Norðurslóð - 21.01.1986, Page 1

Norðurslóð - 21.01.1986, Page 1
40- 50- Zo I heimsókn hjá Magnúsi bónda á Lágafelli í A-Landeyjum t.v. Framundan þroskaður byggakur. Vestmannaeyjar i baksýn t.h. ----------------III. S FMAmJJ'AóOM, d máw. Súluritið sýnir hvernig úrkoman skiptist á mánuðina. Breiða línan sýnir meðaltal áranna 1970-1984 en mjódregnu súlurnar úrkomuna 1985. Fyrstu 3 mánuðirnir eru undir meðallagi, en júlí og ágúst og okt. langt yfir meðal- laginu. Svarfdælsk byggð & bær 1. tölublað Þriðjudagur 21. janúar 1986 10. árgangur Veðráttan 1985 Votasti júlí í 15 ár Það rignir jafnt á réttláta sem rangláta - segir gamalt máltæki. Á undanförnum árum hefur norðlendingum, og austfirðingum ekki síður, fundist að það rigndi í raun öllu minna á réttláta (eins og vera ber). En s.l. sumar snérist þetta við þá rigndi látlaust á réttláta meðan ranglátir böðuðu sig í sólinni fyrir sunnan. Vegir Drottins eru órannsakanlegir. Þó læðist að manni sá iili grunur að hlutfall réttlátra og ranglátra sá e.t.v. jafnt í báðum landshlutum. En látum nú tölurnar tala. Úrkoman skiptist með eftirfarandi hætti á mánuðina: go~ 7o- Nýlega gaf Lionsklúbbur Dalvíkur skólunum á Dalvík og Húsabakka sitt vidótækið hvorum. Hér sést ritari klúbbsins Halldór Jóhannesson aflienda skólastjóranum á Húsdbakka, Birni Þórleifssyni tækið, en -skóla- stjóri Dalvíkurskóla, Trausti Þorsteinsson samgleðst kollega sínum. Ln\',n'’[]' H Ar- 'S'' * •SL.inns Laugardagskvöldið 18. janúar hélt Gömludansaklúbburinn ball á Grundinni. í hléi var sýnd myndin Við tökum marsinn sem tekin var á Þinghúsinu fyrir 5 árum. Myndin er 30 mín. löng og þykir skemmtileg. Hér sjást glaðbeittir Klaufabrekknafeðgar, Hreinn og Hallgrímur, stjórna marsi. Úrkoma Úrkomu- Mán. mm dagar Jan. 21,3 9 Feb. 5,3 4 Mars 31,9 17 Apr. 50,9 13 Maí 21,1 9 Jún. 30,4 10 Júl. 75,3 21 Ág. 63,2 19 Sept. 35,3 15 Okt. 100,6 21 Nóv. 39,8 12 Des. 38,0 18 Alls 513,1 168 Það má segja að góðærið sem ríkti árið 1984 hafi haldist fram á mitt ár 1985 en þá kom bak- slag í það og júlímánuður hefur aldrei verið jafn votviðrasamur síðan mælingar hófust á Tjörn árið 1970. Heildarúrkoman er lítið eitt yfir meðalúrkomu sem er 490 mm. Mesta sólarhrings- úrkoman mældist 26. okt. 29,1 mm sem ekki teljast nein ósköp. Veturinn frá áramótum var góður og snjóléttur. Alautt var orðið í byggð 18. apríl og þar sást ekki snjór á jörð aftur fyrr en 3. nóv. Á hálendi varsumarið hinsvegar heldur stutt, þar var vetrarsnjórinn horfinn 15. júní en 27. ágúst snjóaði á ný í fjöll og þann snjó tók aldrei fyllilega upp aftur. Norðurslóð fer víða. Einn af lesendum hennar er Magnús Finnbogason bóndi á Lágafelli í Austur-Landeyjum. Aðstand- endur Norðurslóðar hittu hann í sumar. Þá stóð kornskurður yfir í landeyjum og sólin skein á bleika akra. Svarfdælingum fannst þeir vera staddir í útlönd- um. Fljótlega fóru menn að bera saman veðurfarsbækur sínar. Það rignir að meðaltali þrisvar sinnum meira í Landeyjum en í neðanverðum Svarfaðardal. Sumarið ’85 var þó undan- tekning, þá rigndi meira fyrir norðan og Landeyingar réðu sér ekki fyrir kæti. Súluritið á mynd 2 sýnir þetta best. Mjó- dregnu súlurnar sýna úrkomuna eins og hún mælist á Hólmun í A-Landeyjum. Sumarið ’84 er óvenju þurrt fyrir norðan en fyrir sunnan eru úrkomusúl- umar himinháar. Þar eru sumar- mánuðirnir þrír með svipað úrkomumagn og meðalárið nyrðra. Sumarið ’85 hefur dæmið snúist sunnlendingum í hag. Misskipt er lífsins gæðum! ÁH Hólmum í Austur-Landeyjum. Úrkomán syðra er að meðaltali þrefalt meiri en nyrðra. í júlí og ágúst ’84 var hún þó áttfalt meiri. Sömu mánuðir '85 voru hins vegar snöggtum þurrari á Hólmum en á Tjörn.

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.