Norðurslóð


Norðurslóð - 17.12.1985, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 17.12.1985, Blaðsíða 6
Sveitakona í Þórunnarstræti Soffía á Hofi segir frá Ég hafði samið við Soffíu frá Hofi um að fá aö hafa viðtal við hana í byggðarblaðið okkar. Þegar ég kom til hennar á Akureyri var hún uppi á sjúkrahúsi og hafði lærbrotnað í hálkunni uppi í mjaðmarlið. Okkur samdist um að ég kæmi viku síðar þegar hún væri komin heim. Það gerði ég. Spurningin var hvort hún yrði nógu upplögð fvrir svona jólaviðtal. En Soffía virtist ákveðin í að láta ekki bein- brotið eyðileggja meira fyrir sér en nauðsynlegt væri. Og svo byrjaði viðtalið. Hún fæddist að Hofi árið 1906 og var yngst systkinanna. Hin öll voru fædd á Syðra Hvarfi en þaðan fluttu foreldrar hennar 1904. Að undanskildum tveimur vetrum í Reykjavík. meðal annars í kvennaskóla, var hún svo samfleytt á Hofi þar til 1965 að hún flutti, 59 ára gömul. til Akureyrar og gerðist verka- kona. Hún er ógift en hélt þó löngum heimili og fjölskyldu. Það má skipta tíma hennar á Hofi í tvennt. Fyrst á heimili foreldranna, Gísla Jónssonarog Ingibjargar Þórðardóttur frá Hnjúki. á meðan Gísli stýrði búi. eða þar til 1926. Þá tók Jón bróðir hennar við búi með konu sinni Arnfríði Sigurhjartardótt- ur frá Urðum. Með tímanum hélt Soffía heimili foreldrum sínum, móðurömmu sinni Hall- dóru, fóstursystir Gísla er Guðrún hét og svo öðrum Gísla, Lalla, sem Soffía tók í fóstur barnungan og ól upp. „Eldra fólkið á Hofi náði háum aldri,“ segir Soffía. „Guðrún dó áttræð. mamma 82, pabbi 94 og amma 98.“ Eins og þú líklega veist var pabbi raurar meira við sitt handverk en við búið. í smíð- unum var hann jafn vígur á tré ogjárn. Hann smíðaði mörg hús s.s. Urðarkirkju, íbúðarhús t.d. á Völlum og Dæli, þó nokkrar brýr o.s.frv. Hann var ólærður smiður en tók samt nema. Hann bæði saumaði aktygi og batt Ingibjörg Þórðardóttir. Mamma „Móðir mín var góður bóndi og meiri bóndi en pabbi. Hún var mjög verklagin og ég man t.d. hvað hún var lagin að hjálpa ánum til burð.“ Soffía er heldur treg til að tala um sjálfa sig. Hins vegar á hún kærar minningar um móður sína og talar fúslega um hana. „Hún var sérstök hún mamma. Ég held hún hafi verið mjög heilbrigð og fordómalaus í hugsun. Hún var t.d. ekkert hrædd við að standa ein og brjóta gegn gömlum hefðum og reglum. Hún vareinstök tóskap- Gísli Jónsson. Athafnasamur maður, Gísli „Ég held að Hofsheimilið (Gísla og Ingibjargar, Þ.H.) hafi verið mjög traust þar sem mikil fyrir- hyggja réði á öllum sviðum. Búið þótti nokkuð stórt og jörðin grasgefin þótt túnið væri þá lítið hjá því sem síðar varð bækur, ekki síst bækur Lestrar- félagsins. Verksvitið var gott og hann vann sér verkin létt. Þá var hann fljótur að tileinka sér þá tækni sem hingað kom. Þess vegna voru þeir heimilis- og búskaparhættir sem ég ólst upp við alltaf nútímalegir miðað við það sem þá gerðist. Þau fengu til dæmis bæði skilvindu og eldavél meðan þau bjuggu á Hvarfi og arkona og ég man hve spari- fötin okkar sem hún saumaði voru óskaplega fín. „Það á að sjást ef þið hafið fataskipti“, sagði hún. En hversdagslega lét hún okkur stelpurnar oft vera í buxum ef kalt var. Það hneyksl- aði marga. Hún tók ekki heldur hátíð- lega þá gömlu verkaskiptingu í garðinum á Hofí í júlí 1920. Fremri röð: Þorleifur á Hofsá, Gunnlaugur Gíslason, Jón á Hofi, Soffía á Hofi og Ingibjörg á Hofi. Aftari röð: Ingibjörg Kristjánsdóttir, Halldóra Gísladóttir, Dagbjört Gísladóttir, Rögnvaldur í Dæli, Guðrún Stefánsdóttir og Gísli Jónsson bóndi og smiður. hjá Jóni. Ég man hvað ég fann fyrir miklu öryggi á haustin þegar búið var að ganga frá öllum haustverkum. Búið að birgja sig upp af eldivið, salta kjötið ofan í tunnur, setja kartöflur næsta sumars og útsæði ofan í skemmugólfið og þvíumlíkt. Pabbi hafði áhuga á garðrækt og við höfðum vermi- reit, þ.e. niðurgrafinn heyrudda og hrossatað sem hitnaði í undir plöntunum og gler svo ofaná. Tryggvi á Hvarfi hafði hinsvegar vermireit í fjósþakinu. vatnsleiðsla kom í Hof áriðsem ég fæddist, 1906. Vagn að flytja hey á höfðum við frá því ég man fyrst. Ég held að eldavéhn hafi verið sú fyrsta nothæfa í daln- um. Og pabbi setti þær margar niður og setti líka saman sláttu- vélar fyrir fólk. Hann fórjafnvel vestur í Skagafjörð að setja saman sláttuvél þar. Pabbi var hinsvegar varkár að ráðast í stórræði og þá var það yfirleitt mamma sem hvatti hann áfram. Hún var ákafari til framkvæmda.“ milli kynja sem yfirleitt var farið nokkuð strangt eftir. Hún lét strákana í kvenmannsverk, t.d. kenndi þeim að mjólka, og okkur stelpurnar lét hún vinna ýmis karlmannsverk. Pabba var ekkert um þetta gefið, sérstak- lega ekki það að láta strákana í kvenmannsverkin. Mamma var bæði örlynd og hreinlynd. Sagði fólki meiningu sína hreint út. Fyrir það misskildu hana margir, en ég heyrði hana aldrei tala fólki á bak og þoldi okkur ekki að gera það heldur. Hún var 6 - NORÐURSLÓÐ fljót að reiðast og svo rauk það fljótt úr henni aftur. Ég man hvernig hún hellti sér einu sinni yfir Gamalíel á Skeggstöðum út af ágangi hestanna hans í Hofs- túnið. En strax á eftir bað hún hann blessaðan að koma inn í kaffi. Mamrna hafði létta lund og var söngelsk. Yfirleitt söng hún mikið við rokkin. Og það var nú meira hvað hún gat hlegið hjartanlega. Hún bókstaflega veltist um þegar henni var skemmt. Hún vildi hafa heimilið glatt og það var gott að alast upp á Hofi. Þessi tími sem ég ólst upp á var góður tími fyrir unglinga. Uppeldið var dálítið strangt en ekki þessi blindi strangleiki sem áður var algeng- ur. En það var öruggi í tilver- unni og við vissum vel hvað við máttum og máttum ekki.“ Útivinna og Jói í Skriðu Ég spurði Soffíu nú nánar út í störf hennar sjálfrar, m.a. þau karlmannsverk sem hún minnt- ist á. „Já, ég vann flest verk, sló talsvert, batt í bagga, tók svörð, risti þó ekki ofan af. Svo vann ég mikið við kindurnar og ef ég á að hæla mér fyrir eitthvað er það helst það að ég var mjög fjár- glögg. Minn heimur var úti með skepnunum. Þar vildi ég helst vera. Ég var oft send til að hjálpa Jóa í Skriðu að binda og flytja heim. Hann vareinstæðingurog einsetumaður þarna í kotinu. Hann var ekki verklaginn en ágætlega greindur. Hann orti um mig vísu sem er svona: Soffía er sómafljóð. Um sínar æskuleiðir rösk hún er og ráðagóð, úr raunum mörgum greiðir. Þær raunir sem ég greiddi úr fyrir hann voru t.d. að benda honum á hvar hann ætti kindur í haganum. Hann var ófjárglögg- ur og ég þekkti féð hans miklu betur en hann. Mér þótti mjög vænt um Jóa í Skriðu." Búskaparhættir - vöruskipti Við ræddum um búskaparhætti æskuáranna. „Þegar ég var stelpa á Hofi Soffía Gísladóttir. Mjólkin var skilin, rjóminn strokkaður og svo voru stærðar smjörstykki tekin af strokkn- um. Þau voru geymd á dimmum og svölum stað þar til komið var í fullt kvartil. Svo voru kvartilin slegin til og send til Akureyrar. (Kvartil: lítil tunna, 60 eða stundum 120 merkur. Slegin til: slegin botn í báða enda, Þ.H.) Þetta var áður en farið var að versla verulega á Dalvík. Auðvitað var heimilið miklu meira sjálfbjarga um flesta hluti en nú er, þó var farið í verslun. Pabbi og mamma fóru í kaup- stað haust og vor. Aðalviðskipta- vinur pabba á Akureyri var Snorri Jónsson sem var Svarf- dælingur, bróðir Halldóru ömmu minnar. Snorri hafði, með Rögnvaldi syni sínum, heilmikla verslun með smíðavörur og annað og verulega útgerð. Pabbi sendi smjörið til Snorra og fékk í staðinn vörur til heimilisins og smíðanna. Aðrar vörur sem sendar voru inneftir voru nátt- úrulega ull og svo kindur á fæti. Þá var markaður heima í Hofsrétt viku eftir göngur. Þángað komu bændur með kindur og svo kaupmenn frá Akureyri. Snorri var þar líka eða menn frá honum. Svo var prúttað og gerð kaup. Það var heldur betur mannþröng í bæn- um heima þá dagana. Síðan var féð rekið inneftir og slátrað þar. Þetta var áður en sláturhúsið kom á Dalvík. En pabbi var lítill kaupfélagsmaður og gekk aldrei í kaupfélagið. Þótt rjómabúið kæmi á Dalvík hélt hann áfram að senda smjörkvartilin inneftir. Og þegar sláturhúsið kom ytra sendi hann áfram kjötið til Systkinin á Hofi. Jón, Soffía, Halldóra, Dagbjört og Gunnlaugur. var enn fært frá þótt ekki væri það svo lengi að ég t.d. sæti kvía- ærnar. Það var mikið fært frá. Ég sé stúlkurnar enn fyrir mér þar sem þær koma með fjórar fullar mjólkurfötur úr kvíunum. Snorra. Þá slátruðum við og unnum kjötið heima. Það var saltað ofaní tunnur, ýmist stór- höggvið eða spaðhöggvið. Kjöt- Framh. á bls. 7

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.