Norðurslóð - 27.05.1986, Blaðsíða 5
Frá Svarfaðardalshreppi
Sundskáli Svarfdæla endurbættur
Þann 23. apríl var haldinn
almennur hreppsfundur í Þing-
húsinu á Grund. Um 40 manns
sátu fundinn.
Oddviti hreppsins, Halldór
Jónsson á Jarðbrú gerði grein
fyrir reikningum hreppsins fyrir
1985 og fjallaði um málefni
sveitarfélagsins út frá þeim. Það
kom fram, að hreppurinn á all-
miklar eignir, þó nær eingöngu
fasteignir. Má þar rh.a. nefna
jarðeignir, þ.e. Hamar, Lauga-
hlíð svo og Skíðadalsafrétt.
Ennfremur Barna- og unglinga-
skólann á Húsabakka í sam-
eign með ríkinu. Með Dalvíkur-
bæ á hreppurinn Sundskála
Svarfdæla og Dalbæ, heimili
aldraðra á Dalvik svo og hlut-
deild í Heilsugæslustöðinni á
Dalvík.
Sjóðir hreppsins eru litlir, en
skuldir nær engar. Það kom
fram í umræðum, að oddvitinn
hyggst ekki gefa kost á sér til
frekari setu í hreppsnefnd, en
hann hefur nú gegnt oddvita-
starfinu í 12 ár og hyggur á
brottflutning úr sveitinni. Urðu
ýmsir til að þakka Halldóri vel
unnin störf fyrir sveitarfélagið
og árna honum heilla á fram-
tíðarvegum.
Skýrslur nefnda
Þá flutti formaðurskólanefndar
Guðrún Lárusdóttir á Þverá
skýrslu nefndarinnar og kom
þar m.a. fram að enn er þörf á
framkvæmdum við skólann á
Húsabakka. Nefndi Guðrún
sérstaklega þörf á malbikun á
skólahlaði og bifreiðastæði svo
að leir og önnur jarðefni haldist
sem mest utan dyra, þar sem
Húsnæði í Reykjavík
Ereinhver, sem áeöa veit um húsnæði til leigu í
Reykjavík. Okkur vantar íbúð þar frá 1.
september í haust. Við getum hugsaðokkurað
leigja íbúð saman ef hún væri stór.
Til 1. iúní Ósk Jórunn og Guðmundur
Sími til 1. júní Ósk Jórunn og Guðmundur
(91) 36399, Rvík. og síðar Ásrún og Arnþór
(96) 61652, Dalvík.
Gluggakaffi — Gluggakaffi
Sóknarnefnd Tjarnarkirkju verður með kaffi-
sölu í borðstofu Húsabakkaskóla á KOSN-
INGADAGINN, 14. júní n.k. frá kl. 14.00 - kl. 2
eftir hádegi og fram á kvöld.
Allur ágóði af kaffisölunni rennur í kirkju-
gluggasjóð Tjarnarkirkju.
Dalvíkingar — Svarfdælingar, gerið ykkur
dagamun, fáið ykkur góðar kaffiveitingar og
styrkið gott málefni.
Sóknarnefndin.
“V
y
i
DALVIKURSKDLI
Skipstjórnarnám
Á Dalvík er starfrækt 1. stigs skipstjórnarnám sem veitir
rétt til stjórnunar fiskiskipa allt að 200 lestum.
Námið er skipulagt í samvinnu við Stýrimannaskólann
í Reykjavík.
UmsóknirfyrirskólaáriðS6ji5’7þurfa aðberast fyrir IjúlL.
Umsóknum fylgi:
a) Afrit af prófskírteini grunnskóla
b) Vottorð um siglingatíma
c) Heilbrigðisvottorð
d) Augnvottorð frá augnlækni
e) Sakavottorð
f) Vottorð er staðfesti sundkunnáttu
Upplýsingar ciefur skólastjóri í símum 61380 og 61491.
-
Heimavist er á staðnum.
Skólastjóri.
þau eiga heima, en fari ekki inn í
vistir og skólastofur.
Formaður „riðunefndar",
Halldór Jónasson í Koti, gerði
grein fyrir störfum þeirrar
nefndar. Kom fram að á annað
hundrað fjár var lógað á ýmsum
bæjum í sveitinni vegna riðu-
veiki og skrokkunum eytt í
sor.pbrennslustöð Dalvíkinga. í
umræðum kom fram, að menn
búast nú almennt við ein-
hverjum útrýmingaraðgerðum
gegn riðunni hér áður en langt
líður.
Þá flutti Björn Þórleifsson,
formaður sundskálanefndar,
skýrslu hennar. Töluverð við-
gerð fór fram á skálanum á
síðastliðnu ári og kom þá líka í
ljós, að enn er mikill og
almennur áhugi á að nota
þennan gamalfræga sundstað
bæði af Dalvíkingum og sveita-
mönnum, sem eiga hann og reka
í sameiningu.
í þessu sambandi kom það
fram, að nú er tryggt fjármagn
til mikilvægra endurbóta á
Sundskálanum á þessu og næsta
ári. Þar er um að ræða smíði
nýrra búningsklefa og tilheyr-
andi við skálann.
Verður væntanlega hafist
handa í haust við að hrinda
þessum bráðnauðsynlegu endur-
bótum í framkvæmd.
í almennum umræðum í lok
fundarins kom fram, að mönnum
þykir nú sem ekki geti dregist
lengur, að snúa sér að því að
koma upp nýju félagshúsnæði í
hreppnum. Virðist sú skoðun
nú njóta mikils fylgis, að byggt
verði í námunda við Húsa-
bakkaskóla með samnot skóla
og félaga af slíku húsnæði fyrir
augum.
Er ekki að efa, að á eftir
viðbyggingu við Sundskálann
verður nýbygging hæfilegs
félagsheimilis næsta stóra dag-
skrármál Svarfdælinga.
Auglýsing um
Bæjarstjórnarkosningar
á Dalvík
Kosning fer fram í Dalvíkurskóla laugardag-
inn 31. maí næstkomandi.
Kjörfundur verður settur á kjörstað kl. 8.30.
Kjördeild verður opnuð kl. 10.00.
Kjörfundi lýkur kl. 23.00.
Atkvæði verða talin á kjörstað að loknum
kjörfundi.
Kjörstjórn Dalvíkur
Helgi Þorsteinsson
Halldór Jóhannesson
Stefán Jónsson
Dalvíkurbær
-SKÓLAGARÐAR-
Dalvíkurbær mun í sumar starfrækja
skólagarða, líkt og var á síðasta sumri.
Rétt á þátttöku eiga börn fædd 1975 og
1976 sem lögheimili eiga á Dalvík.
Þátttökugjöld skulu greiðast við innritun
og eru 300 kr. fyrir hvern einstakling.
Innifalið í þátttökugjaldi eru plöntur og
verkfæri.
Byrjunartími verður auglýstur síðar.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu bæjarins og þar er jafnframt tekið
við skráningum fram til 31. maí.
Dalvíkurbær
Sundskáli Svarfdæla
verður opinn fyrir almenning í sumar á
mánudagskvöldum kl. 20.00 - 22.00
fimmtudagskvöldum kl. 20.00 - 22.00
sunnudagsmorgnum kl. 10.00 - 12.00
og verður fyrsti almenningstíminn sunnudaginn 1. júní. Einnig gefst
einstaklingum, fjölskyldum eða hópum kostur áað leigjaskálann utan
almenningstíma. Umsjónarmaður sérleigu er Steinunn Hafstað í
Laugasteini, sími 61430.
Sundskálanefnd.
Auglýsing
um sveitarstjórnarkosningar
Kosning til hreppsnefndar og sýslunefndar í Svarfaðardalshreppi fer
fram að Húsabakka (syðri bygging) lautíj'ardaginn 14. júní 1986.
Kjörfundur hefst kl. 10.00. Kosningarnar eru óbundnar.
Eftirtaldir hreppsnefndarmenn gefa ekki kost á sér til endurkjörs
samkv. 19. grein sveitarstjórnarlaga:
1. Atli Friðbjörnsson, Hóli.
2. Gunnar Jónsson, Brekku.
3. Halldór Jónsson, Jarðbrú.
Enn fremur skorast Halldór Jónsson undan endurkjöri til sýslunefndar.
Talning atkvæða fer fram á kjörstað að loknum kjörfundi.
26. maí 1986
Kjörstjórnin.
NORÐURSLÓÐ - 5