Norðurslóð - 27.05.1986, Blaðsíða 4
Við Miðjarðarhafið er sóiin sterk og sjórinn hlýr.
I Cap d'Agde
eru endalausar
vatnsrenni-
brautir og öldu-
sundlaugar fyr-
ir börnin að
busla í.
Eftir afslappandi dag á ströndinni er
tilvalið að bregða sér á veitingahús og
borða lygilega ódýran veislumat.
Nú iér hver að verða sfðastur
að komast rrteð i'jrvali
i sóiina iil Frakklands
I sumar býður Úrval farþegum sínum
ódýrar sólarferðir til ævintýraheims
Cap d’Agde á Miðjarðarhafsströnd
Frakklands. Einnig til Antibes á frönsku
Rivierunni, þess margrómaða staðar.
Frábært verð
Þegarer uppselt í júní ferðirnar, en í
júlí og ágúst eru enn laus sæti. Við
bjóðum mjög ríflegan barnaafslátt; íjúlí
kostar 3ja vikna ferð til Cap d’Agde
t.d. aðeins kr. 25.130.- á mann (miðað
við hjón með 3 börn 2-11 ára og eitt
barn 12-15 ára).
Möguleiki að hafa viðdvöl í París á
heimleið.
Á báðum þessum stöðum er boðið uppá
frábæra gististaði og stórkostlega
aðstöðu til hvers kyns leikja og
afþreyingar fyrir alla fjölskylduna.
Pantaðu strax
Nú erþví um að gera að hringja strax
í næsta umboðsmann Úrvals og bóka
ferð áður en það verður of seint.
Umþoðsmaðurinn þinn gefur þér allar
nánari upplýsingar og kynnir þér
greiðslukjörin okkar.
FERÐASKRIFSrOHN ÚPVAL
Umboðið á Dalvík:
Sólveig Antonsdóttir, verslunin Sogn.
Sími 96-61200
Firmakeppni
Þann 5. apríl s.l. fór fram firmakepnni Hestamannafélagsins
Hrings á íþróttavellinum á Dalvík. 58 fyrirtæki og
einstaklingar áttu fulltrúa í keppninni.
Frá úrslitunum hefur áður verið skýrt í blöðum, en rétt er
að geta þess, að hlutskarpastur varð í flokki fullorðinna Valur
knapi Stefán Friðeeirsson, sem keppti fyrir Loðdýrafélagið
Dalalæðu h.f. á Dýrholti.
Keppnin fór hið besta fram í alla staði og þakkar Hesta-
mannafélagið öllum hlutaðeigendum áhuga og stuðning við
starfsemina og óskar þeiin gleðilegs sumars.
F.h. Hrings
Þór Ingvason
Hér kemur listi yfir þátttakendur:
Kvistur s/f Hjólbarðaverkstœði S.S.
Fóðurstöðin Söltunarfélag Dalvíkur h/f
Tréverk h/f Hárgreiðslustofa Petýar.
Frystihús K.E.A. Búnaðarfélag S.V.D.
Skíða og reiðhjólaþjónustan Dalvíkurhöfn.
Byggingarvörudeild K.E.A.
Tœknideild Dalvíkurbæjar.
Rán h.f
Svarfdœlabúð Dalvík.
Sólstofan Línan, Dalvík.
Upsaströnd h/f Dalvík.
Misjafna Skipafélagið.
Sana umboðið, Dalvík.
Samvinnutryggingar Dalvík.
Vatnsveita Dalvíkur.
Dalalœða h/f.
Sparisjóður Svarfdœla.
Björgvin EA 311.
Björgúlfur EA 312.
Víkurbakan' Dalvík.
Álverk s/f
Ahaldahús Dalvíkurbæjar.
Pólstjarnan h/f
Gerpla s/f.
Þröstur og Co.
Ábyrgð h/f.
Jarðverk.
Bílaverkstœði Dalvíkur.
Stefán Rögnvaldsson.
Rauðavíkurbúið.
Goðaleir.
Híbýlamálun.
Electro & Co.
Netagerð Dalvíkur.
Atlantic.
Norðurslóð.
Ýlir.
Haraldur s/f.
Videóleigan Drafnarbraut.
Dalvíkurbær.
Pólarpels.
Hrossaræktunarfélag S. V. D.
Olíusöludeild K.E.A. Dalvík
Dalvíkurapótek.
Bókhaldsskrifstofan.
Bœjarp ós turinn.
Sláturhús K.E.A.
Sæplast.
Ræktunarsamband S. V.D.
Víkurröst.
Dalvíkurskóli.
Steypustöð Dalvíkur h/f
Frh. af forsíðu
hefur verið með allra mesta
móti nú á útmánuðum vetrar og
vori. Lystarleysi, súrdoði og
þessháttar vesæld í nýbærum,
sem rekja má ti lélegra heyja
eftir leiðndasumarið 1985.
Margar kýr hafa fallið í valinn
af þessum sökum, sumar snögg-
lega og fyrirvaralaust.
Fleira er búfé en kindur og
p- ?"«*•**“
® L’AT T U PVI
FAOMEM VINNA VERKIÐ
tJid eiqum ’a lctqer
vandada barnabilslöla
BILAVERKSTÆÐf")
DALVIKUR
1
Bílaverkstæði Dalvíkur
620 Daivík Pósthólf 59
kýr og dýralæknirinn lét þess
getið, að loðdýragotið gengi vel
á öllum búunum hér, en það er
reyndar í fullum gangi nú þessa
dagana. Nú eru í fyrsta sinn að
fæðast hér refayrðlingar komnir
til við sæðingu. (Búrlinga vilja
sumir kalla þá refahvolpa, sem
fæðast í búri en ekki urð.) Sumir
þessara sæðisbúrlinga eru
hálfur blárefur hálfur silfur-
refur og eiga að vera miklir
dýrgripir.
Að lokum skal þess getið, að
blaðamaður kom þar að, sem
fiskeldisbændur á Sandskeiði
austast á Dalvík voru að útbúa
kvíarnar sínar í ískaldri norðan-
bjólunni. Það er skrýtið til þess
að hugsa að nú 80 árum eftir að
landbændurnir hættu að hafa
búfénað í kvíum eru komnir
aðrir bændur við sjávarsíðuna,
sem geyma sitt búfé, nú
stundum kallaðursporðfénaður
í sjókvíum og nota m.a.s. þetta
gamla nafn.
Blaðamaður leit á sporð-
fénaðinn í innikerjunum og
taldist það væri um 6-7 þúsund
stykki af snotrasta 2-3ggja
punda fiski. Það er hann, sem
á að fara í kvíarnar þegar allt er
tilbúið og veðrið hefur bætt ráð
sitt. Meira verður vonandi um
sporðfénaðinn í næsta blaði.
Það hefði verið ánægjulegra
að geta gefið hlýlegri lýsingu á
þessu vori og birt myndir því til
staðfestingar af brosandi blóm-
um eða fagnandi fuglum. En því
miður, það hefði ekki gefið rétta
mynd af raunveruleikanum.
Þetta hefur verið þögult vor,
rétt eins og fuglunum væri illt í
hálsinum og kæmu ekki upp
nokkurri nótu. Og blómin eru
bara draumur framtíðarinnar.
Svo við skreytum framsíðu
blaðsins með mynd af svarf-
dælsku fjalli eins og það birtist
myndavélinni á hvítasunnudag
18. maí.
4 -NORÐURSLÓÐ