Norðurslóð - 25.10.1983, Page 4
Bændaskólinn á Hólum settur
Blómlegt skólastarf á fornhelgu setri
Föstudaginn 7. okt. var bænda-
skólinn á Hólum settur í dóm-
kirkjunni. Athöfnin hafði ekki
verið auglýst utan sveitarinnar,
en samt var kirkjan hálffull af
fólki, nemendum og staðarfólki
og gestum úr nágrenninu. A
Hólum sjálfum hafa umsvif
aukist svo upp á síðkastið, að
þar eru nú búsettir u.þ.b. 50
manns auk nemenda í bænda-
skóla og barnaskóla.
Jón Bjarnason skólastjóri
setti skólann með ræðu og
ennfremur flutti ávarp fyrir
hönd landbúnaðarráðuneytisins
Sveinbjörn Dagfinnsson ráðu-
neytisstjóri. Staðarprestur flutti
ræðu og norska konan hans,
organisti og söngkennari, lék á
kirkjuorgelið góða og kirkju-
gestir sungu sálmana.
Með þessu byrjaði seinna
námsár „efri deildar" skólans,
þ.e. þeirra nema, sem byrjuðu í
fyrra haust og voru við verknám
á bæjum hér um slóðir og víðará
útmánuðum og fram á vor í
fyrra. Þessir nemendur eru 20
talsins. Hinsvegar tók „neðri
deild“ til starfa 20. sept. þegar
10 manna hópur hóf nám. Sá
hópur á að fara í verknámið eftir
áramótin. Þá tekur skólinn á
móti öðrum 10 manna hópi, sem
fer í verknámið undir vorið og
fram á sumar. Þetta fyrirkomu-
lag var tekið upp vegna skorts á
heimavistarrými.
Af þessum 40 manna
nemendahóp verða stúlkur 15
en piltar 25, og koma úr öllum
landshlutum úr sveitum og
bæjum.
A þessu ári hefur vel miðað
áfram endurreisninni á skóla-
setrinu. Annar áfangi hesthúss-
ins er orðinn fokheldur þ.e.
hlaða og „aðstöðuhús" og loð-
dýrabúið hefur risið af grunni.
Minnkabúið fór í gang á árinu
en refabúið fer í gang um ára-
mótin. Þá hefur Hólahreppur
byggt tvö íbúðarhús á staðnum,
sem starfsmenn við skólann fá
leigt í.
Það er mjög ánægjulegt að
koma i Hóla þessi misserin og
verða vitni af þeirri markvissu
uppbyggingu, sem þar fer nú
fram undir handleiðslu hins
dugmikla skólastjóra og með
góðum skilningi fulltrúa ríkis-
valdsins.
Svarfdælir á Hólum
Áður hefur það verið rakið hér í
blaðinu hve mikil samskipti
Svarfdælir hafa átt við Hóla-
skóla í þau 100 ár, sem hann
hefur starfað. Það er ánægjulegt
að sjá, að enn eru þessi samskipti
við lýði. Einn nemandi héðan úr
dalnum byrjar nám þar í vetur,
Sólrún Ingvadóttir á Bakka.
Ennfremur er þar nýráðinn
fjósameistari, Elva Jónmunds-
dóttir á Hrafnsstöðum, búfræð-
ingur frá skólanum 1981.
Að lokum er þess að geta að
Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn,
sem verið hefur fulltrúi Eyfirð-
inga í skólanefndinni og þar
áður í sérstakri nefnd sem
ráðherra skipaði til að gera
tillögu um uppbyggingu á
Hólum, gekk nú úr skólanefnd-
inni. í hans stað hefur Búnaðar-
samband Eyjafjarðar valið
Jóhann Olafsson bónda á Ytra-
Hvarfi í Svarfaðardal fulltrúa
Eyfirðinga í nefndina.
Félag Verslunar- og Skrif-
stofufólks á Akureyri/Eyja-
firði
óskar félagsmönnum sinum á Dalvik og
nágrenni gæfu og gengis á nýbyrjuðum vetri.
Bændur
Hólar í Hjaltadal.
Þinir pemnpar
eru menra vnði í
KJÖRMARKVÐS
Verslið í Hrísalundi
og sannfærist um
lágt vöruverð.
Kjötborðin full af
glæsilegum kjötrétt-
um. - Fyrsta flokks
þjónusta.
Lítið inn í
HRÍSALUND
HRÍSALUNDI 5
Haustverð á heyvinnuvélum
Eigum á lager:
heytætiur,
heyhleðsluvagna
Guffen mykjudreifara,
OC ALFA-LAVAL
mykjudælur,
ImM|I|I|||0 áburðardreifara.
Véladeild KEA siniigqam
Véladeild Sambandsins
Atvinna - Bónus!
Um leið og við óskum starfsfólki og viðskiptavinum góðs og
gæfuríks vetrar og þökkum samskiptin á liðnu sumri,
minnum við á að við höfum enn pláss fyrir fleira fólk í
snyrtingu og pökkun.
Allar nánari upplýsingar í síma 61211 og 61212.
Frystihús KEA Dalvík.
4 - NORÐURSLÓÐ