Norðurslóð


Norðurslóð - 17.12.1985, Side 19

Norðurslóð - 17.12.1985, Side 19
Framh. af bls. 13 ár enn, sem lausráðinn í hluta úr starfi á skrifstofunni við gömlu störfin mín. Það fannst mér mjög gott og ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að hafa þetta svona. Ég vann hjá KEA undirstjórn þriggja kaupfélagsstjóra, fyrst Vilhjálms, þá Jakobs og síðast Vals og mér hefur fallið ljóm- andi við þá alla. Við byggðum Bjarkarlund Mig langar í lokin að segja frá því þegar við reistum Bjarka- lund í Vaglaskógi, sumarhús Starfsmannafélags KEA. Það var laugardagskvöld 5. júní 1932 að við fórum á tveimur vörubílum austur í Vaglaskóg til að byggja hús á grunni í skóginum, sem hafði verið lokið við áður. Jakob hefur verið formaður félagsins þá, hann var það fyrstu árin. Síðan tók við sem formaður lngimundur Áma- son. Og sjálfur var ég reyndar formaður félagsins um skeið eftir 1940 tvö ár og aftur seinna. Við vorum líklega uppundir 20 menn, sem fórum austur. Það var þá enginn vegur að staðnum, bara heim að Vagla- bænum. Svo þurftum við að bera allt efnið og við það vorum við alla nóttina, við sem ekki vorum taldir nýtilegir smiðir. En hinir, Jakob og Jónas Kristjánsson og Aðalsteinn Jónatansson og Björn Sigmunds- son og fleiri, sem gátu haldið á hamri, þeir byrjuðu undireins á smíðinni. Tvennt var það sem við treystum okkur ekki til að bera. Annað var eldavél, talsvert stór og þung, hitt var járnið á þakið. Svo við fengum lánaðan hest og kerru hjá Þorsteini Davíðssyni, sem þá var skógarvörður á Vöglum, og fórum með þessi þungu stykki á kerrunni niður laut, sem þarna er, voðalega brött og erfið. Það voru 4 menn með kaðla, sem voru bundnir í kerruna svo að hún rynni ekki fram á klár- inn. Það var unnið alla nóttina og allan sunnudaginn, en þá var húsið orðið fokhelt. Ég minnist þess að á sunnudaginn kom Halldór Ásgeirsson, Arnheiður Skaftadóttir og fleiri stúlkur frá KEA með meiri mat handa okkur og studdu okkur með ráðum og dáð. Nielsen forstjóri Smjörlíkisgerðarinnar var þarna kokkur og var alltaf að elda mat og hita kaffi, svo við höfðum nóg að bíta og brenna. Þetta hús var fyrst ein hæð bara með skúrþaki. Tveimur árum síðar var bætt ofan á og gert ris, svo þetta varð ágætt hús. Ég man að Gunnar heitinn Larsen var með. En hann fór ekki heim með okkur um sunnu- dagskvöldið, heldur tók sér þarna sumarfrí og bjó þá í húsinu, óinnréttuðu auðvitað. Hann tók sig þá til og bjó til úr skógargreinum nafnið á húsið, sem þar er enn þann dag í dag sunnan á stafninum. Jú ennþá stendur þetta góða hús okkar, en ég veit að nú er búið að byggja 2 eða 3 önnur hús þarna. Og ég hef heyrt út undan mér að það eigi kannske að rífa gamla húsið. Til þess má ég nú helst ekki hugsa, þetta hús á sér svo langa og skemmtilega sögu og margir eru búnir að eiga þar góða daga. Önnur félagsstörf Ég hef alltaf verið félagslyndur, held ég. Ef ég ætti að fara að tíunda það, þá get ég sagt það, að ég var a.m.k. einn áratug ritari í stjórn Leikfélags Akur- eyrar, þó aldrei hafi ég komið á svið. En ég starfaði þar mikið sem souffleur (hvíslari), dyra- vörður o.fl. Þá held ég að ég hafi verið rúmlega tvo áratugi í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga, vann þar með fram úr skarandi mönnum, ánægjulegustu félög- um, sem ég hef nokkurn tímann unnið með. Þar nægir að nefna Ármann Dalmannsson, sr. Sigurð á Möðruvöllum, sr. Benjamín á Laugalandi, Guðmund Karl Pétursson, Helga á Þórustöð- um, og Þorstein Davíðsson. Þarna var valinn maður í hverju rúmi, þ.e.a.s. að mér undan- teknum. Afskaplega skemmti- legir fundir, sem við héldum. Nú eru flestir þessir menn farnir af þessum heimi. Svo var það náttúrulega Ferðafélag Akureyrar. Þar var ég í stjórn í 25 ár og einn af stofnendum reyndar. Þorsteinn Þorsteinsson, sá ágæti maður, var nú reyndar lífið og sálin í * * * * * * * * * * * * * * * * * * * h.f. * * * * * * * * * * * * * * Dalvíkingar, } heima og heiman | ^ *■ ^ Við minnum á jólablómin og £ skreytingarnar. í * * * * * * * * * * * í Gleðileg jól og þökkum t í viðskiptin á árinu. * Hringið og við sendum. Síminn er 96-61405. * * * * * T Y * *★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★* þessu og lengst af framkvæmda- stjóri hjá félaginu og venju- lega fararstjóri í ferðum. Það var mikið og gott starf í félaginu og er enn fram á þennan dag. Það hefur hver ágætismaðurinn tekið við af öðrum í formannsstöðunni, Tryggvi Þorsteinsson, Jón Dalmann Ármansson, Valgarður bæjargjaldkeri Baldvinsson o.fl. Og ekki má gleyma kvenfólkinu. Þær hafa ekki látið sinn hlut eftir liggja, t.d. Sesselja Eldjárn, sem lengi vel var með í næstum hverri ferð. Það var oft skemmti- legt heima hjá henni á fundum. Ég hef ferðast heilmikið bæði erlendis og hér um landið í byggðum og um hálendið. Hvergi hef ég þó farið oftar en um Heljardalsheiði. Hana hef ég farið 26 sinnum, oftast að vetrarlagi. Og enn langar mig til að fara yfir Helju, en það get ég líklega aldrei héðan af. Fæturnir eru svo lélegir. Það er eiginlega það eina sem er bilað í mér. En af því ég er að tala um ferðalög þá ætla ég að segja, að ekkert finnst mér hafa breytt lífi mínu og fjölskyldunnar meir en það að eignast bíl. Þetta finnst nú einhverjum fáfengilegt. En bílinn eignaðist ég 1947. Mér fannst við verða svo frjáls að geta farið hvert sem var og hvenær sem var eitthvað burt í einhverja átt á eigin farartæki. Mér fannst ég geta gert svo miklu meira fyrir fólkið mitt, konuna, dæturnar og svo barna- börnin, þegar þau komu til. Og að síðustu, meðan við erum að tala um félagsmála- störf mín, þa má ég ekki gleyma kirkjunni. Ég er búinn að vera meðhjálpari í Akureyrarkirkju síðan á sjómannadaginn 1. júní 1962 og er enn. Ég er búinn að aðstoða marga presta og mér hefur líkað prýðilega við þá alla. Og svo var ég lengi í sóknar- nefndinni, þangað til núna á síðasta aðalfundi að ég sagði af mér. Ég hef haft óblandna ánægju af öllum mínum störfum í þágu kirkjunnar. Og mér er það satt að segja mikils virði að halda þessum tengslum við fólk í félagsstörfum. Maður einangr- ast ekki alveg á meðan. Að leikslokum Þú spyrð hvort þessi 82 ár hafi verið skemmtilegt ferðalag. Já, því svara ég hiklaust, mjög skemmtilegt oggott. Við hjónin vorum alla tíð afskaplega sam- rýmd, dæturnar hafa verið okkur einstaklega góðar og tendasynirnir alveg fram úr skarandi. Það hefur eiginlega allt leikið í lyndi síðan morgun- inn góða, þegar ég rölti með tvílembdu ána suður í Tjörn og hélt af stað út í lífið. Svo hef ég líka alltaf haft ánægju og áhuga fyrir starfi' mínu, hvaðsemþaðhefurverið. Og starfsfélaga hef ég eignast svo góða og marga að ekki verður tölu á komið. Ég er inni- lega þakklátur öllu og öllum, sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Jú þetta hefur verið mikil hamingjuganga. H.E.Þ. r ■ s i i i i i i i i i i i i L. Oskum viðskiptavinum vorum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á líðandi ári. Landsbanki íslands Strandgötu 1, Akureyri Brekkuafgreiðsla, Kaupangi I I s I s I I I I I I I I J Jólaölið frá Sana Nú í51 umbúðum á kr. 170.00 og 101 umbúðum á kr. 330.00. Pantanir í síma 61304 alla daga. i Gosdrykkir frá Sana á hvert borð. Ath. gerið verðsamanburð. Umboðið Ásvegi 13 Dl. ^ f NORÐURSLÓÐ - 19

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.