagnvart því að það þurfi að hækka lægstu launin. En þegar flokkamir em í stjóm og í aðstöðu til að gera eitthvað í þeim málum þá gerist ekkert. Ef pólitískur vilji væri fyrir því hjá stjómarílokk- unum að hækka lægstu launin þá á það að gerast þegar þessir flokkar em í stjóm en ekki bara rétt fyrir kosningar. Við styðjum það svo sannarlega að viðhalda þjóðarsátt en við leggjum til að henni verði kúvent á næsta kjörtímabili og að þeir sem hafa hærri laun en kr. 150.000 til 200.000 á mánuði leggi nú sitt til þjóð- arsáttarinnar en þeir lægst launuðu fái að vera stikkfrí. Er pólitík eitthvert óbreyt- anlegt fyrirbæri sem er bara svona eða hinsegin. Við kon- ur sættum okkur ekki við að svo sé. Við höfum komið inn í pólitíkina með nýjar og veigamiklar áherslur þar sem bömin, fjölskyldan, aldraðir og allt mannlegt er í forsæti. Vemdun umhverf- isins verður að fá miklu meira vægi en verið hefur. Við eigum mikinn fjársjóð falinn í hreinni og fagurri náttúm og þeim fjársjóði megum við ekki kasta á glæ með þvi að byggja mengandi stóriðjuver. Ferðamennska og matvælaframleiðsla á mikla framtið fyrir sér hér á landi ef við varðveitum ímynd hreinnar náttúm og ómengaðrar. Við kvennalistakonur ætl- um ekki að láta andstæð- inga okkar segja okkur hvemig við eigum að vinna að okkar baráttumálum. Við gagmýnum alla flokka fyrir að setjast í stóla og kasta sínum baráttumálum fyrir róða. Ábyrgð er að hafa stefnu, láta kjósa um hana og halda henni síðan eftir kosningar. Það er líka sjálf- sögð virðing við kjósendur að henda ekki fyrir borð þeim stefnumálum sem boð- uð em bara fyrir það að fá að setjast í fina ráðherra- stóla og þykjast vera merki- legur. Höfundur skipar 1. sæti Kvennalistans á Suðurlandi. UNGIR KJÓSENDUR ELÍSABET VALTÝSDÓTTIR Vagga lýðræðis stóð í Grikklandi hinu foma. í Aþenu höfðu allir fijálsir karlmenn yfir 18 ára aldri atkvæðisrétt á þjóðfundum. Konur, útlendingar, þrælar af báðum kynjum, böm og unglingar höfðu ekki at- kvæðisrétt. Þrælahald var löngu af- lagt þegar konur hlutu at- kvæðisrétt fyrr á þessari öld. Það kostaði langa og stranga baráttu kvenna sem hikuðu ekki við að krefjast þessara einföldu mannréttinda, jafn- vel þó að þær yrðu fyrir aðkasti hvar sem þær fóm. Margar þeirra lentu meira að segja í fangelsi. Og nú hafa unglingar 18 og 19 ára loks fengið kosn- ingarétt, löngu eftir að þeim var veittur rétturinn til að taka þátt í samneyslu þjóð- arinnar með því að greiða skatta. Einnig löngu eftir að þeim var veittur rétturinn til að taka bílpróf og hafa þannig eigið líf og annarra á valdi sínu. Það er hollt að rifja þetta upp þegar komið er að þvi að neyta réttarins til að kjósa í Alþingiskosningum. Okkur hættir ef til vill til að líta á þennan rétt okkar sem sjálfsagðan. Við búum í lýðræðisriki og þar hafa allir, sem náð hafa ákveðn- um aldri, atkvæðisrétt óháð kyni, litarhætti, efnahag o.s.frv. En til þess að lýð- ræðið nái fram að ganga verðum við sjálf að taka þátt í þvi - með því einmitt að fara á kjörstað og nota at- kvæðið okkar á þann hátt sem við sjálf kjósum. Ykkur fmnst kannske erfitt að taka ákvörðun um það hvemig þið viljið veija atkvæði ykkar, hér er jú ekki bara einn flokkur eins og í sumum löndum - og ekki bara tveir eins og í sumum öðmm löndum. Það er því ekki um annað að ræða en að kynna sér stefnumál allra flokkanna í dagblöðum, útvarpi, sjón- varpi eða jafnvel með þvi að fara á framboðsfundi. Eitt- hvað af þessu eða allt þetta. Það fer eftir tíma og áhuga hvers og eins. En umfram allt gleymið ekki að lýðræðið er undir okkur öllum komið því að við tökum þátt í að ákveða hvaða fólk muni stjóma landinu og þar með líka lífi okkar allra. Kjósum öll. Höfundur skipar 3. sæti Kvennalistans á Suöurlandi. 3

x

Pilsaþytur á Suðurlandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur á Suðurlandi
https://timarit.is/publication/1247

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.