Norðurslóð - 25.10.1983, Síða 3
Aðalsteinn Cottskálksson
Framhald af forsíðu.
eitthvað á vogarskálina í þessum
efnum í hinu nýja starfi. Hvað
varðar þróunina hér á Dalvík
held ég að mikilvægast sé að
menn standi saman. Hér blóm-
gist a.m.k. eitt stórt fiskvinnslu-
fyrirtæki sem hafi sem mesta
vinnslubreidd, og standi það
traust að áhrif markaðssveiflna
séu sem minnstar. Eins þurfa
menn að hafa augu opin gagn-
vart nýjum möguleikum.
Þitt starfssvið hér hefur verið
við sjávarútveg, en hvað finnst
þér um að búa hér?
Mannlífið hér á Dalvík hefur
mér bara fundist gott. Við
hjónin höfum ekki mætt öðru en
hlýju og vináttu. Eitt finnst mér
þó einkénna staðinn þ.e. mikill
fjöldi félaga, kannski mörg á
sama sviði. Þetta hefur valdið
því að margir eru í of mörgum
félögum sem síðan verður til
þess að virkni margra þeirra
verður of lítil. Þessu kynntist ég
vel í tilraun okkar við að endur-
reisa U.M.F.S. Þá finnst mér að
íþróttalíf mætti vera blómlegra
og hlúa mætti meira að því, fyrir
utan skíðaíþróttina. Á þeim
vettvangi er bæði áhugi og
aðstaða góð enda eigum við
margar góðar minningar og
byltur úr Böggvistaðafjalli.
Eitthvað sem þú villt koma á
framfœri að lokum?
Að lokum vil ég sérstaklega
þakka samstarfsmönnum góða
samvinnu. Það hefur oft verið
mjög gaman að takast á við
vandamálin og finna þá sam-
stöðu sem oft hefur einkennt
frystihúsið hér að margra mati.
Við höfum lagt áherslu á
upplýsingamiðlun til fólksins og
reynt þannig að skapa sam-
ábyrgð og áhuga á því að gera
vel. Þetta held ég að oft hafi
tekist. Mestistyrkurfrystihúsins
að mínu mati er sá gamli kjarni
starfsfólks, sem búinn er að
vinna jafnvel i áratugi. Þetta
fólk býr yfir ómetanlegri reynslu
og er alls ekki í samningum
launalega nógu vel metið. Þessi
ábyrgi vinnukraftur er góður
skóli fyrir okkur unga fólkið.
Að endingu vil ég segja að þessi
vera mín hér og starfsreynsla
mun örugglega nýtast mér vel í
nýju starfi, og okkur hjónum er
efst í huga þakklæti til allra fyrir
góða viðkynningu.
J.A.
ÚTSALA
Á fimmtudaginn 27. okt. hefst
stórútsala á hljómplötum.
30-70% afsláttur.
Verslunin Sogn.
Ýlir auglýsir
Frá Sanyo: Videótæki. - Tilboð: Frítt efni í
30 daga. (Ein spóla á dag).
Sjónvarpstæki.
Frá Pioneer: Bílaútvarpstæki og hátalarar.
Frá Haudic: 40 rása talstöðvar.
Frá Sony: Stereó samstæður og útvarps-
og kasettutæki.
Nýkomin haglaskot á mjög góðu verði.
•k Kuldastígvél og gúmmístígvél.
★ Gönguskíði - Skíðaskór.
Við útbúum blómaskreytingar við öll tækifæri,
t.d. veislur, afmæli og jarðarfarir.
Vinsamlega pantið útfararkransa og krossa með
tveggja daga fyrirvara.
Opið á laugardögum frá kl. 10-12.
Hafnarbraut 14
Sími 61405.
Bókin „Ljóðþrá“
úrval Ijóða og sálma eftir föður minn Valdemar
Snævarr, fyrrverandi skólastjóra, fæst hjá undirrituð-
um og kostar hún kr. 400.00 innbundin. Góð bók og
tilvalin til tækifærisgjafa.
Stefán Snævarr, Hólavegi 17, Dalvík. Sími: 61350.
/-----------------------------------------------------\
Svarfdælir í Reykjavík
og nágrenni
Árshátíð Svarfdælingasamtakanna í Reykjavík verður haldin
í Félagsheimili Seltjarnarness 19. nóvember n.k.
Húsið verður opnað kl. 19.00. Borðhald hefst kl. 19.30.
DAGSKRÁ:
1. Flutt minni Svarfaðardals.
2. Nýstofnuð söngsveit samtakanna syngur.
Söngstjóri Kári Gestsson.
3. Einnig syngja Halla Jónasdóttir og Kolbrún Arn-
grímsdóttir við undirleik Kára.
4. Flutt verða gamanmál.
5. Hljómsveit Villa á Karlsá spilar fyrir dansi.
Miðapantanir eru hjá Ingu Klemensdóttur í síma 81977 mið-
vikudag og fimmtudag 16. og 17. nóvember eftir kl. 16.00.
Gott fólk, látið sannast að:
„setinn verður Svarfaðardalur/Seltjarnar á lágu nesi“
Stjórnin.
k_____________________________________________________/
OLÍS, Dalvík auglýsir
Höfum til sölu margar gerðir af Aqseal-vörum:
• Þéttiefni á þök og veggi.
• Utanhússmálningu á pappa og stein.
• Álbrons og lím.
Ennfremur seljum við Varta-rafhlöður og rafgeyma.
Allskyns þvotta- og hreinsiefni, smurolíur og margt fleira.
OLÍS-umboöiö Dalvík.
BLIKI HF. Sími 61431.
Lí
□
□
□
□
QC
Höfum fengið umboð fyrir
BILLY hillusamstæðum.
Komið og kynnið
ykkur hagstætt
verð.
Vorum að taka upp mikið úrval af fallegum handklæðum.
Verslunin Sogn sf. sími 61300.
NORÐURSLÓÐ - 3