Norðurslóð - 27.05.1986, Blaðsíða 3
Skólauppsögn á Húsabakka
Laugardaginn 10. maí var Húsabakkaskóla sagt upp í 30 sinn frá
byrjun. Skólahald hófst þar haustið 1955 og útskrifuðust fyrstu
nemendurnir vorið 1956.
Fjölmenni var við skólaslitin að venju og var þröngt setinn
bekkurinn í samkomusalnum. Skólastjórinn, Björn Þórleifsson,
gerði grein fyrir skólastarfinu á liðnum vetri, sem hann taldi að verið
hefði árangursríkt og áfallalaust. Skólinn var fullsetinn og er fyrir-
sjáanlegt, að svo verður einnig í náinni framtíð. Húsabakkaskóli er
einn meðal fárra skóla, þar sem heimavistarformið er enn
allsráðandi og ekki horfur á, að frá því verði horfið fyrst um sinn.
ÍJtskrifuð frá Húsabakkaskóla. Fremri röð f.v. Hlyni Holsa, trla Jona
Klaufabr. Helgi Þverá, Sólveig Brautarh., Inga Dóra Jarðbrú. Aftari röð
Alferð Hánefsst., Elín Hofsárk., Sveinborg Þverá í Skíðad., Saga Ingvörum.
Ljósm. H.E.Þ.
Skólastjórinn greindi frá ýmsu
því, sem aðhafst var innan
vébanda skólans til hliðar við
hið lögboðna nám. T.d. kom
skólablaðið. BLEÐILL, út fyrir
jólin í 16. sinn. Var hann
vandaður mjög, enda gekk sala
hans greiðlega og skilaði drjúgri
summu í ferðasjóð en áætlað er
að fara í skólaferðalag til Snæ-
fellsness á sumri komanda,
jafnvel út í Breiðafjarðareyjar.
Þá nefndi hann skákiðkun,
sem var með blóma, og fórfram
hefðbundin keppni við Árskógs-
strandarskóla. Lukkaðist Hús-
bekkingum „að ná aftur lang-
þráðum verðlaunagrip úr
höndum Árskógsströndunga“
eins og skólastjórinn orðaði
það.
Björn skólastjóri fór nokkrum
orðum um íþróttakennsluna í
skólanum. Hvað sundkennslu
varðar, taldi hann að hún væri
komin í æskilegt horf, þar sem
kennt er í tveimur skörpum
lotum, á haustin og aftur seinni-
part vetrar, en nlé gert yfir
kaldasta hluta vetrarins. Afturá
móti taldi hann aðstöðu til
annarra innanhúsíþrótta vera
harla bágborna og raunar alls
enga fyrir boltaleiki. „Ég er
ekkert að leyná því, að einn af
mínum stærstu draumum er að
fá með einhverju móti íþrótta-
sal hér á staðinn.“
Að þessu sinni útskrifuðust 9
nemendur úr 8. bekk, 6 stúlkur
og 3 drengir, sjá mynd.
Tónlistarskólinn
Eins og að undanförnu var í
vetur leið haldið uppi við skól-
í 30. sinn
ann deild úr Tónlistarskólanum
á Daivík. Fjórðungur af nem-
endum Húsabakkaskóla not-
færði sér þennan möguleika og
stundaði tónlistarnám með
almenna náminu. Einnig höfðu
nokkrir kennarar skólans fengið
lítilsháttar tilsögn í söng.
Nú kom árangurinn af þessari
iðkun fram því þarna voru
haldnir skólatónleikar og komu
allir tónlistarmennirnir fram.
Þótti þetta vera hin ánægju-
legasta tilbreyting.
Að þessu loknu tróð upp
karlakvintett 5 kennara skólans
og söng nokkur lög (sjá myndir)
við hinar bestu undirtektir.
Sýningar
Að athöfn lokinni fluttu gestir
sig út í „eldri skóla“ þar sem
komið hafði verið upp sýningu á
verkum nemenda bæði í handa-
vinnu og í sambandi við „sér-
stök rannsóknarverkefni.“
Sýningarnar báru vott um
ágætt starf á þessum mikilvægu
sviðum ekki siður en óðrum í
skólastarfinu.
Þessi athöfn í Húsabakka-
skóla í köldu sólskini vorsins
var í alla staði hin ánægju-
legasta og staðfesti bjartsýnar
vonir manna um gott gengi
þessarar mikilvægustu stofn-
unar sveitarfélagsins.
Undir lok máls síns gatskóla-
stjórinn þess, að horfur væru á,
að skólanum héldist enn um
sinn á því kennaraliði, sem þar
hefur starfað undanfarið og
mælti svo: „Ein mesta blessun
okkar í starfi hér er stöðugleiki í
þessum málum og að hér er að
meirihluta vel menr.tað réttinda-
fólk við störf. Ég sagði áðan, að
áfram yrði þörf fyrir þennan
skóla. Þessvegna þurfum við öll
að standa vörð um 'nann, vinna
honum vel og stefna stöðugt
upp á við í þróun hans og öllum
aðbúnaði. Þannig er hægt, ekki
bara að halda honum sæmilega
góðum, heldur gera hann sífellt
betri.“
Skólastjórinn afhendir skírteini
Kvintettinn syngur, f.v. Sigurður Marinósson, Armann Gunnarsson.
Þórarinn Hjartarson, Björn Þórleifsson, Björn Daníelsson.
Kennarar Tónlistarskólans f.v. Tracy Wheeler, Colin P. Virr, Gunnar
Randversson.
Skipstjórnarbraut á Dalvík
Nemar útskrifaðir í 5. skipti
sinni. Ástæða er til að hvetja
Dalvíkinga til að nota sér bað
tækifæri sem þeim býðst með
því að sækja skipstjórnarnám
við Dalvíkurskóla þar sem
sjósókn skiptir okkur svo miklu
máli.
Skólastjóri afhenti nemend-
um einkunnir við útskriftina og
þá voru einnig veittar viður-
kenningar þeim __ sem bestan
árangur sýndu. Útvegsmanna-
félag Norðlendinga veitti verð-
laun fyrir bestan árangur á skip-
stjórnarprófi og hlaut þau
Nökkvi Jóhannesson frá
Blönduósi, en hann hlaut eink-
unnina 8,72 sem er 1. einkunn.
Þá hlaut hann einnig viður-
kenningu fyrir bestan árangur í
skipstjórnargreinum. Sú viður-
kenning var veitt af Skip-
stjórnarfélagi Norðurlands og
var framkvæmdastjóri þess,
Guðmundur Steingrímsson,
mættur til að afhenda Nökkva
viðurkenninguna. Dalvíkurskóli
veitti viðurkenningu fyrir góðan
námsárangur og ástundun í
námi en hana hlaut Benedikt
Guðbrandsson frá Engihlíð við
Hofsós en hann hlaut einkunn-
ina 8,22. Báðir þeir Nökkvi og
Benedikt eru svarfdælskrar
ættar.
Við lok útskriftar flutti skóla-
stjóri kennurum og nemendum
þakkir og einkum Júlíusi
Kristjánssyni kennara skip-
stjóraefnanna en hann hefur
borið hitann og þungann af starfi
deildarinnar undanfarin ár.
Gott orð hefur farið af deild-
inni og má m.a. geta þess að
dúxar á 2. og 3. stigi í Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík nú
í vor luku 1. stigi á Dalvík. Nú
þegar farið er að spyrjast fyrir
um skólavist á næsta ári og
gefur það fyrirheit um áfram-
haldandi starfrækslu skip-
stjórnarbrautar á Dalvík.
Nemendur með skólastjóra og kennara.
Ljósm. J.B.
NORÐURSLÓÐ - 3
Miðvikudaginn 14. maís.l.voru
útskrifaðir frá Dalvíkurskóla 10
nemendur af skipstjórnarbraut
1. stigs og er þetta ljölmennasti
hópurinn sem útskrifast hefur.
Þetta er í 5. skipti sem nem-
endur útskrifast af brautinni en
samtals hafa nú útskrifast 38
nemendur með 200 tn. skip-
stjórnarréttindi frá skólanum.
Um áramót voru aftur útskrif-
aðir 10 nemendur úr svokölluðu
réttindanámi með 80 tn. skip-
stjórnarpróf. Munu þeir koma í
skólann í haust og Ijúka 200 tn.
réttindum.
Flestir þeirra er nú útskrif-
uðust voru aðkomunemendur
en aðeins einn nemandi frá
Dalvík útskrifaðist að þessu
Guðmundur Steingrímsson afhendir Nökkva Jóhannessyni verðlaunin.
Ljósm. J.B.