Norðurslóð


Norðurslóð - 17.12.1985, Side 3

Norðurslóð - 17.12.1985, Side 3
Úr nágrannabyggð Fréttir af Árskógsströnd alls atvinnulífs hér í hreppi eins og víða annars staðar hér í kring um okkur. Á síðari árum hefur floti Ströndunga stækkað og nú er komin í útgerðina á Litla- Árskógssandi tvö skip 155 og 180 lesta og má segja að með þeim skipti sköpum hvað varðar möguleika til að sækja lengra og í verri veðrum og um leið eykst fjölbreytni þess sem hægt er að veiða. Þessi skip voru bæði á síldveiðum í haust við Austfirði og gekk þeim vel að veiða í sinn kvóta. Þorskveiði er með mesta móti á þessu ári, þótt mörgum falli illa að verða að binda báta sina þegar úthlutuðu aflamagni er náð. Rækjuveiði er nú stunduð meira en nokkru sinni fyrr þótt afli og gæftir séu ekki alltaf sem skyldi. Unnið hefur verið í rækjuverksmiðjunni á þessu ári samtals 840 tonn og hefur eitthvað verið unnið alla mánuði ársins en þó mismikið, stundum jafnvel fleiri vikna stopp og er það vissulega erfitt bæði fyrir verkafólk og afkomu fyrirtækis- ins. Leita verður úrbóta til að breyta því til batnaðar. Dagheimili Dagvistun barna frá 2-6 ára er starfrækt hér í hreppnum og hófst þ. 19. sept. sl. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt er reynt hér í sveit. 20 börn hafa notið dagvistunar sum frá byrjun, önnur í smátíma, en 33 börn á þessum aldri eru búsett í sveit- inni. Nær eingöngu er um hálfs dags vistun að ræða. Þrjár konur vinna við stofnunina og eru nú allar í hálfu starfi. Þetta dagheimili er til húsa í Árskógi í kennaraíbúð, sem ekki þurfti að nota sem slíka nú í vetur. Þessi þjónusta við íbúa hreppsins hefur mælst vel fyrir og gengið vel. Mæður vinna nú utan heimilis meir en áður, einkum við sjávar- síðuna og hefur af og til verið um það rætt í undanförnum árum, hvort möguleiki væri á að starfrækja gæslu barna í ein- hverri mynd. Þess vegna var gerð tilraun, en hvort framhald verður í þessu formi á næstu árum verður reynslan að leiða í ljós. Framkvæmdir Þetta ágæta tíðarfar í haust hefur orðið til þess að útivinna við byggingaframkvæmdir hefur haldist stöðug allt til þessa dags og verkefni nokkur framundan, ef veðurguðirnir verða okkur hliðhollir enn um sinn. Ýmsar framkvæmdir hafa staðið yfir á þessu ári og útlit fyrir áframhald á því sviði. á lóðum fyrir íbúðarhúsnæði í báðum þorpunum. Þá voru stækkanir og breytingar á þrem íbúðarhúsum þessu til viðbótar í sveitinni. Uppsteypt viðbót á tveim hæðum við trésmíða- verkstæði á iðnaðarsvæðinu og er ætlað auk stækkunar á fyrir- tækinu, til ýmissar þjónustu í sveitafélaginu m.a. fyrir Spari- sjóð Árskógsstrandar, Árskógs- Stærri-Árskógskirkja. f sumar var lagað til austan við kirkjuna og áfram verður haldið á næsta ári. Mjög snoturt heim að líta frá þjóðveginum. í myrkri lýsir krossinn á turni kirkjunnar. Sólrún H/F á L-Árskógssandi byggði nær 400 m2 steinsteypta neðri hæð til viðbótar fyrir sína fiskverkun og er þar m.a. köld hráefnisgeymsla, viðgerðar- stofa o.fl. Unnið var að byggingu rað- húsa á þessu sumri og eru tvær íbúðir bæði á Hauganesi og Litla-Árskógssandi nær fok- heldar. Byrjað var á tveim einbýlis- húsum á Hauganesi og unnið við lengingu nýrrar götu þar og má segja að nokkurt framboð er hrepp, Brunabótafélagið o.fl. Þá er hafin bygging fyrir rækjuverksmiðjuna Arver H/F á iðnaðarsvæðinu og tekinn grunnur fyrir 800 m2 húsi til að byrja með. Reynt verður að halda áfram seinna í vetur. í Engihlíð var byggt fyrsta refahús hér í sveit á liðnu sumri, 300 m2 að stærð. Frá sjávarsíðunni Sjósókn og vinnsla aflans í landi er auk landbúnaðar uppistaða Ég var að lesa bók Á dögunum fór ég að blaða í tímaritinu Súlur, sem gefið er út á Akureyri. Það var reyndar frá því í hitt-eð-fyrra, en einhvern veginn hafði það farið fram hjá mér þangað til nú. í þessu riti er m.a. skemmtileg grein eftir Gísla Jónsson frá Hofi, Glefsur úr sögu Akur- eyrar. Það er þó önnur grein, sem ég ætla að vekja athygli á hér. Húnereftir BrynjuGrétars- dóttur, sem bjó hér á Dalvík um skeið, en misstist svo brott héðan, illu heiili, rétt eins og þeir hefðu ekki nóg af góðu fólki fyrir þarna í henni Reykja- vík. Nú ekki tjóir að sakast um það, snúum okkur heldur að greininni. Mjólkin færð af bílum yfir í bát. Félagslíf Um félagslífið hér er bara allt gott að segja, það virðist ætla að verða í svipuðu formi og verið hefur. Kvenfélagskonur koma saman af og til og vinna saman basarmuni af ýmsu tagi. Basar- inn er árviss og venjulega hald- inn um mánaðarmótin nóv. og stakt félag stendur að þessu, allir geta verið með og reynt er að dreifa nefndarstörfum sem jafnast á alla. Ungmennafélagið starfaði mikið í sumar. - íþrótt- ir, kappleikir, veitingasala, dans- leikir. - Þetta var svona það helsta. Nú er byrjað á félags- vist og bingóin eru jú af og til. Helgi Hróbjartsson sóknarprestur messar. Sjá altaristöflu Arngríms málara. des. Á vegum kvenfélagsins er saumanátúskeið þegar hafið og til.boða stendur að taka þátt í fjölmörgum tegundum nám- skeiða, en það verður víst að velja og hafna eftir ástæðum. Hjóna- og paradansleikur var hér 9. nóv. sl. Um þá skemmtun sér sjö hjóna nefnd og sama nefnd sér einnig um þorrablótið en þá er skipuð nefnd til næsta árs. Þessi háttur hefur verið hafður á í fjölda ára - líklega bara frá upphafi. Ekkert sér- Lionsmenn eru byrjaðir með sína fundi og aðra starfsemi. Sunnudaginn 24. nóv. buðu þeir eldri sveitungum í leikhúsið að sjá og heyra Jólaævintýrið. Á vegum kirkjunnar var kaffisala og aðalsafnaðarfundur eftir messu þ. 17. nóv. þráttfyrir hvassviðri nokkuð. Björgunarsveit Slysavarna- deildarinnar heldur fundi reglu- lega og er tiltæk ef á þarf að halda að sinni sínu hlutverki. svj/ám Mjólkursala í hálfa öld Grein Brynju fjallar sem sé um Mjólkurfiutninga í Svarfaðar- dal, sem hófust sumarið 1934, jarðskjálftasumarið. Það var nokkurs konar reynslutími. Þá voru fluttir í Samlagið á Akur- eyri 13.326 og hálfur líter af mjólk úr Svarfaðardal og var meðalverðið 19,6 aurar á líter. Þetta gerir nálægt 3.600 krónur. Mjór er mikils vísir. Vorið eftir, þ.e. 1935, var síðan formlega stofnuð Svarf- dæladeild mjólkursamlagsins og kosnir í fyrstu stjórn þeir Ármann á Ur_ðum, Gunnlaugur á Sökku og Helgi á Þverá. Það er þessvegna hálf öld nú í ár, síðan þau stórmerku þáttaskil urðu í svarfdælskri atvinnu- sögu, sem smám saman hafa breytt þessari sveit úr slakri sauðfjárræktarsveit í fyrsta flokks mjólkurframleiðsluhérað með tilheyrandi framförum í almenn- um efnahag. Það er mjög fróðleg saga, sem þarna er rakin og sýnist mér Brynja gera henni ágæt skil og trúverðug. Hún styðst að sjálf- sögðu fyrst og fremst við gerða- bækur Mjólkursamlagsdeildar- innar og Mjólkurflutningafélags- ins eftir að það var stofnað árið 1950 (fram að þeim tíma hafði Svarfdæladeild KEA séð um flutningana). Einnig hefur hún / 43Et Brynja Grétarsdóttir. haft tal af gömlum mjólkurbíl- stjórum og fengið þá til að segja frá starfinu á árum áður. Það eru þeir Gestur Hjörleifsson, Jóhann Jónsson, Halldór Gunnlaugsson, Friðþjófur Þór- arinsson og Jón Jónsson, sem enn situr við stýrið og hefur haldið út lengur en nokkur annar. Það er þakkavert að hafa lengið þessa sögu skráða meðan enn eru uppistandandi menn, sem muna hana frá byrjun. Og i lokin: Er ekki einhver, sem á í fórum sínum góða mynd frá vetrarflutningum mjólkur með hestasleðum eða tragtorflutn- ingum að vetrarlagi? NORÐURSLÓÐ - 3

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.