Norðurslóð - 13.12.1983, Page 2
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvík
Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn
Sími 96-61555
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar
Nýtt ár - nýjar vonir
Fyrir skömmu var Bruno Kreisky fyrrverandi kanslari
Austurríkis í heimsókn í Noregi, þar sem hann hélt fyrir-
lestur í Verkalýðssambandinu í Osió og blaðamannafund á
eftir.
Þessi stórmerki stjórnmálamaður lét í Ijós miklar áhyggjur
af vaxandi hörku í kalda stríðinu milli austurs og vesturs.
„Það er hœttulegt' sagði hann „þegar stjórnmálamennirnir
eru farnir að leita ráða hjá marskálkum og generálum. Það er
hlutverk herforingja að heyja stríð og vinna. Þegar herforingi
er spurður verður svarið á hernaðarvísu“.
Þetta viljum við undirstrika að gefnu tilefni og vara við að
íslensk stjórnvöld þiggi ráð hjá herfræðingum. Tilefnið er
uppástunga, án efa komin frá einhverjum bandarískum
hernaðaraðilum, að komið verði upp nýjum radarstöðvum á
norðurhornum Islands. Hugmyndin hlýtur að vera þaðan
komin, enda þótt hún sé borin fram á íslensku af manni úr
okkar röðum og reynt að gera hana aðlaðandi með því að
tengja hana öryggismálum sjómanna okkar og flugmanna.
Fátt gæti nú gerst óæskilegra en það að tvinna saman meir
en orðið er öryggismál Islendinga á sjó og í lofti og hernaðar-
hafsmuni Bandaríkjanna og Nato hinsvegar.
Það er mjög sennilegt að meirihluti þjóðarinnar sætti sig
við núverandi hlutdeild okkar í bandalaginu, e.t.v. mikill
meirihluti. Kannske má segja sem svo, að það ríki nokkurs
konar jafnvægi í ósamkomulaginu um veru okkar þar. Hitt er
aftur á móti víst að það jafnvægi væri úr sögunni og upp
hæfust grimmilegar, nýjar innanlandsdeilur, ef nú ætti að fara
að stíga frekari skref í átt til meiri umsvifa á hernaðarsviði.
Þó að þetta sé máske mál, sem varðar alla Islendinga jafnt,
þá snertir það okkur, sem búum hér á norðurslóðum landsins,
meir en aðra, af því að það myndi færa anga vígbúnaðar-
kapphlaupsins fetinu nær okkur en verið hefur um sinn.
Það væri verðugt verkefni héraðs- og fréttablaða á Vest-
fjöíðum og Norðurlandi að þau beittu sér einarðlega, og hvar
í flokki sem aðstandendur þeirra standa, gegn slíkum
hugmyndum og vöruðu stjórnvöld okkar við að Ijá máls á
aðgerðum, sem ekkert gott gæti af leitt, en myndu valda
hatrömum innanlandsátökum, sem ekki er á bætandi.
Ef til vill er rödd okkar lágvær, þessara litlu héraðs-
málgagna. En ef við mælum einum rómi, þá skal mál okkar
þó heyrast alla leið upp í stjórnarráð íslands í Reykjavík.
Að svo mæltu vill Norðurslóð óska lesendum sínum og allri
þjóðinni gleðilegra jóla og láta í ljós þá von, að nýtt ár - árið
1984 - verði ár vaxandi friðar og aukins trúnaðar milli manna
og þjóða, svo eitthvað verði leiðrétt af þeim óheillasporum,
sem stigin hafa verið í samskiptum þjóða á umliðnum
misserum. H.E.Þ.
JÓLADRYKKIR
FRÁ SANITAS
20% afsláttur af
1 lítra flöskum
Pepsi Cola - 7Up -
Appelsín - Dit pepsi
Gerðið verðsamanburð
á öðrum flöskustærðum
Ekkert jólaborð án
SANITASDRYKKJA
SANA umboðið
Ásvegi 13, Dalvík
sími 61304.
Kveðja til níræðrar
kvenhetju
Þann 26. júlí í sumar varð
Sesselja Eldjárn á Hrafnistu í
Reykjavík níræð. Þótt síðbúin
sé vill Norðurslóð nú senda
henni heillakveðju í tilefni
afmælisins.
Sesselja Guðrún var yngsta
barn síðustu presthjónanna á
Tjörn, þeirra Petrínu Soffiu
Hjörleifsdóttur og sr. Kristjáns
Eldjárns Þórarinssonar. Hún
er eina barn þeirra, sem enn
lifir, og jafnframt er hún hin
eina af barnabörnum eldri
presthjónanna Hjörleifs
Guttormssonar og Guðlaugar
Björnsdóttur, sem nú er á lífi.
Sesselja hefur á langri æfi
lagt á margt gjörva hönd t.d. á
félagsmálasviðinu. Sem ung
stúlka á Dalvík tók hún þátt í
að stofna Ungmennafélag
Svarfdæla og á Akureyri
mörgum árum síðar var hún
megindriffjöðrin i að mynda
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins þar og gegndi formennsku í
því lengi og af miklum skör-
ungsskap.
Flestir muna hana þó að
líkindum best sem ráðskonu í
M.A. og síðar í eigin mötu-
neyti í Rósenborg og í Brekku-
götu 9 á Akureyri. Síðari stað-
urinn var eins og sambland af
hóteli og einkaheimili fyrir
mikinn fjölda manna, náms-
manna og annarra, um langt
árabil. Aratugurinn 1930-40
var trúlega blómaskeiðið í
greiðasölustarfsemi þeirra
systra, Sesselju og Ingibjargar,
sem jafnan fylgdust að og
stóðu hlið við hlið í lífsbarátt-
unni.
Sella hélt 90 ára afmæli sitt
hátíðlega hér í Svarfaðardal og
á Akureyri í sumar, þar sem
félagar hennar í Kvennadeild
Slysavarnafélagsins héldu
henni dýrðlega veislu.
Hún hefur nú um nokkurt
skeið átt heima á Hrafnistu í
Reykjavík. Hún er mikill unn-
andi Norðurslóðar eins og
margir brottfluttir Svarfdælir.
I sumar sendi- hún blaðinu
laglega peningasendingu og
skrifaði utan á: Til besta
blaðsins á fslandi.
Norðurslóð þakkar sending-
una og þessa einkunn, sem alveg
örugglega er gefin í hjartans
einlægni.
Blaðið sendir Sesselju bestu
jóla- og nýárskveðjur. Hún er
góður fulltrúi þess stóra hóps
Svarfdæla sem á morgni aldar-
innar hleyptu heimadraganum
og hösluðu sér völd á vettvangi
starfsins utan heimabyggðar, en
héldu samt áfram að vera
Svarfdælir í hug og hjarta til
hinstu stundar.
H.E.Þ.
Hver er
maðunnn?
Ef þú lesandi góður telur þig
þekkja einhverja mynd, láttu
okkur vita í síma eða pósti.
Júlíus Kristjánsson, Hólavegi 7
Dalvík, sími 61218
Jónas Hallgrímsson, Bjarkar-
braut 1, Dalvík, sími 61116
IV.
Samkórinn og barnakórinn syngja útifyrir skólanum, stjórnandi
Colin P.Virr.
Æskan syngur
2 - NORÐURSLÓÐ