Alþýðublaðið - 16.12.1919, Side 2
2
alÞýðublaðið
ar. Alt breytist, heil stétt manna,
eba öllu heldur heil ibnabargrein
legst niður. Hver er afleiðingin?
Vitfinlega aukið atvinnuleysi, enda
eykst með hverju árinu sem líð-
ur fjöldi beirra manna, sem ganga
aðgerðalausir. En vegna hins ríkj-
andi þjóðfélagsskipulags (d: auð-
valdsfyrirkomulagsins) hlýtur þetta
að hafa stórkostlega bölvun í för
með sér. Fyrír ári siðan voru um
60,000 manns atvinnulausir í
Danmörku og rikið varð að sjá
fyrir þeim öllum. Önnur afleiðing
af þessu er, að þeir menn, sem
stundað hafa iðnaðargrein, sem
hefir veitt þeim sæmilegan lífs-
eyri, verða að ganga á verksmiðj-
ur og vinna þar fyrir tiltölulega
miklu lægra kaupi, en áður. Þetta
eru kenningar Marx, og hver get-
ur svo sett þær í samband við
þær skoðanir, sem Mbgl. vill kenna
honum, að auðvaldið þroski verka-
menn? En eg veit hvað Bernstein
mun hafa átt við með þessu, en
sem Mgbl. ekki skilur nógu vel
til þess, að hafa það rétt eftir.
Marx á við þróun (evolution)
þjóðfélagsins, en ekki þ r o s k a .
Fyrir mér er talsverbur munur á
þessum orðum, þau eru notuð
sem fræðiorð, þ r ó u n þýðir að
mínum dómi einungis vöxtur, á
hvaða hátt sem hann er, vöxt
sem á ensanum mun leiða að ein-
hverju takmarki, algerlega hlut-
laust (objektivt) orð, en þ r o s k-
un er jákvæð þróun og því hlu-
drægt orð. Marx á hér við, eins
og eg er fullvís að Bernstein haldi
fram, að aubvaldið sé liður i þró-
unarstefnu þeirri, sem þjóðféiagið
hefir tekið, en sem getur, og hlýt-
ur, ef verkamenn og ósérdrægnir
menn vilja, leitt til hins réttláta
skipulags, þ. e. socialistaríkisins.
Hvað viðvíkur „privat“-skoðunum
Bernsteins á þessu atriði, var mér
kunnugt um það, að hann hefir
lengi verið vantrúaður á kenningu
Marx um hina vaxandi fátækt, en
eg veit líka, að hann hefir breyzt
mjög mikið, síðan hann reit gagn-
rýningu sína á „Das Kapital “ (um
síðustu aldamót) og það svo mjög,
að hann sagði sig úr flokk þýzkra
i,socialdemokrata“ og gekk í flokk
hinna „óháðu" (ákafari socialista),
þar sem Karl Kautsky hinn gamli
andstæðingur hans (Kautsky varði
kenningar Marx) var aðalleiðtogi.
H. Siemsen-Oltosson.
^thigaleysi eða hvað?
Nýja skjaidarmerkinu stungið
undir stól?
Margir, sem ekki þekkja til sein-
lætis og slóðabragsins, sem liggur
eins og mara á framkvæmdarvald-
inu íslenzka, mun spyrja, h.vað
valdi því, að á öllum húsum rík-
isins skuli „Fálkinn" enn þá skarta,
þar sem hinn á annað borð hefir
einhverntíma verið? Og ekki nóg
með það, á Hagtíðindunum er hann
enn sem bókamerki eg meira að
segja á sjálfu Lögbirtingablaðinu!
en þar ætti þó sízt að vera upp-
máluð ímynd skeytingarleysis þeirra,
sem hlut eiga að máli.
Heyrst hefir, að verið sé nú að
prenta ný heillaóskaskeytisblöð fyr-
ir Landsímastö'óina, og er haft
mikið fpir því, að gera þau sem
snotrust; en sá er „gallinn á gjöf
Njarðar", að „Fálkinn" er prent-
aður á þau. Það er varla við því
að búast, að Landsímastjórinn sé á
undan yfirboðurum sínum í þessu
efni, en óneitanlega færi betur á
því, að ekki væri prentað, alt of
stórt „upplag", af þessum „forn-
gripum". Það minsta, sem hann
gæti gert, ef Landsíminn á annað
borð notar skjaldarmerkið á eyðu-
blöð sín, væri að láta ekki prenta
nema fá hundruð af þessum „Fálka-
eyðublöðum". En nýja skjaldar-
merkið ætti að útrýma „Fálkanum"
þarna eins og annarsstaðar. Það
ætti ekki að vera erfiðara að fá
prentmynd af nýja skjaldarmerk-
inu, hjá Ólafi Hvanndal, heldur en
af „Fálkanum".
Meira en ár mun síðan ab kon-
ungur vor staðfesti nýtt skjaldar-
merki handa íslandi og er það
einkennilegt, að þetta merki skuli
enn ekki vera komið í stað Fálka-
merkisins. Eða var nýja merkið
að eins til málamynda? Eba var
gamla merkið orðið svo kært nú-
verandi stjórn, að hún kynokar
sér þess vegna að skifta um? Hví
var hún þá að fá staðfestingu á
nýju skjaldarmerki? Nei, þaö er
að eins hirðnleysið alþekta, sem
hér ræður aðgerðaleysinu.
Eg vil nú stinga upp á því, að
stjórnin taki nú einu sinni rögg á
sig og kippi þessu í lag hið bráð-
asta. Helzt ætti hún að gefa oas
íslendingum nýja skjaldarmerkið í
jólagjöf, fyrst hún útvegflði stað-
festinguna fyrir ári síðan. Eða geti
hún það ekki, vil eg leyfa mér ab
skírskota því til almennings, hvort
honum þyki það viðeigandi, að
dandalast sé lengur meb „ránfugl-
inn“ yfir dyrum landsímastöðvar-
innar, alþingishússins og meira að
segja stjórnarráðshússins!
Það minsta, sem hægt er að
gera í þessu máli, er að afmá
samstundis gamla skjaldarmerkið,
þar sem það nú er til smánar
og merki um trassaskap stjórnar-
innar, eins og eg hefi bent á.
/.
Osvijinn þorpari.
í júní í sumar var gufuskipið
„Hildur" á ferð í Eystrasalti.
Nokkru fyrir austan Gotland sprakk
það í loft upp og sökk. Stýrimað-
ur skipsins átti það sjálfur, og
fyrir rétti sór hann, aÖ það hefði
rekist á tundurdufl. Öll skips-
höfnin staðfesti framburð hans,
sem þó var ekki tekinn allskostar
trúanlegur, því nokkrar grun-
semdir þóttu vera fyrir hendi.
Nú i nóvembermánuði hefir
stýrimaðurinn loks játað, að hann
hafi komiö sprengieíni íyrir í aft-
urhluta skipsins. Kl. 12,30 sprakk
það, og. þá voru þeir ofan þilju,
stýrimaður, skipstjóri og vélastjóri,
en tvoir hásetar sváfu niðri, og
iá við sjálft, að þeir hefðu farist.
4-
Útbreiðsla franskra jafnaðar-
mannablaða hefir vaxið gífurlega
upp á síðkastið. Þannig hefir kaup-
endafjöldi blaðsins „Populaire"
aukist á 6 mánuðum úr 45 þús.
upp í liðlega 100 þús., og á sama
tíma hefir „Humanité" orðið að
auka npplag sitt úr 90 þús. upP
í 300 þús. og ■ er það meiri út-
breiðsla en nokkurt annað blað
hefir þar í landi.