Norðurslóð - 21.01.1986, Síða 8
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírnir
Þann 25. desember \ar skírður í Vallakirkju. Ólafur Már.
Foreldrar hans eru Anna Sólveig Sigurjónsdóttir, Syðra-
Hvarfi, Svarfaðardal og Vilhjálmur Ólafsson, Urriðavatni.
Fellum, Múlasýslu.
Þann 26. desember var skírður í Dalbæ, Davíð Már.
Foreldrar hans eru Sigríður Guðmundsdóttir. Böggvisbraut
10, Dalvík og Björn Björnsson, Bárugötu 12, Dalvík.
Hjónavígsla
Þann 8. desember voru gefin saman í hjónaband í Dah íkur-
kirkju, Sœmundur Hrafn A ndersen og Freygerður Sigurðar-
dóttir. Heimili þeirra er að Sunnubraut 1, Dalvík.
Stjörnufræði IV
fáir eða engir hér um slóðir,
sjónarskilyrðin voru svo léleg.
Nú er hún að fara fyrir sólu og
kemur þaðan aftur og verður þá
sýnileg manna augum snemma í
febrúar. Áhugasamir stjörnu-
skoðarar verða þó að bregða sér
yfir á suðurhvel jarðar þar sest
hún vel þá, en það þykir núekki
mikið mál á vorum dögum.
Júpiter sést nú ekki lengur á
leið sinni yfir Skíðadalinn á
kvöldin eins og fyrr í vetur.
Engar aðrar reikistjörnur eru
heldur vel sýnilegar, en í apríl-
maí í vor fáum við aftur að sjá
Venus - sem kvöldstjörnu í það
skiptið.
Á meðan ættum við kannske
að glöggva_ okkur á fleiri fasta-
stjörnum. í fyrra lærðum við að
þekkja Pólstjörnuna og Karls-
vagninn og ennfremur Órion
Nú skulum við huga að
tveimur mjög björtum stjörnum
sem eru hátt á -himni Vegu og
Kapeldu. Þær ganga aldrei
undir þó aðfjöllin okkar séu há.
Vega eða Blástjarnan er í
merki Hörpunnar, áberandi
bláleit stjarna hátt á vestur-
loftinu á kvöldin. Kapella eða
kaupmannsstjarnan á merki
Ökumannsins er álíka hátt á
lofti en alveg í gagnstæðri átt
miðað við Pólstjörnu.
Hún er sem sé álíka langt
austan við Pólstjörnu eins og
Vega er vestan við hana - vel að
merkja á kvöldin. 12 tímum
seinna, .d. kl. 8 að morgni, hefur
þetta snúist alveg við.
Vonandi skilst þetta, en til
glöggvunar birtum við mynd úr
almanakinu þarsem áteiknaðar
línur benda frá Pólstjörnu á
Vegu t.v. og Kapellu t.h.
Hross á Dalvík.
Vetrarfuglarnir 1985
Þá er komið að því að hafa spurnir af vetrarfuglunum okkar hérna á
svæöinu. Það er einn af föstu póstunum á prógrammi ársins hjá
Norðurslóð.
Það var sunnudagurinn 29. desember, sem heill her liðsmanna
Náttúrufræðistofnunar lagði af stað í fuglatalningu í öllum
héruðum landsins.
Hér voru Iiðsmennirnir að venju Steingrímur Þorsteinsson á
Dalvík og Hjörleifur og Kristján Hjartarsynir á Tjörn.
Dalvík
Steingrímur segir svo: Fariðvar
um sama svæði og undanfarin
ár þ.e. meðfram sjónum frá
mynni Svarfaðardalsár að
Brimnesá. Veður var SV 2
vinstig, frost 12°, alhvít jörð. en
snjór ekki mikill. Ár og vötn
ísilögð. Veður gott til talningar.
Þessir fuglar sáust:
Stokkönd 42
Hávella 55
Straumönd 2
Æðarfugl 115
Sendlingur 12
Silfurmáfur 40
Svartbakur 60
Hvítmáfur 4
Hettumáfur 2
Hrafn 8
Snjótittlingur 30
Ógreindir fuglar 26
Steingrímur bætti við: Minna
bar á flækingsfuglum hér síðast-
liðið haust en oit áður. í júlí í
sumar komu hinsvegar fremur
sjaldséðir gestir. Það voru kross-
nefir, sem höfðu hér nokkra við-
dvöl. Þetta eru skrautlegir fuglar
og vekja því eftirtekt, bæði
rnanna og því miður líka katta,
sem vilja verða þeirn skeinu-
hættir.
Tjörn
Farinn var hefðbundinn hing-
ur: Tjörn, Hánefsstaðaskógur,
Húsabakki, Laugahlíð og við-
koma á skurðum norðan og
sunnan Tjarnar.
Þessi varð afraksturinn:
Rjúpa 19
Auðnutittlingur 5
Snjótittlingur 9
Hrafn “ 4
Smyrill 1
Rjúpurnar og auðnutittling-
arnir voru í Hánefsstaðaskógi,
en smyrillinn í trjáreitnum
sunnan við Laugahlíð. Því má
bæta við, að smyrlar eru ekki
venjulegir vetrarfuglar hér á
landi, en þó segir Steingrímur,
að nýlega hafi haldið til á
Dalvík 2 smyrlar langan tíma að
vetri.
Enginn músarrindill sást hér
þennan tiltekna dag, en nú hins-
vegar fyrir nokkrum dögum var
einn að skjótast innan um trjá-
gróður og við opin augu á
bæjarlæknum á Tjörn.
Gaman væri að lesendur
blaðsins segðu fréttir af merki-
legum fuglum, sem fyrir augu
þeirra ber. „
Fréttahornið
• *
Olunn h f hefur nú í eldi
rúmlega 7.000 laxa, sem þeir
hafa haft í kerjum innanhúss
síðan í vor. Ef allt gengur að
óskum ættu þeir að slátra milli
16 og 18 tonnum af laxi næsta
haust. Til samanburðar má geta
þess að þeir slátruðu 6,5 tonnum af
fiski síðastliðið haust. Smátt og
smátt mun þessi rekstur því
aukast, enda sýnist árangur
fyrsta árs lofa góðu.
Þeir hjá Ölni eru sagðir íhuga
verulega stækkun á komandi
vori. Rætt hefur verið um að
setja upp 2 ker sem tækju 400 tn
af sjó hvort. Þess má geta að
þeir hafa nú 4 ker 50 tn hvert. Ef
af þessari stækkun verður má
gera ráðfyriraðársframleiðslan
verði 50-60 tonn af fiski eða
tíföldun frá því í haust.
^Brynjólfur Oddson eða Billó
starfaði á vegum Þróunarstofnun-
ar íslands á Grænhöfðaeyjum, en
kom heim síðastliðið vor og hefur
verið skipstjóri á Blika síðan.
Billó er nú á förum aftur til
Grænhöfðaeyja og verður stýri-
maður á Feng þar. Sigurður
Kristjánsson hefur tekið við
skipstjórn á Blika.
S amkór Dalvíkur var talsvert
í sviðsljósinu um síðustu jól.
Tveir konsertr voru í Víkurröst,
auk blysfarar og söngs á götum
úti fyrir jólin. „Kvöld á Dalvík“
hét þáttur í Útvarpinu nú um
jólin þar sem kórinn kom fram.
Þannig má segja að Samkórinn
hafi sett mikinn jólasvip á
bæinn. Fyrirhugað var að kór-
inn hæfi starf að nýju strax upp
úr áramótum. Þegar til átti að
taka vantar það margt söngfólk
að ekki er sýnt að kórinn verði
starfhæfur. Rætt hefur verið um
að breyta talsvert út af um val á
lögum og verkum. Ýmsar hug-
myndir hafa verið uppi í þeim
efnum, jafnvel söngleikur. Ef
fleiri koma ekki til starfa eru
mestar líkur á að það verði
enginn efnisskrá. Fréttahornið
vill koma þeirri frétt á framfæri
að söngfólk vantar í allar
raddir.
^Björgvin Hjörleifsson hefur
yerið ráðinn skíðaþjálfari hér í
vetur. Björgvin starfaði síðast-
liðna þrjá vetur hjá ÍR í Reykja-
vík sem skíðaþjálfari við ágætan
orðstý. Hann mun einnig þjálfa
Ólafsfirðinga í vetur. Um næstu
helgi verður nýja skíðalyftan
tekin í notkun. Líkur eru á að
þegar þessar línur eru að
þrykkjast á blað í prentsmiðju
sé ítalinn, sem kom frá fram-
leiðendum, að ljúka uppsetn-
ingu lyftunnar. Við höfum fyrir
satt að mikil breyting verði til
batnaðar á aðstöðu fyrir byrj-
endur þegar lyftan er komin í
gagnið, en að sjálfsögðu verður
aðstaðan meiri og betri fyrir
alla.
-Leikfélag Dalvíkur er að
byrja æfingar á leikritinu Jóa
eftir Kjartan Ragnarsson. Leik-
stjórinn Margrét Óskarsdóttir
kom til Dalvíkur nú fyrir
helgina. Svipaða sögu er að
segja hjá leikfélaginu og sam-
kórnum það er erfitt að fá fólk
til starfa. Oft hefur verið barn-
ingur að fá fólk til félagsstarfa,
en eftir lýsingu forsvarsmanna
þessara félaga að dæma keyrir
nú um þverbak. Leikfélags-
fólkið hallast einna helst að því
að menn telji sig þjóna leiklistar-
gyðjunni nægjanlega með
sjónvarps- og vidioglápi. Ef
verkið verður mannað er áætlað
að æfingar standi yfir í sex
vikur. Ný stjórn var kosin hjá
leikfélaginu á síðasta ári. Hana
skipa nú: Guðlaug Björnsdóttir
formaður, Björn Björnsson,
Guðbjörg Antonsdóttir, Ingvar
Jóhannsson og Heiða Hilmars-
dóttir.
J ón Tryggvason hefur nú
fengið nokkur útgerðarfyrirtæki
og einstaklinga í lið með sér til
að treysta þá starfsemi sem
hefur verið á vegum Stórhóls.
Stofnað hefur verið hlutafélagið
Pólstjarnan sem yfirtekur
eignir og rekstur Stórhóls. Til
viðbótar því sem þar hefur farið
fram verður soðin niður lifur. í
stjórn hins nýja fyrirtækis eru
Björgvin Gunnlaugsson, Gunnar
Friðriksson, Eiríkur Ágústsson
og Jón Tryggvason allir frá
Dalvík og svo Hörður Gunnars-
son frá Árskógssandi.
2^.ðfaranótt sunnudags, 19.
jan. var brotist inn í Bílaverk-
stæði Dalvíkur ogstolið þvísem
til var í kassanum. Það voru
reyndar ekki nema ca 7000
krónur. Meira hafðist ekki upp
úr því krafsinu.
Málið er í rannsókn.
^Jm þessar mundir eru vegir
mjög svellrunnir og þurfa bíl-
stjórar að sýna mikla aðgát við
aksturinn.
Það hafa orðið margar útaf-
keyrslur og önnur óhöpp, sem
þó hafa ekki haft slys í för með
sér. Einna alvarlegast var það
sem henti við Holtsárbrúna á
laugardaginn. Ökumaður á leið
framanað náði ekki beygjunni
upp á brúna svo bíllinn stakkst í
ána. Það bjargaði að allir voru
spenntir í sætin, hjón í fram-
sæti og barn þeirra í aftursætinu.
Beygjan við Holtsárbrúna er
líka einhver upplagðasta slysa-
gildra á þjóðvegi í allri Eyja-
Ijarðarsýslu.
liörnin syngja.