Norðurslóð - 13.12.1983, Blaðsíða 9
Sigluvíkur-J ónas
Barnakennari í Svarfaðardal fyrir 100 árum síðan
I sálnaregistri Vallasóknar á
áratugnum 1880-90 er greint frá
stétt eða stöðu manna á heimil-
unum eins og ætlast var til af
prestunum. Það er fremur til-
breytingarlítil lesning, það eru
bændur og skyldulið þeirra,
húsmenn, vinnumenn og konur
og niðursetningar, þetta sama
upp aftur og aftur. En svo er þar
fyrir utan einn maður, sem er
titlaður kennari og er talinn til
heimilis á Ytra-Hvarfi. Maður-
inn hét Jónas Jónsson.
Arftaki hans hér í sveitinni,
Björn Þórleifsson skólastjóri á
Húsabakka, tók saman með-
fylgjandi þátt um Jónas fyrir
jólablað Norðurslóðar.
Ég kveð þig
Svarfaðardalur
í ágúst 1884 birtist grein í
Norðanfara á Akureyri undir
yfirskriftinni KVEÐJA. Undir
greinina ritar Jónas Jónsson, en
hann titlar sig barnakennara. í
greininni tjáir hann lesendum
að hann ætli nú að flytja héðan
til Ameríku, til ástkærra skyld-
menna sinna og yina, sem ætli
að taka við sér og gera sér æfi-
kvöldið svo blítt og rólegt sem
auðið er.
í seinni hluta greinarinnar
segir höfundurinn orðrétt: Ég
kveð þig Svarfaðardalur! sveitin
mín fornfræga og tignarlega,
með hinum risavöxnu fjalla-
tindum þínum er minna á forn-
aldarfrægð, frelsið og mann-
dáðina. Hjá þér og börnum
þínum hef ég dvalið hátt á
annan tug ára, hjá þér hef ég
liðið súrt og sætt, er ég hirði ei
hér að nafngreina; hjá þér hef ég
af alvöru leitast við að sá
Guðkynjuðu menntafræi í
hjörtu hinna ungu óspilltu
sálna, en af því ég hefi því miður
oft orðið var við þyrna innanum
sem vilja spretta með og kæfa
hitt niður, sem mest eru áhrif af
spilltum aldaranda, þá hef ég þá
von til Guðs, að áminningum
mínum muni þó ekki að öllu
gleymt verða og þess vil ég biðja
Guð af hjarta.
Jónas lýkur kveðjuorðum
sínum með óskum um að allir
þeir, sem tilsagnar hafa notið
hjá honum, taki framförum í
öllu góðu og verði nytsamir
borgarar í mannfélaginu og
sannir hjálparmenn hinnar að-
þrengdu gömlu fósturjarðar.
Hver var þessi Jónas?
Jónas fæddist í Sigluvík á
Svalbarðsströnd 11. okt. 1828.
Foreldrar hans voru J,ón
Þórarinsson bóndi í Sigluvík óg
kona hans Guðrún Þórarins-
dóttir. Jónas átti til Svarf-
dælinga að telja. Faðir hans var
sonur Þórarins Sigfússonar sem
var prestur á Tjörn 1807-1814
og Soffíu Halldórsdóttur konu
hans. Guðrún móðuramma
Jónasar vardóttir Jóns Sigurðs-
sonar sem bjó á Urðum 1781-
Sigluvíkur-Jónas.
1821 og áður á Böggvisstöðum,
og fyrri konu hans Þóreyjar.
Jónas var bóndi á Veigastöð-
um í Svalbarðsstrandarhreppi
árin 1854-56 og að Þórustöðum
í Kaupangssveit árið 1856-57.
Þá gerðist hann bóndi og síðar
húsmaður í Sigluvík 1857-62.
Jónas var sagður lítill búmaður,
en bóka og fræðimaður. Hann
safnaði gömlum sögnum og var
ágætur skrifari. Hann þótti gott
skáld og orti töluvert eins og
önnur alþýðuskáld við ýmisleg
tækifæri.
Björn Þórleifsson.
Það sem bersýnilega hefur
ráðið lífshlaupi Jónasar eftir að
■ hann gafst upp á búskap, var að
honum lét vel að segja börnum
til. Hann brá því til þess ráðs, að
taka að sér kennslu barna víðs
vegar um Eyjafjörð. Hann var
talinn góður sundmaður og
kenndi mörgum sund.
Gamlar sagnir
Á uppvaxtarárum Jónasar var í
Sigluvík niðurseta, Guðrún að
nafni. Hún var dóttir Þorgeirs
Stefánssonar, sem kallaður var
Galdra-Geiri og vakti upp
Þorgeirsbola. Jónas lagði sig
eftir að safna sögum eftir
Guðrúnu og eru einhverjar
þeirra til á prenti.
Eitt vor í kring um 1840 voru
Jónas og Guðrún að bera afrak
af einu túninu og lá hjá þeim
hundur, sem sleikti sólskinið.
Kerling nam allt í einu staðar,
starði út með landinu, greip
síðan hundinn og hóf hann á
loft. Sveiflaði hún hundinum
síðan mörgum sinnum upp og
niður á móti norðri og tautaði
eitthvað um „bölvaða Gríms-
eyinga“. Voru það síst fagrar
fyrirbænir er hrutu af vörum
kerlingar. Jónas varð hissa á
þessum aðförum kerlingarinnar
og spurði hana, hvers vegna hún
léti svona. Kerling svaraði því til
að fylgjur Grímseyinga væru að
koma. Faðir hennar heitinn
hefði stundum átt í brösum við
þá, svo hún þekkti svo sem
fylgjurnar þeirra. Þegarádaginn
leið sást til báts sem sigldi inn
með landi, rétt við túnfótinn í
Sigluvík. Voru þar Grímseying-
ar á leið í kaupstað.
Alþýðuskáldið
Jónas orti margt og mikið, bæði
ljóð og fjölda af lausavísum.
Ekki er neitt gefið út af
kveðskap hans, en kvæði
Jónasar, ritgerðir og þýðingar
eru til í eiginhandarriti hans í
Landsbókasafninu. Eru það
þykkar bækur, alls 1260 blað-
síður. Sést af því að hann hefur
stundað ritstörfin mikið, enda
var um hann sagt að hann væri
betur að sér í ýmsum alþýðleg-
um fróðleik en títt var um
almúgamenn.
Er Jónas var ungur í föður-
húsum orti hann bæjavísur. í
þeim er þessi vísa um hann
sjálfan:
Járnafestir jafnlyndur,
Jónas Sigluvíkur,
■þar við flesta þægð'bindur,
það er hans besti mannkostur.
í þessari vísu kennir hann sig
við Sigluvík, en jafnan síðar var
hann kenndur við fæðingarstað
sinn og nefndur Sigluvíkur-
Jónas.
Meðal þess sem Jónas orti
voru hestavísur. Má sem dæmi
um þær taka:
Ei hjá þjóðum indæli
annað fann ég meira,
en ríða góðum gæðingi
græna slóð á vordegi.
Hopaði fet í framlögum
folinn þolinri hvergi,
líkt og hetja í hólmgöngum,
hót ei lét af kostunum.
Ekki er vitað hvaða nautnir
hafa verið að freista hans þegar
hann kvað eftirfarandi vísu: J
Rammt er að líða fýsna flog •
á fleyi geðshræringa,
bágt er að skríða um skerjavog
skyldu og tilfinninga.
En í næstu vísu er dapurlegur
tónn:
Er mér horfin auðnu sól
undir bakka kífsins,
þar sem forðum fékk ég skjól
í fellibyljum lífsins.
Kennsla í Svarfaðardal
Talið er að leið Sigluvíkur-
Jónasar hafi legið í Svarfaðar-
dalinn í kring um 1870. Trúlega
hefur hann átt hér skyldmenni,
sem hafa verið honum innan
handar við að útvega nemendur.
Heimildir geta hvergi um á
hvaða bæjum hann hefurkennt,
en líkast til hefur hann farið á
milli bæja og kennt víða. Gestur
Vilhjálmsson, fyrrum bóndi í
Bakkagerðum, sagði að Jónas
hefði kennt Kristínu móður
sinni, er hún var telpa heima á
Jarðbrú. Sagði Gestur að hún
hefði talað um hann sem góðan
kennara. Gestursagðist líka vita
til að Jónas hefði verið í Brekku
og þá hefði Margrét kona hans
verið með honum. Þá bjó í
Brekku Sveinbjörn Halldórs-
son, bróðir séra Zophoniasar í
Viðvík. Sveinbjörn var járn-
smiður góður, en Gestur sagðist
hafa heyrt að hann hefði verið
eitthvað veill á geði og
Margrét kona Jónasar hafi
sinnt honum í þeim veikindum.
Stundum átti hún til að hátta sig
hjá Sveinbirni á kvöldin, trúlega
til að hafa hann rólegan.
Kannski hefur hún líka haft
gaman af því sjálf, sagði Gestur.
En þá á hún eitt sinn að hafa
sagt við mann sinn. „Þúertekki
hræddur um mig Jónas?“ E.t.v.
hefur Jónas ekki talið sig þurfa
að vera það, því Margrét var 18
árum eldri en Sveinbjörn.
Gestur minntist þess, að árið
1879 var starfræktur skóli að
Ytra-Hvarfi með einhverjum
styrk frá hreppnum. Sigluvíicur-
Jónas kenndi þar, enda var
hann þar heimilisfastur um
árabil. Að öðru leyti er erfitt að
tiltaka þá staði, sem hann hefur
verið á, en elstu Svarfdæling-
arnir telja að hann hafi verið að
Hamri og fleiri bæjum á utan-
verðum Austurkjálka og á
Upsum og fleiri bæjum á Upsa-
strönd.
Til Ameríku
Árið 1884 var Margrét kona
Jónasar dáin. Hann ákvað þá
að flytjast til Ameríku og eyða
ævikvöldinu þar hjá ættingjum
sínum. Síðla það ár fer hann af
stað vestur um haf, en skrifar
áður kveðjugreinina, sem
minnst er á í upphafi.
í Sögu íslendinga í Norður
Dakota er minnst á Jónas
nokkrum orðum, en flest virðist
rangt sem um hann er sagt þar,
nema að hann hafi komið og
farið aftur. Jónas dvaldi í
Ontariofylki og Norður-Dakota
til ársins 1890, en þá varð
heimþráin svo sterk, að hún dró
hann heim í móðurskaut Fjalla-
konunnar, þar sem hann vildi
„sofna síðasta blund og síðasta
stríðið heyja.“
Þegar Jónas kom aftur frá
Ameríku, lagði hann leið sína í
Svarfaðardal á ný og var við
kennslu hér fram að alda-
mótum.
Síðustu árin
Börn þeirra Sigluvíkur-Jónasar
og Margrétar voru: Þórarinn
Fœkka tekur fisk í sjó,
fátt um stóra drœtti. . .
Eyjafjarðar byggðin breið
býr sig undir jólin . . .
Við ís og bjarta elda skírð
var œltarsveilin prúða.
Hún enn er söm í sólardýrð
og sveipuð mjallarskrúða,
með fjöllin mánaskini skyggð
í skrúða minninganna.
Hún laðar hugann, Ljótólfsbyggð
og landnám Grundarmanna.
Jónas f. 1854, Sigfús Júlíus f.
1855 og Margrét Ingibjörg f.
1856. Þórarinn sonur Jónasar
var bóndi á Brekku í Svarfaðar-
dal 1877-78. Síðar bjó hann á
Æsustöðum í Eyjafirði. Börn
hans tóku sér ættarnafnið Þór.
Meðal þeirra var Vilhjálmur,
sem var kaupfélagsstjóri KEA
og framkvæmdastjóri SÍS.
Árið 1902 brá hann búi og
settist að á Akureyri. Hjá
honum dvaldi Jónas síðustu ár
ævi sinnar.
Á síðustu árum sínum kvað
Jónas:
Mér er orðin hvíldin kær,
komið er nóg af hinu,
alltaf færist nær og nær
náðartakmarkinu.
Sigluvíkur-Jónas lást 15.
febrúar árið 1907. í Norðra
birtist tilkynning um lát hans og
því Iofað að minningarorð
muni birtast um hann síðar. Þau
minningarorð munu ekki hafa
birst enn.
Norðurslóð er besta blað,
búin góðum kostum . . .
Um þínar byggðir - þína jörð,
um þína farsœld alla,
þar hollar vœtlir haldi vörð
við hástól þinna fjalla.
Þœr blessi sérhvern bœ og höld,
svo blómgist sveitin fríða.
Með ásýnd þinni íslands skjöld
um aldir skalt þú prýða.
I gögnum skjalasafnsins á Dalvík eru þessar vel gerðu vísur á
blaði merktar stöfunum J.A.
Ætli höfundurinn sé ekki Jóhannes Arngrímsson. Vill
einhver gera athugasemd?
Heimildir:
Ólafur Þ. Kristjánsson - Kennaratal á íslandi 1958.
Bókaútgáfan Þjóðsaga - Amma 1961.
Stefán Aðalsteinsson - Svarfdælingar, seinna bindi 1978.
Thorstína S. Jackson - Saga íslendinga í N. Dakota 1926.
Bókaútgáfan Þjóðsaga - Gríma hin nýja 3. og 5. bindi 1946-1965.
Norðanfari 1884.
Munnlegar heimildir: Gestur Vilhjálmsson, frá Bakkagerði.
------------------------------------------------------------
Ljóðagetraun Norðurslóðar '83 .. .
1. Hverju svaraði mærin?
2. Hverju hefur seggurinn svinni glatað og hve lengi?
3. Hvar er í heimi hœli tryggt?
4. Hver snýr undan og sofnar?
5. Hver hefur drjúgast drukkið íslands blóð?
6. Hverju huldist dagur?
7. Hvað sœmir vel að sjáist kringum fjárhúsið?
8. Hverju vildi ég geta vafið að hjarta þínu?
9. Hvar beið ég þín undir björkunum?
10. Hver sefur á hverjum bœ?
11. Hvað ber þíns heimalands mót?
12. Hvernig fœðist nágranni dauðans?
13. Hver mœlti að ég skyldi kaupa fley og fagrar árar?
14. / hverju glitra þang og skeljar?
15. Hver er mesti gœðagammur?
16. Hvern þvinga ég kring um Strútinn?
17. Hver er algrœnn á eyðisöndum?
. 18. Hverju velkja straumar og votir vindar til og frá?
19. Hvað œtla hinir sér leyfist?
20. Hvers vegna er hugurinn nú ei heima?
21. Hverjum sór ég ungur eiða?
22. Hverjir þuldu Ijóð meðan öxin buldi?
23. Hvar liggur lítil rúst?
24. Fyrir hvað hafa skatnar oft þegið angur og mein?
25. Hvað blasti við allt um kring?
Eins og áður veitir Norðurslóð verðlaun fyrir bestu
lausnir, ein fyrir Ljóðagetraun, önnur fyrir krossgátu og
hin þriðju fyrir bestu botna. Skjaldborgarútgáfan gefur
verðlaunabækur.
Góða skemmtun.
________________________________________________________
Hér eru 3 fyrripartar að vísu. Er nokkur,
sem treystir sér til að botna?
Ástaróður til Svarfaðardals
NORÐURSLÓÐ - 9