Norðurslóð - 26.06.1985, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær
9. árgangur Miðvikudagur 26. júní 1985
6. tölublað
Konur planta trjám
Varla hefur það farið fram hjá mörgum að kvenþjöðin hefur verið
athafnasöm upp á síðkastið. Hámarki náði athafnasemin 19. dag
júnímánaðar og þar í kring - á kvennadaginn.
lól'a þeirra 10 þúsundkrónu-
seðlum til að styrkja málstað-
inn, en Rósa á Sökku var ein af
Trjáræktarkonur við Húsabakka.
- Ljósm. S.H.
Kvennadagurinn í ár var
öðrum kvennadögum merkari
því nú voru liðin 70 ár frá þeim
atburði, scm gefur deginum
sögulegt gildi, þ.e. lög frá
Alþingi, scm veittu konum
kosningarétt.
Eitt al' því sem samtök
kvenna ákváðu að gera í tilefni
almælisins var að gróðursetja
tré um land allt, jalnmörg og
konur eru í landinu a.m.k. Hér í
Svarl'aðardal tók kvenlelagið
1 ilraun málið upp á arma sína
og kaus nefnd þriggja kvenna,
sem þó eru ekki allar félags-
bundnar, til að hrinda málinu í
framkvæmd.
Eins og við var að búast úr
þeirri átt tóku konurnar verk-
efnið föstum tökum og fram-
kvæmdu þaðafmiklumdugnaði
og myndarskap.
Þær fengu heimild hrepps-
nelndar til að girða ca. hektara
lands sunnan við Húsabakka-
skóla. Hreppurinn lagði til girð-
ingarelnið en konurnar mcð
aðstoð sjálfboðaliða sáu um
uppsetninguna. Síðan voru
keyptar um það bil 400 trjá-
plöntur einkum birki, lerki og
ösp auk víðitegunda. Til við-
bótar gaf svo Skógrækt ríkisins
Sambandi eyfirskra kvenna
stóra gjöf skógarplantna og
kom í hlut Tilraunar 125 stykki
af þeim.
Vænar garðplöntur eru býsna
dýrar, eins og menn vita, og
pyngja kvenfélagsins ekki allt of
þung. Það kom sér því vel,
þegar nefndarkonur voru að
íeggja afstað í innkaupaleiðang-
urinn inn í Kjarnaskóg að
Gunnlaugur á Sökku laumaði í
stofnendum kvenfélagsins fyrir
70 árum síðan og er enn í
félaginu.
Þarna við Húsabakkann er
nú kominn vísir af fögrum
skrúðgarði, sem vonandi á eftir
að blómgast og dalna og legra
skólasetrið. Vonandi einnig að
sveitarbúar kunni að meta það
ágæta framtak, sem konur hafa
hér sýnt og mætti vissulega
verða öðrum til fyrirmyndar.
Frá Vöku
Dalvík
Þann 19. júní sl. gróður-
settu konur hér við utanverðan
Eyjaljörð hjá Sambandi E\ lirskra
Fyrstu plönturnar gróðursettar.
kvenna um 5000 trjáplöntur, og
hrundu þar með í framkvæmd
hugmynd þeirri, sem kom fram
á fjölmiðlaráðstefnu K.í. á sl.
hausti, að minnast þess, að 70 ár
eru liðin frá því að konur hér á
landi öðluðust kosningarétt og
kjörgengi, einnig var þetta átak
gert vegna loka kvennaáratugar
Sameinuðu þjóðanna. Innan
Sambands Eylirskra kvennaeru
átta kvenfélög og stóðu þau
fyrir gróðursetningunni hvert í
sinni hcimabyggð, en konur
utan félags sem innan unnu að
gróðursetningunni. Skógrækt
ríkisins gal sambandinu 1000
plöntur, sem skipt var milli
f'élaganna.
Á Dalvík voru gróðursettar
1100 plöntur í skógarreit Dal-
víkinga í Böggvisstaðahólum.
Hafist var handa kl. 14.00 og
voru fyrstu plönturnar gróður-
settaraf þeim Guðlaugu Björns-
dóttur og Svanfríði Jónasdótt-
ur, en þær eru einu konurnar í
bæjarstjórn Dalvíkur. Fjöldi
kvenna var kominn á staðinn og
tóku þær strax til við að grafa
- Ljósm. T. Þ.
drykk, og nutu þess einnig allir
scm komu á staðinn. Unnið var
allan daginn í dásamlegu veðri
til kl. 21.00. Að síðustu voru
gróðursettar í tilraunaskyni,
nokkrar viðjuplöntur utan
girðingar, nánar tiltekið við
Stórhólstjörnina. í gestabók
sem lá frammi skriluðu um 100
manns nöfn sín, en llestír af
þeim unnu við gróðursetning-
una, nokkrir komu þó þarna til
þess að sjá hvernig gengi og þar
á meðal heiðraði bæjarstjóri
Dalvíkurbæjar okkur með því
að koma og þiggja heitt kakó og
kringlur. Trausti Þorsteinsson
skólastjóri, var okkur konum til
aðstoðar og stjórnaði hann
gróðursetningunni af miklum
dugnaði og áhuga, og kunnum
við honum bestu þakkir fyrir.
Það er von okkar, sem
lögðum lram fé og vinnu til
gróðursetningarinnar, að þessar
1100 trjáplöntur megi vaxa og
dafna og verða verðugur minnis-
varði þess, er konur öðluðust
kosningarétt og kjörgengi hér á
landi árið 1915.
Slappað af - kakó og kringlur.
holur og gróðursetja af miklum
dugnaði.
Flokkur frá unglingavinnunni
á Dalvík var búinn að gera um
200 holur áður og munaði
nokkuð um það, því að mesta
vinnan var við að gera holurnar
fyrir plönturnar. Konur úr
kvenféiaginu Vöku höfðu reist
tjald þar sem þær veittu þeim,
sem að gróðursetningu unnu
heitt kakó, kringlur og svala-
Skógarreitur Dalvíkinga í
Böggvisstaðahólum er vel í sveit
settur og er fram líða stundir á
þarna vafalaust eftir að verða
gott útivistarsvæði. Ef vel er að
málum staðið og unnið mark-
visst að framtíðarskipulagi á
reitnum væri það þarft og verð-
ugt verkefni lyrir íbúa Dalv íkur,
lélagasamtök eða einstaklinga
að gróðursetja þarna árlega og
hlúa að þeirn gróðri, sem nú
þegar hefur fest þarna rætur.
1 ITS.
Áður þungavinnuvélar nú niðursuða
Stórhóll
Nafnið er Stórhóll s.f. staðurinn heitir Sandskeið 20, síminn er
61694. Viðmælandinn er Jón Tryggvason stofnandi og nú fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Að Sandskeiði 20 er hús það, sem Þorieifssynir Reiniar og Rúnar
byggðu meðan þeir voru hvað sterkastir í kartöflubransanum. Nú
hafa þeir leigt þaö undir þessaóskyldu starfsemi ogsýnist þetta vera
hið besta hús og vel hentandi matvælaframleiðslu.
Við bjóðum okkur sjálfir þarna inn og tökum Jón framkvæmda-
stjóra tali.
Starfsfólk við vinnuborðið. F.v. Bogi Jónsson, Bryndís Hauksdóttir, Jón
Tryggvason, Cuðríður Bogadóttir.
Fjölskyldufyrirtæki
Upphaflega var Stórhóll fyrir-
tæki þeirra bræðra Jóns og
Jóhanns 'I ryggvasona og fjöl-
skyldna þeirra og var stofnað til
að reka þungavinnuvélar. Síðar
þróuðust rnálin á þá lund að
Jóhann dró sig út úr l'élaginu og
sneri sér að öörum viðlangsefn-
um, en Jón hélt áfram með
lélagið ásamt Ijölskyldu sinni,
en tók að þreifa lyrir sér á nýju
og óskyldu sviði, þ.e. framleiðslu
niðurlagðra sjávaralurða.
Húsakynni voru ófullnægj-
andi og reksturinn gekk brösu-
lega á stundum, en Jón þráaðist
við og galst ekki upp.
Ffsinn breytist í lax
Og hvað er það þá, sem unniöer
í stööinni? Jú, fyrst og lremst
hefur það verið og er niðurlagn-
ing á sneiddum og ennlrcmur
hökkuðum sjólaxi. Hvaða skepna
er nú það, spyr fréttamaður,
sem þykist kunna töluvert fyrir
sér í náttúrufræðum, cn kannast
ekki við þessa dýrategund? Að
sjállsögðu er hér um að ræða
ulsann okkar blessaða, sem á
ensku heitir þessu skrautlega
nafni, sea salmon. Ufsaflökin
eru lögð í reykolíu, síðan sneidd
niður og lögð í dósireða þaueru
hökkuð, og marningurinnsettur
j krukkur. Pakkningarnar eru
110 og 200 gramma og fram-
leiðslan fer öll á innaniands-
markað.
Framtíðin -
niðursoðin lifur
Nú eru framundan tímamót í
starfseminni. Ætlunin er að
snúa sér að niðursuðu á þorska-
og ufs'alifur þær ráðgerðir eru
allar með samráði Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins og
reyndar líka Sölustofnunar lag-
metis, sem Stórhóll s.f. er nú
aðili að. Til er sjóður, sem ber
hið virðulega nafn Þróunar-
sjóður lagmetis. Stjórn hans var
hér á ferð nýskeð og leit á rnálin
hjá Stórhól. í kjölfar þess fékk
fyrirtækið loforð fyrir 400
þúsund krónu stofnláni auk
ofurlítils styrks með því skilyrði
þó að verksmiðjan snéri sér að
lifrinni ásamt því sem fyrir er.
Fyrir þetta nýja fé verður fyrst
og fremst keypt forsuðuband og
gufuketill og fleira, sem þessari
vinnslulínu tilheyrir.
Lifrin yrði einkum fengin úr
afla dalviska bátaflotans, en
Jón telur æskilegt ef hægt væri
að fá áhafnir togaranna til að
halda til haga tilfallandi lifur
síðustu daga hverrar veiðiferðar
til að tryggja og lengja vinnslu-
Framh. á bls. 6