Norðurslóð - 22.04.1986, Qupperneq 6

Norðurslóð - 22.04.1986, Qupperneq 6
Heilsugæslustöðin á Dalvík Starfsfólk leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins á Akureyri verður á Heilsugæslustöðinni á Dalvík dagana 5., 6. og 23. maí 1986 frákl. 10.00-16.00. Konur 20 ára og eldri eru beðnar að mæta, sérstaklega þær sem aldrei hafa komiö áður. Markmið þessarar skoðunar er að greina byrjunarstig krabbameins í leghálsi, grindar- holi og brjóstum. Æskilegt er að fara í slíka skoðun annað- eða þriðjahvert ár. Verð skoðunar er kr. 550.00. Vinsamlega pantið tímanlega ísíma61500ámilli kl. 9.00 - 16.00. Heilsugæslustöðin á Dalvík Fjölskyldukaffi Svarfdælingasamtakanna verður drukkið í Múlabæ, Ármúla 36 Reykjavík á uppstign- ingadag 8. maí og hefst kl. 14.30. Ókeypis fyrir 60 ára og eldri. Fjölmennið, góðir sveitungar. Samtök Svarfdælinga Frá Tréverki h/f Gleðilegt sumar óskum við viðskiptavinum nœr ogfjœr. Þökkum samskipti á liðnum vetri. Sæplast h f á Dalvík sendir viðskiptavinum til sjós og lands óskir um gott og gjöfult sumar og þakkar liðinn vetur. STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS Laugavegi 120, 105 Reykjavík Umsóknirum lán vegnaframkvæmdaáárinu 1987 þurfa að berast Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi. Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar sem meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni. Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar, svo og veðbókarvottorð. Þá skal fylgja umsókn búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækj- anda eru. Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvéla- kaupa á árinu 1987 þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31. desember n.k. Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næst- komandi. Búnaðarbanki íslands STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram eiga að fara í hreppnum þ. 14. júní n.k. liggur frammi til sýnis að Jarðbrú og Þverá í Skíðadal 14. apríl til 11. maí 1986. Kjörskrárkærur verða að berast til sveitar- stjórnar í síðasta lagi 30. maí n.k. Jaröbrú 10. apríl 1986 f.h. hreppsnefndar Oddviti Svarfaðardalshrepps. Frh. af bls. 3 Frá U.M.F.S. um iþróttum og knattspyrnu innanhúss. Við vonumst síðan eindregið eftir því að vorið sé að koma þannig að hægt verði að hefja æfingar af fullum krafti utanhúss. Búið er að ganga frá ráðningu á tveimur knatt- spyrnuþjálfurum það eru þeir Björn Friðþjófsson sem mun þjálfa 5. flokk og Steinþór Þórarinsson sem mun þjálfa meistaraflokk og 4. flokk. Eftir er að ráða þjálfara í frjálsum íþróttum og fyrir 6. flokk i knattspyrnu en úr því rætist vonandi mjög fljótlega. Við erum held ég megi segja nokkuð bjartsýn hvað varðar starfsemina í sumar og ætla má að á annað hundrað einstakl- ingar bæði börn og fullorðnir muni stunda íþróttir á vegum félagsins í ár. Þó er stærsta verkefni Ung- mennafélagsins enn ótalið en það er bygging grasvallar sem ráðgert er að hefja í vor. Félaginu hefur verið úthlutað svæði sunnan og ofan heima- vistar þar sem ráðgert er að útbúa tvo grasvelli þ.e.a.s. æfingasvæði og fullkominn- keppnisvöll með hlaupabraut- um og annarri aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir. Við gerum okkur grein fyrir að mikið átak þarf til að aðstaða þessi verði að veruleika en höfum trú á því að sú leið að Ungmennafélagið byggi völlinn og eigi hann sé fyrir alla aðila mjög heppileg lausn. Við hér á Dalvík höfum mjög góða reynslu af því að frjáls félög hafi forgöngu um gerð íþróttamannvirkja og bendi ég þá á Skíðafélagið og að- stöðuna í fjallinu sem gott dæmi um það. Þessa aðstöðu vantar til- finnanlega hér og er mjög brýnt að sem allra flestir leggi fram sinn skerf til þess að okkur megi takast að láta drauminn um góða aðstöðu fyrir sumar- íþróttir rætast hér á Dalvík. Er eitthvað sem þið mynduð vilja segja svona að lokum? Já, við viljum að lokum bara leggja áherslu á það hve mikil- vægt það er æsku þessa bæjar að hafa slíka íþróttaaðstöðu sem við höfum verið að ræða um hér að framan. Einnig er það skoðun okkar að einmitt nú, þegar svo margt mjög óæskilegt glepur fólk ekki síst börn og unglinga eins og til dæmis neysla allskonar vímu- efna, sé íþróttaástundun ekki bara æskileg heldur hreint og beint nauðsynleg til þess að skapa fegurra og betra mannlif. Norðurslóð þakkar þeim félögum fyrir spjallið. Leiðrétting í síðasta tölublaði Norðurslóðar í grein um starfsemi Sæplasts h.f. á Dalvík var skekkja, sem rétt er að leiðrétta. Sagt var að nýtt karamót væri smíðað af Bílaverkstæði Dalvíkur. Hið rétta er að mótið smíðaði einn starfsmann- anna Vilhjálmur Reynisson, en verkstæðismenn voru aðeins til aðstoðar. Rétt skal vera rétt og biðjum við Vilhjálm velvirðingar. Ritstj. Kaupfélag Eyfírðinga á Dalvík sendir öllum viðskiptavinum bestu kveðjur og óskir um gleðilegt sumar. Þökk fyrir liðinn vetur. Sparisjóður Svarfdœla auglýsir Nýtt innlánsform frá og með 1. maí 1986 TOPP BÓK Bundinn reikningur í 18. mánuði (sjá lið nr. 4). Það er lán að skipta við sparisjóðinn. Símar: 61600 og 61601. Innlán: Vextiralls á ári 1. Almenn sparisjóðsbók 8,00% 2. Sparireikningur með 3ja mán. uppsögn 9,00% 3. Sparireikningur með 6 mán. uppsögn 10,00% 4. Sparireikningur með 18 mán. uppsögn (TOPP BÓK) 14,50% 5. Heimilislánareikningar: a) sparnaður 3-5 mánuði 9,00% b) sparnaður 6 mánuði og lengur 10,00% 6. Sérstakir Trompvextir 12,50% 7. Tékkareikningar 3,00% Sparisjóðurinn sendir viðskiptavinum bestu óskir um gott sumar og þakkar viðskiptin á liðnum vetri. ^ Sparisjóóur Svarfdœla ■ Dalvik 6 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.