Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1983, Side 22

Norðurslóð - 13.12.1983, Side 22
Svarfdælsk byggð & bær SKIRN. Þann 3. des. var skírður Víðir Örn sonur Ómars Arnar Arn- björnssonar og Lilju Friðriksdóttur, Ægisgötu 3, Dalvík. Sigtýr. Júlíus. DÁNARFREGNIR. Mánudaginn 28. nóv. lést á heimili sínu Karlsrauðatorgi 20 á Dalvík Sigtýr Ármann Sigurðsson, fyrrv. kaupmaður. Sigtýr varfæddurað Hólum i Hjaltadal 5. okt. árið 1906. Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson og Sigfríður Sigurðardóttir frá Sælu. Hann ólst að mestu upp með foreldrum sínum, en þau dvöldust á ýmsum stöðum svo sem Skagafirði, Siglufirði, Hrísey og loks hér á Dalvík. Hann gekk i barnaskóla og unglingaskóla á Siglufirði. Þá fór hann á námskeið á Akur- eyri bæði í siglingafræði og vélgæslu. Hann stundaði m.a. sjó hér frá Dalvík og þá ýmist sem vélstjóri eða formaður og gerði út trillubát héðan. Síðan fékkst hann við verslunarstörf og hafði verslun í nokkur ár. Þá var hann einnig bílstjóri hér. Þann 25. des. árið 1936 kvæntist hann Kristínu Stefánsdóttur frá Gröf í Vallasókn. Þau eignuðust 2 sonu, Sigurð Arnar og Sævar, sem báðir eru nú búsettir á Akureyri, kvæntir fjöl- skyldumenn. Sigtýr var maður vel gefinn og vel lesinn og fróður um marga hluti. Hann var listfengur, góður leikari og leikstjóri og lagði mikið til þeirra mála. Hann var ljóðelskur og allvel hagmæltur. Sigtýr var hinn mætasti maður og var sæti hans vel skipað. Bróðir hans var Páll Steindór rithöf- undur. Útför Sigtýs var gerð frá Dalvíkurkirkju 3. þ.m. St.Sn. Þann 25. nóvember andaðist í Reykjavík Júlíus JónHalldórs- son, fyrrv. sjómaður, fisksali o.fl. Hann fæddist í Brekku- koti hér í sveit 2. sept. árið 1911, sonur hjónanna Guðrúnar Júlíusdóttur frá Syðra-Garðshorni og Halldórs Sigfússonar frá Grund. Frá 8 ára aldri ólst hann upp á Dalvík (í húsinu Grund). Hann stundaði sjó sem vélstjóri frá Dalvík og síðar á Akureyri. Um 1960 flutti hann suður þarsem hann stundaði fiskverkun og verslun og lagði á margt gjörva hönd. Hann kvæntist Kristínu Sigmarsdóttur ættaðri frá Aust- Qörðum 1932. Börn þeirra eru Eðvarð, Brynjar og Hildur, og eru afkomendur Júlíusar orðnir margir í 3 ættliði. Júlíus tók mikinn þátt í félagsstarfi Svarfdælinga í Reykja- vík og nágrenni og hélt órofa tryggð við uppruna sinn og heimabyggð. (Sjá þáttinn Heiman ég fór í Norðurslóð í júní 1982.) . . . og sveifla rokk með kvikum fæti“ Ljósm.: Hailgrimur Einarsson. ELSTI BORGARINN SOFFÍA Á URÐUM / heiðardalnum er heimbyggð mínjþar hef ég lifað glaðar stundir. Hún sat á bekk í Urðabað- stofunni þegar ég gekk í bæinn 2. des. Hún sat álút yfir prjóna- skapnum. „Já, þetta á nú að vera á hana Lilju litlu í Klaufra- koti (dóttur-dóttur-dóttur mína.)“ Það er hún Soffía á Urðum, sem þetta mælir, 92 ára gömul kona, elsti borgarinn í Svarfaðardalshreppi. Það er gaman að hitta þessa konu og tala við hana svona glaða og brosandi og Ijómandi af ánægju og innri friði, eða þannig verkar hún á mig. Soffía fæddist 18. júlí 1891,6. barn hjónanna í Göngustaða- koti Jónínu Jónsdóttur frá Göngustöðum og Jóhannesar Sigurðssonar frá Auðnum. Börn þeirra hjóna urðu alls 9, synirnir Jón og Sigurður og dæturnar Þuríður, Sigríður, Snjólaug, Anna, Soffía, Sólveig og Stein- unn. Heyrt hef ég menn segja að sá mikli ættbogi, sem kominn er út af þeim hjónum Jónínu og Jóni, sem lengst bjuggu á Hærings- stöðum, sésvarfdælskasturallra Svarfdælinga. Sjálf voru þau hreinræktaðir Svarfdælingar og segja má að börn þeirra öll giftust Svarfdælingum og byggju innan héraðs og eiga hér urmul afkomenda. Sú saga er sögð, að þegar yngsta dóttirin, Steinunn, giftist manni sínum Árna Valdemars- syni, hafi presturinn sr. Stefán Kristinsson átt að segja: „Jæja, þá getur nú Jóhannes minn á Hringsstöðum ekki hjálpað upp á fleiri unga menn hér í sveitinni. En nú eru þessi systkini dáin fyrir nokkru - öll nema Soffía. Það er þess virði að kynnast henni svolítið og hnýsast eftir æfiferli hennar. Og það er heldur engin fyrirstaða með það, hún svarar öllum spurn- ingum greiðlega og af mesta lítillæti. Það kemur í ljós að hún hefur ekki beinlínis gert víðreist um dagana eins og sagt er. Og svona liggur slóðin sem hér skal greina. 6 bœir í dalnum. Á Göngustöðumfæddist hún. Barn að aldri fór hún í dvöl út í Auðnir til frænda sinna þar. 12 ára gömul fór hún svo yfir í Hæringsstaði til foreldra sinna, sem þangaðfluttu 1903. Þarátti hún svo heima til þess að hún var 24 ára gömul og giftist Hallgrími Einarssyni frá Koti. Athöfnin fór fram í Urðakirkju 6. júní 1915. Sr. Kristján Eldjárn á Tjörn gaf brúðhjónin saman. Og það var nú ekki mikið tilstand. En mamma gaf samt gott kaffi, þegar heim kom. Svo fóru ungu hjónin að búa á Þorsteinsstöðum strax um haustið og bjuggu þar í 11 ár. Þar voru nú heldur smá og fátækleg húsakynni. Baðstofan var svo mjó að ef setið var á rúmunum báðumegin var ekki hægt að hafa rokk á milli. En einhvern veginn baslaðist það nú allt saman áfram og lífíð gekk sinn gang án stórra sviptinga. Börnin komu í heim- inn, Lilja 1916, Jónína 1919 og Einar 1921. Svo voru fóstur- drengir þeir bræðurnir Friðrik og Jón Sigurðssynir (síðar í Hánefsstöðum og Kambi á Dalvík). Sömuleiðis Jóhann Sigurðsson frá Göngustöðum, sem var hjá þeim fjöldamörg ár. Þetta urðu sem sagt 11 ár þar Soffía og Hallgrímur. til nýi eigandi Þorsteinsstaða, Tryggvi Halldórsson, þurfti á jörðinni að halda og hóf þar búskap 1926. Þá fluttu Hall- grímur og fjölskylda út í Klaufa- brekknakot (sem þá og jafnvel enn er stytt svo skemmtilega í Klaufrakot). Þar voru þau leigjendur Gunnlaugs Jóns- sonar, sem átti jörðina. Land- skuld (jarðarleiga) var 6 dilkar árlega. Og þeir voru nú ekki valdir af verri endanum hjá honum Hallgrimi, því hann var nú svoleiðis maður, sem ekki vildi láta standa upp á sig í viðskiptum. Þetta var nú blómaskeið búskapar þeirra Hallgríms og Soffíu, 20 ársamfleytt. Reyndar var kotið skelfing rýrt og hreint útilokað að hafa sæmilegt bú þarna. En þó, 3-4 kýr og 50-60 ær, þessu var hægt að fleyta með sæmilegu móti og af þessu varð að lifa. Og það tókst líka bara ágætlega, því Hallgrímur kunni að fara vel með skepnur og hafa af þeim nytjar og Soffía kunni að fara vel með takmörkuð efni til heimilishalds. Og börnin voru dugleg og vinnusöm, þegar þau komu til, svo alít blessaðist vel. Það er hægt að bjargast við smátt, þegar fólk er nægjusamt að eðlisfari og samtaka um að fara vel með hlutina. Og þannig var Klaufrakotsfjölskyldan. Svo festu börnin ráð sitt og fóru að búa þarna á bæjunum. Lilja heima í Klaufrakoti, Jónína á Klaufabrekkum og Eirtar á Urðum. Þá fluttu gömlu hjónin, sem reyndar voru nú ekki svo gömul, úteftir til þeirra hjóna Einars og Guðlaugar. Hallgrímur andaðist 1966, en hér situr Soffía enn og prjónar sokk á barna-barna-barn. / fjallasalnum. Þetta er þá í fáum dráttum rösklega 90 ára ferill Soffíu á Urðum. Hann hefur allur orðið innan umgerðar hinna háu og ægifögru fjalla, sem umlykja byggð fram-Svarfaðardals. Alla æfi hefur hún haft fyrir augun- um þessi tignarlegu fjöll, Kerlingu, Hæringsstaðahyrnu, Skeiðsfjall, Vífílsfjall, Hnjóta- fjall, Skjöld, Gimbrarhnjúk, Áuðnasýlingu, Urðafjall svo nokkur séu nefnd. Álla æfi hefur Heljardalsheiðin blasað við henni í vestrinu ef litið var uppeftir dalnum og Rimarnar ef litið var niðureftir. Hvergi virð- ist fær smuga út úr þessum dal, fjöll, fjöll á alla vegu. En kunnugir vita samt að það er fær leið niður úr og meginbyggð Svarfaðardals opnast skyndi- lega, þegar komið er dálítið út í Urðaengið. Þarna hefur Soffía lifað lífi sínu bæði vel og lengi. Og hefur hún þá aldrei farið út úr fæðingarsveit sinni? Jú, það fór þó aldrei svo. Hún hefur farið alla leið vestur á Sauðár- krók í vesturátt og til Mývatns- sveitar í austurátt. En til Húsa- víkur? Nei, ekki svo langt austur, bara Mývatnssveit. Hún fór nú yfir Heljardalsheiði vestur í Kolbeinsdal og Hjaltadal, þegar hún var ung og ógefin í föðurgarði. M.a.s. bæði að sumar- og vetrarlagi. Og síðar, þegar hún hafði eignast skagfirska tengdadóttur, fór hún nokkrum sinnum á bil vestur í Hofsós og þar um kring. Framhald á bls. 16.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.