Norðurslóð - 13.10.1978, Page 2
NORÐURSL
Útgefendur og ábyrgöarmenn:
Hjortur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðarda/
Jóhann Antonsson, Dalvlk
óttarr Proppé, Dalvík
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun Prentsmiðja Björns Jónssonar
Kennaraskipti
ELDHU SMELLUR
Ný verðlaunabók eftir Guðlaug Arason
Nokkrar breytingar hafa orðið
á starfsliði Dalvíkurskóla og
Húsabakkaskóla. Helgi bor-
steinsson, sem var skólastjóri
Dalvíkurskóla í 17 ár, fékk
launalaust leyfi í fyrravetur og
sagði svo upp störfum í vor. Við
skólastjórn hefur tekið Trausti
Þorsteinsson.
í fyrravetur sambvkkti
menntamálaráðuneytið að við
Dalvíkurskóla starfaði yfirkenn
ari. Óttarr Proppé gegndi þeirri
stöðu í fyrra en nú er Guðmund-
ur Ingi Jónatansson yfirkenn-
ari.
Tveir af skipuðum kennurum
við Dalvíkurskóla eru í ársleyfi;
Jóhann Daníelsson hefur fengið
orlof til að kynna sér rekstur
skólabókasafna og Þóra Rósa
Geirsdóttir er í launalausu leyfi
og dvelur nú ásamt fjölskyldu
sinni í Svíþjóð. Brynja Grétars-
dóttir hefur látið af kennslu.
Nýir kennarar við Dalvíkur-
skóla eru fimm: Birna Hall-
dórsdóttir og Jónfinn Jóensen,
þau hafa bæði kennt í nokkur
ár, síðastliðinn vetur í Færeyj-
um. Sólveig Pétursdóttir og Ol-
afur Sigurðsson. Ólafur hefur
kennt við Þinghólsskóla í Kópa
vogi en Sólveig útskrifaðist frá
Kennaraskólanum í vor. Matt-
hías Ásgeirsson þarf tæplega að
kynna fyrir Dalvíkingum. Hann
var íþróttakennari við Dalvíkur
skóla í nokkur ár en flutti svo
vestur í Reykholt. Undanfarin
ár hefur hann verið við kennslu
á Akureyri.
í Húsabakkaskóla hafa orðið
þær breytingar á kennaraliði,
að Jónína Hreinsdóttir hefur
látið af störfum en í hennar stað
kemur Þyrí Jónsdóttir, sem
kemur úr starfi í menntamála-
ráðuneytinu.
Norðurslóð kveður þá sent
brott halda og býður velkomna
þá, sem við störfum þeirra taka.
Nýtt skipulag
Bæjarstjórn Dalvíkur hefur
samþykkt tillögu frá skipu-
lagsnefnd þess efnis að
embætti skipulagsstjóra rík-
isins verði falið að vinna að
skipulagi fyrir Dalvík. Stef-
án Thors skipulagsfræðing-
ur hefur nú hafið undirbún-
ingsvinnu og hefur hann sýnt
fulltrúum í skipulagsnefnd
Dalvíkur fyrstu hugmyndir
sínar.
Stefnt er að því að aðal-
skipulagið verði tilbúið ívet-
ur. Enn hafa engar ákvarð-
anir verið teknar en þó má
telja víst að þjóðvegurinn í
gegnum bæinn verði ekki
fluttur.
I síðasta mánuði gaf bókaút-
gáfan Mál og menning út skáld-
söguna Eldhúsmellur eftir Guð-
laug Arason. Bókaútgáfan
efndi í fyrra til skáldsagnasam-
keppni. Allmargar sögur bárust
og þótti þessi saga Guðlaugs
bera af og fékk því fyrstu
verðlaun.
Guðlaugur hefur áður fengið
verðlaun fyrir skáldsögu. Bóka-
útgáfan Bókás veitti honum
verðlaun fyrir söguna Víkur-
samfélagið og hugðist gefa hana
út um síðustu jól, en vegna
ýmissa erfiðleika við prentun
varð ekki af því þá. Aftur á móti
var sagan lesin í útvarpinu.
Hér verður í örstuttu máli
ijallað um þessa nýjustu sögu
Guðlaugs en rétt er að taka
fram að undirritaður telur sig
ekki vera þess umkominn að
fella salómonsdóm, hvorki um
þessa sögu né nokkra aðra. Al-
gildur mælikvarði á ágæti lista-
verka er ekki til, í þeim efnum
verður hver að treysta á eigin til-
fínningar.
Ef Eldhúsmellur eru bornar
saman við fyrstu sögu Guð-
laugs, Vindur vindur vinur
minn, er Ijóst, að Eldhúsmellur
er miklu betur skrifuð bók.
Vindurinn er víða úr hófi fram
langdreginn og lesandann
grunar að endurtekningar séu
ekki allar vísvitandi stílbragð
höfundar. Eldhúsmellur er
mjög lipurt skrifuð saga, lýsing-
ar raunsæjar og samtöl oftast á
eðlilegu máli. Sagan grípur les-
andann og hann þarf ekki að
taka sér tak til að hverfa úr eigin
heimi inn í heim sögunnar,
kannski vegna þess að heimur
sögunnar er honum ekki með
öllu ókunnur. Persónur sög-
unnar eru spegilmyndir lifandi
fólks, ekki ákveðinna einstakl-
inga, heldur fólks sem hvert og
eitt okkar þekkir svo mæta vei,
hvar sem við búum.
Nafn bókarinnar vekur eftir-
tekt og ekki er ólíklegt að því sé
ætlað að fá okkur til að nema
staðar og skoða mannlífið í nýju
ljósi. Sagan fjallar ekki um
mellur í venjulegum skilningi
þess orðs. Sagt er frá húsmæðr-
um, ósköp venjulegum hús-
mæðrum, sem líður illa í hjóna-
bandinu og dreymir meðvitað
og ómeðvitað um að slíta því.
Engu að síður standa þær sína
pligt; þær veita mönnum sínum
blíðu, reyndar þarf stundum að
neyða þær til þess, en fá í
staðinn félagslegt og fjárhags-
legt öryggi. Fyrir bragðið geng-
ur lífið sinn vanagang, enginn
þarf að taka erfiðar ákvarðanir
eða synda á móti straumnum.
Rétt er að taka fram að þeir
sem eru á höttunum eftir ná-
kvæmum lýsingum á kynlífi
verða að róa á önnur mið. Má
þó vera að sumum þyki fullmik-
ið sagt, en í þessum efnum
verður seint komist að sam-
komulagi um það hvað sé til
Hjá umboðsmanni bóka-
útgáfunnar Mál og
menning fæst verðlauna
bók Guðlaugs Arasonar
Eldhúsmellur árituð af
höfundi.
Ath. Félagar fá Tímarit
Máls og menningar og
verulegan afslátt af nýj-
um og gömlum bókum
frá útgáfunni.
Umboðsmaður Máls og
menningar á Dalvík er
Brynja Grétarsdóttir,
Hjarðarslóð 3a.
lýta og hverju ekki má sleppa.
Undirritaður telur að Guðlaug-
ur kunni þá list að segja ekki of
mikið, ekki eingöngu á þessu
sviði heldur og í heildarupp-
byggingu sögunnar. Hvar á að
hætta sögu? Við þekkjum mörg
dæmi þess að höfundar geta
ekki hamið sig eða treysta ekki
lesendum sínum til að melta
söguna, þeir teygja lopann lengi
eftir að risinu í frásögninni er
náð. Guðlaugur hættir frásögn-
inni á réttum stað og leyfir
lesendum sjálfum að ganga frá
lausum endum.
Það er hjónabandið og staða
konunnar innan þess sem er á
dagskrá og Guðlaugi liggur
mikið á hjarta, svo mikið að
lesandanum finnst hann stund-
um ekki vera áheyrandi að
samtali venjulegs fólks heldur
staddur á fundi þar sem menn
lesa upp skrifaðar ræður. Það er
einkum sögupersónan Fanney
sem geldur þessa. Hún er mikill
baráttumaður fyrir auknu frelsi
kvenna, hún hefurauðsjáanlegá
lesið mikið um þessi mál og
kynnst mörgum nýjum hug-
myndum, kannski í Kaupmann-
ahöfn þar sem hún bjó um tíma.
Fanney kemur skyndilega inn
í tilveru söguhetjunnar, Önnu
Dóru, og verður þess valdandi
að Anna Dóra gerir sér grein
fyrir því að lífið býður upp á
fleiri möguleika en þann að
bæla tilfinningar sínar með
dagskammti af róandi lyfjum.
Reyndar kemur á daginn að
,,byltingarmaðurinn“ Fanney
lifir einnig í hálfgerðum drauma
heimi, og því má vera að
höfundurinn hafi vísvitandi gert
hana blinda á allt nema þann
,,sannleika“ senr hún hefur
höndlað. Ekki þar fyrir, í
samfélagi okkar úir og grúir af
fólki sem höndlað hefur ein-
í vetur var hér i blaðinu sagt frá
bátakaupum til Dalvíkur og þá
bent á þá staðreynd að dekk-
bátar, sem gerðir eru út héðan
fara stækkandi. Nú í sumar og
haust hafa verið seldir héðan
tveir bátar, sem voru um og
yfir 20tn að stærð, en á sama
tíma hafa verið keyptir tveir
aðrir sem eru mun stærri, svo
enn heldur áfram á sömu braut.
Stefán Stefánsson, útgerðar
maður og skipstjóri, keypti bát
frá Keflavík, sem ber nú nafnið
Búi EA 100 eins og fyrri bátar
Stefáns, en h'ann seldi eldri bát-
inn til Húsavíkur. Nýi Búi er
stálbátur, 47 tn að stærð,
byggður á Seyðisfirði 1970, en
er með nýrri 175 ha Scania
Vabis aðalvél.
Verið er að búa bátinn til
línuveiða og mun hann landa
fyrst um sinn á Bakkafirði, en
seinna mun hann fara á neta-
veiðar og landar þá afla sínum
hjá Hraðfrvstiúsi KEA, Dalvík.
Einnig hefur fiskverkun Jó-
hannesar og Helga keypt bát frá
Keflavík, sem heitir Stafnnes.
Báturinn, sem er 57 tn að stærð
var byggður í Hafnarfirði 1954
en hefur verið endurbyggður
síðan og er nú í góðu ástandi.
Verið er að búa hann til neta-
veiða og munu þeir verka aflann
sjálfir. Skipstjóri verður einn af
eigendum, Sævar Sigurðsson
frá Akureyri, en hann hefur
verið skipstjóri á nokkrum bát-
um sem gerðir hafa verið út
héðan. Síðasliðinn vetur var
hann skipstjóri á Fagranesi ÞH.
Bliki hf. er nú að stækka fisk-
hvern sannleika og sér ekki
nema þann hluta af heiminum
sem fræðikenningin fjallar um.
En Fanney er ekki lík slíku fólki
að öllu leyti; flestum söguper-
sónum virðist þykja gaman að
tala við hana.
Sögunni lýkur þar sem Anna
Dóra og Fanney kveðjast.
Fanney hefur gefist upp við að
skapa nýjan heim, og ætlar á
vissan hátt að snúa baki við
vandamálunum með því að loka
sig inni í hópi fólks sem hefur
svipaðar lífsskoðanir og hún
sjálf. Anna Dóra treystist ekki
til að fylgja henni, hið nýja
umhverfi hefði orðið hennijafn
framandi og líf á öðrum hnetti.
Fanney kveður en lífið verður
ekki einsog það var áður en hún
kom, eitthvað hefur breyst.
Anna Dóra er nú reiðubúin að
horfast í augu við staðreyndir
lífsins, þær eru ekki allar
ánægjulegar og ástæðulaust að
sætta sig við þær, en mann
grunar að nú muni hún takast á
við erfiðleikana í stað þess að
flýja á náðir róandi lyfja og
fánýtra drauma um fyrir-
myndarhúsmóðurinar. í fyrsta
sinni á ævinni hlakkar hún til að
koma heim.
Eldhúsmellur er 171 bls.
bundin í sterklegt band. Guð-
laugur notar ekki skólastafsetn-
ingu, lái honum hver sem vill.
Það hrekkur víst enginn í kút
þótt hann sjái breiðan sérhljóða
á undan -ng eða nk, enda hefur
sá framburður verið algengast-
ur hér frá því á 13. öld. Afur á
móti hefur Guðlaugur látið af
þeim hvimleiða vana að slá
óskyldum smáorðum saman í
eitt eða slengja þeim aftan við
önnur orð, eins og sjá má í
Vindinum, og er það vel.
Hafðu þökk fyrir söguna,
Guðlaugur.
Ottarr Proppé.
verkunarhús sitt. Viðbyggingin
sem er orðin fokheld, er 290 m2
að grunnfleti, en hluti hússins er
á tveimur hæðum. Húsið fyrir
var 336 m2 og er þetta því veru-
leg stækkun. Fyrr á árinu voru
Blikamenn búnir að kaupa ýmis
tæki til fiskverkunar sinnar, en
þeir hafa tekið afla af fleirum en
sínum eigin bátui.
Umferðaróhöpp
Tvö umferðaróhöpp urðu nú
um helgina, en að sögn lögregl-
unnar hefur sem betur fer ekki
borið mikið á slíku að undan-
förnu. Á föstudaginn varð
harður árekstur á mótum Svarf
aðarbrautar og Mímisvegar.
Þar rákust saman tvær jeppa-
bifreiðar, engin slys urðu á
fólki, en báðar bifreiðarnar
voru óökufærar á eftir. Þá
rákust tvær fólksbifreiðar sam-
an á mótum Goðabrautar og
Stórhólsvegarsl. mánudag. Eng
in slys urðu á fólki, en önnur
bifreiðin skemmdist talsvert.
Þá er þess að geta, að bifreið
fór út af veginum í Ólafsfjarðar
múla fyrir skömmu. Slysið átti
sér stað við hjallana, bifreiðin
fór nokkrar veltur en stöðvað-
ist áður en að aðalbrattanum
kom. Tvennt var í bílnum og
sluppu bæði ómeidd en bifreið-
in er talin ónýt.
Síðastliðinn miðvikudag
varð svo það óhapp á Hafnar-
braut að jeppi ók á kyrrstæðan
fólksbíl. Jeppinn valt og teppt-
ist umferð um hríð en engin slys
urðu á fólki.
Dalvíkingar!
Enn er unnt að fá fasta tíma í íþróttahúsinu.
Pálrún Antonsdóttir tekur við pöntunum í íþrótta-
húsinu, sími 61382.
Bæjarstjórinn á Dalvík.
TILBOÐ
Tilboð óskast í húseignina Kamb til brottflutnings.
Tilboðin afhendist undirrituðum fyrir 21. október.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
SÖLTUNARFÉLAG DALVÍKUR HF.
Jóhann Antonsson.
Heimilisþjónusta
Síðari hluta þessa mánaðar hefst heimilisþjónusta á
vegum bæjarins.
Heimilisþjónustan felur í sér eftirfarandi atriði:
1. Aðstoð við aldraða í þeim tilgangi að gera þeim
kleift að dvelja lengur í heimahúsum.
2. Aðstoð við sjúklinga í heimahúsum I þeim
tilgangi að stytta sjúkrahúsvist, eða jafnvel koma
í veg fyrir hana.
3. Umsjón með heimili, þar sem húsmóðireða heim-
ilisfaðir eru fjarverandi vegna veikinda.
4. Aðstoð við fatlaða sem búa einir.
5. önnur tilfelli, sem meta þarf hverju sinni.
Nánari upplýsingar veita fulltrúar í félagsmálaráði.
Þeir sem vilja notfæra sér þessa þjónustu eru beðnir
að hafa samband við formann félagsmálaráðs, Val-
gerði Guðmundsdóttur, Hólavegi, sími: 61490.
Bæjarstjórinn á Dalvík.
TVEIR NYIR BATAR
2 - NORÐURSLÓÐ