Norðurslóð - 24.10.1980, Side 2
»
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Hjörtur'E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvik
Afgreiösla og innheimta: Sigri Hafstað, Tjörn
Ljósmyndari: Rögnvaidur Sk. Friðbjörnsson
Prenlun: PrentsmiOja Björns Jónssonar
Litið um farinn veg
Nú eru liðin rétt þrjú ár síðan
þetta blað okkar, Norðurslóð,
hóf göngu sína. Þennan spöl
hefur það komist klakklaust og
haldið áætlun, sem sett var í
upphafi, þ.e. mánaðarleg út-
koma með sumarfrii í júlí og
ágúst.
Það hefur nú fyllilega sannast
að þær vonir, sem útgefendur
létu í ljós i fyrsta tölublaði um
lífsmöguleika blaðs af þessu
tagi, voru á rökum reistar. Það
hlaut góðar móttökur strax í
upphafi og hefur haldið vin-
sældum sínum óskertum enn
sem komið er. 700 áskrifendur
að blaði, sem einskorðar sig við
málefni byggðarlags ekki fjöl-
mennara en Dalvík-Svarfaðar-
dalur, má teljast afargóð út-
breiðsla.
Það hefur reyndar komið á
daginn, sem líka mátti vænta,
að svo áhugasamir sem heima-
menn eru um útgáfuna, þá eru
brottfluttir Svarfdælir þó jafn-
vel enn áhugasamari og hafa
margir þeirra látið í ljós hug
sinn til blaðsins á ótvíræðan
hátt.
Svarfaðardalur og Dalvík eru
ákaflega nátengd sveitarfélög
bæði sögulega, atvinnu- og
félagslega. í þessu byggðarlagi
mun vandfundinn sá maður,
sem sé svo sljór, að hann sjái
ekki og skilji hvernig sveitin og
kaupstaðurinn eru hvort öðru
háð, bæta hvort annað upp og
mynda sterka, samvirka heild.
Norðurslóð vill taka mið af
þessari byggðarsamstöðu í efnis
vali sínu með því að blanda
hæfilega saman efni úr sveit og
bæ. Það er því með ráðnum
huga gert, ef af henni er bæði
fisklykt og angan af grasi. Hún
vill fyrir sitt leyti treysta hina
félagslegu innviði byggðarlags-
ins og vonast til að útgáfa
byggðarblaðs ein sér sé nokkurt
framlag í þá veru.
Þrjú ár er ekki hár aldur, en
þó eru þau mörg orðin blöðin
og tímaritin á íslandi, sem
fæðst hafa í heiminn við óskir
og vonir um gott gengi og langa
lífdaga, en sofnað svefninum
langa löngu fyrir þriggja ára
afmælisdaginn sinn. Þau örlög
hlaut Norðurslóð ekki.
Það hefur sannast að blaðið
hefur hlutverki að gegna, Það
hefur líka sýnt sig, að fjárhags-
grundvöllur getur verið fyrir
hendi, ef aðstandendur þess eru
tilbúinir að leggja nokkuð á sig í
vinnu og fyrirhöfn og þeir, sem
fyrirtækjum og félögum ráða í
héraðinu láta blaðið njóta eðli-
legra viðskipta.
í von um að svo verði fetar
Norðurslóð áfram leið sína mót
komandi tíð.
'íljujog*. .
rm £it44<f<t , ' W/0'
/■.<* ■& ’iz/, ■ ty
I !*««-** —;
s*yfiffritxc»*$pjrðLfi 1 W 47e»**##*»* || fimXf UÍM Æ Xti* 3K»«$**xx>l2 ?, @ fxt-úc. 1
kmtmzL Emm
Fxýstíhúsw VSK»K errie Srnerspöud ij
MJ þtíRR TiL YHiSieafP Sm/TPfr. M. fí: jj
M ók&f&m LvrrfftyMtfUj $*??.„(, # suhkJj j
# f pifiiFsoS'T P _ Sfrt* | j
* itiKMtfrfssfi, þ*<< { ú{f /*■</' jj
. * {£**»* jsev' *&)■* |í
4t 'úrmr$r&s,y T $&l7FíS* í
# SífttFim* r ýtíJuutM. xnvArfM/Ui I
V 64 PvxtuM \
SfítVXSrPi*: f yju/UAi. ,* (,£*.- <
■fyHnSkii'Sfiw
♦ órmtusiu ?r* x.dffssfí. *t> vtuust t I
xUf/HjQ • ri! V*OiS<iiRUU fa'artus) í , j
‘OlLUrt OttiOUM \
....'—/Sf , ' I
X j
J * jhuTíTsmxr úxDeoí Xbmm rit fimfXff.. }
fíUMit ftifitsitít* JJtMi V.Sí*/stU} sý 4í*>${■**.■**%*
VH>UÍ)Cw ijs-íSF U ítrtUfirtf’V '# ViAfssvrítt)?>
; Sfritt Cfl}i
foitinls /r.ert Vru/i-k. _ íj
Þetta eru ekki veggspjöld á Torgi hins himneska friðar í Peking,
heldur í inngangi verslunarhúss KEA á Dalvík. - Sælt væri það
blað, sem fengi allar þær auglýsingar til birtingar.
Úr ársreikningi
Svarfaðardalshrepps
Nú í vikunni var dreift um
sveitina prentuðumársreikningi
Svarfaðardalshrepps fyrir árin
1978 og 1979. Kemur þar
glögglega fram staða hreppsins
bæði að því er varðar rekstur og
eignir.
Til fróðleiks þeim, sem ekki
fá reikningsuppgjörið í hendur,
birtum við nokkrar tölur frá
síðara árinu, 1979.
Heildartekjur ársins urðu kr.
58.765.773. Þar af voru útsvör
Frá bæjarstjóranum á Dalvík
Blaðið leitaði frétta af opinber-
um framkvæmdum á Dalvík á
liðnu sumri. Eftirfarandi upp-
lýsingar lét bæjarstjórinn góð-
fúslega í té:
Segja má að framkvæmdir á
vegum bæjarins eða bæjarfyrir-
tækja hafi verið nokkuð sam-
þjappaðar á þessu ári. Stærstar
eru þar tvær framkvæmdir, þ.e.
bygging skólahúss oggerð hafn-
armannvirkja. Báðar þessar
framkvæmdir eru sameiginlegar
með ríkissjóði og sveitarfélag-
inu, þannig að framkvæmda-
hraði verður alltaf háður fjár-
veitingum af fjárlögum hverju
sinni. í báðum þessum tilvik-
um hefur svo skipast að til að ná
ákveðnum framkvæmdaáföng-
um hefur orðið að leggja fram
meira fé frá heimaaðilum, en
lög- eða samningsbundin skipt-
ing gerir ráð fyrir, en slíkt jafn-
ast síðan við áframhaldandi
framkvæmdir.
Fyrrihluta árs var unnið við
innréttingar á barnadagheimili
sem tekið var í notkun nú í
september. Gatnagerð hefur
einungis verið gerð nýrra gatna
en engar slitlagsframkvæmdir.
Hita- og vatnsveitufram-
kvæmdir hafa verið litlar, fyrir
utan lagnir að nýjum húsum. Þó
má nefna, að við borholur hita-
veitunnar að Hamri var fluttur
miðlunargeymir og komið upp
vararafstöð þar sem eldri vara-
rafstöð var orðin of lítil fyrir
djúpdælur hitaveitunnar.
Nokkrar fjárveitingar voru
einnig til framkvæmda sem eru
sameiginlegar með öðrum, svo
sem dvalarheimils aldraða og
heilsugæslustöðvar, en hluti
þeirrar byggingar verður tekinn
í notkun nú í desember.
ca. 35 milljónir, aðstöðugjöld
4,7 fasteignaskattur 2,9 jöfn-
unarsjóðsframlag 8,5 tekjur af
fasteignum 3 og vaxtatekjur 4,2
milljónir.
Af útgjaldaliðum eru fræðslu
mál langsamlega fjárfrekust. Til
þeirra fara 17,3 milljónir og er
það nettótala. Tekjur umfram
gjöld á rekstrarreikningi urðu
kr. 18,5 milljónir.
Fjárráðstöfun og eignir.
Á árinu seldi hreppurinn
húsin á Hamri fyrir kr. 1,56
millj. systkinunum frá Hálsi,
önnu, Gerði og Þorvaldi. Af
tekjuafgangi fór til Dalbæjar
sem stofnframlag kr. lOmilljón-
ir og til Heilsugæslustöðvar 1
milljón. Að öðru leyti fór
tekjuafgangurinn í svokallaðan
Félagsheimilis- og framkvæmda
sjóð ca. kr. 5,5 milljónir.
Niðurstöðutala eigna hrepps-
ins er kr. 114.882.407. Eru það
að stærstum hluta fasteignir,
þ.e. jarðeignirnar Hamar,
Laugahlíð og Sveinsstaðaafrétt
kr. 23,8 millj. og svo húseignir
með tilheyrandi, þ.e. íbúð í
Laugahlíð og Húsabakkaskóli
að V<, Hafnarbraut 4 á Dal-
vík að Vs, Sundskáli Svarf-
dæla Vi, Þinghúsið á Grund,
Dalbær að 1/5 og hlutdeild í
Heilsugæslustöð allt til samans
kr. 61.825.000. Þá eru sjóðs-
eignir, aðall. Félagsh- og fram-
kvæmdasjóður um 11,5 milljón-
ir. Skuldir eru sáralitlar.
Vetrardagskrá UMFS
Eins og komið hefur fram áður,
hyggst Ungmennafélagið hafa
sem fjölbreytilegasta starfsemi í
vetur og reyna að láta starfsem-
ina ná til sem flestra.
Megináhersla verður þó lögð
á unglingastarfsemi í samvinnu
við Dalvíkurskóla.
Æfingartími yngri flokka
verður á tímabilinu ljd. 17.30
-20.00 á virkum dögum, en á
kvöldin starfsemi fyrir þá eldri.
Eftirfarandi starfsemi er þegar
hafin eða hefst nú um miðjan
óktóber:
Að auki mun Dalvíkurskóli
hafa borðtennis og fleira á
miðvikudagskvöldum í íþrótta-
húsinu.
Ofangreind upptalning á að-
eins við um starfsemi i íþrótta-
húsinu. önnur starfsemi verður
auglýst síðar. Sú starfsemi fer
eingöngu eftir þáttöku, má í því
sambandi nefna t.d. skák,
bridge o.fl. þ.h.
2 - NORÐURSLÓÐ
fþróttagrein Aldurshópur Leiðbeinandi
Blak Karlar Ólafur B. Thor.
Badminton Allir Gunnar Aðalbj.
Fimleikar Skólaaldur Matthías, Inga.
Frúarleikfimi Konur Inga Matthías.
Æfingatími
Þriðjud. kl. 21.15.
Lau. Og SU. (nánar
Má. og Mi. au8'ýst
Má. og Fi. síðar)'
Handknattleikur:
Stúlkur 13-15 ára
Drengir 10-12 ára
Drengir 12-14 ára
Karlar meistarfl.
Körfubolti:
Drengir 13-16 ára
Björn I. Hilmars. Þr. og Fi.
Ólafur Sig. Þr. og Fö.
Guðm. Jónsson. Þr. og Fi.
Magnús Guðm. Þriðjud. kl. 20.00.
Ólafuf B. Thpr. Mánud.
Þessar stúlkur eru fulltrúar þeirra mörgu barna, sem söfn-
uðu fyrir Rauða krossinn af áhuga og dugnaði.
Afríkusöfiiun
Rauða krossins
Eins hefur komið fram hug-
mynd um stofnun hjónaklúbbs
innan U.M.F.S. með dans-
mennt í huga.
Ef einhverjar óskir eða hug-
myndir koma frá fjölda ung-
mennafélaga um einhverja starf
semi sem hér hefur ekki verið
upptalin, mun stjórn U.M.F.S.
að sjálfsögðu reyna að verða við
þeim óskum ef næg þáttaka er
fyrir hendi.
Með ósk um ánægjulegt
vetrarstarf, og að sem flestir
ungmennafélagar finni sér eitt-
hvað við sitt hæfi.
Stjórn U.M.F.S.
Deild Rauða krossins við utan-
verðan Eyjafjörð (Dalvíkur-
læknishéraðs) gekkst fyrir pen-
ingasöfnun á svæðinu um síð-
ustu helgi. Söfnunin fór fram í
samvinnu við skólana á svæð-
inu, Dalvík, Húsabakka, Ár-
skógi og í Hrisey, þ.e.a.s. börnin
unnu verkið, gengu í hús í bæ og
sveit og söfnuðu framlögum.
Árangurinn varð góður, fólk
var fúst til að leggja fé af
mörkum. Heildarupphæðin
varð um það bil kr. 2.6
milljónir.
í læknishéraðinu eru í kring-
um 2.200 manna eða sem næst
1% þjóðarinnar. Með sömu
gjafmildi á landsvísu ætti því
söfnun Rauða kross íslands að
gefa um 260 milljónir.
Hins vegar hafði Rkr.ísl. sett
sér það mark að safna a.m.k.
100 milljónum. Hefði okkar
hlutur af því átt að vera sem
næst 1 milljón. Svo við megum
vel við una.
Rauða kross deildin vill
koma á framfæri þakklæti til
allra, sem að söfnuninni stóðu,
gefenda og ekki síður barnanna,
sem lögðu fram vinnu og áhuga
við verkið.