Norðurslóð - 28.10.1986, Qupperneq 1
Svarfdælsk byggð & bær
10. árgangur
Þriðjudagur 28. október 1986
10. tölublað
Pelsun
að hefj ast
Það kemur fram hér í blaðinu,
að slátrun sauðfjár er lokið og
að innan við 5.000 dilkum var
slátrað úr Svarfaðardal og
Dalvík. Þetta er að sjálfsögðu
stórfelld fækkun frá þvísem var
fyrir fáum árum.
Aftur á móti er nú komin til
skjalanna önnur sláturtíð hér í
sveit, nefnilega sú, sem fylgir
loðdýraræktinni. Að vísu þykir
ekki við hæfi að nefna slátrun í
sambandi við svo fína fram-
leiðslu eins og grávaran er.
Pelsun skal það heita og ekkert
annað.
Sem sagt, pelsun stendur nú
fyrir dyrum á loðdýrabúum
landsins, og hér í sveit eru þau
nú 5 þ.á.m. risabú Pólarminks á
Böggvisstöðum / Ytra-Holti. í
heild verður framleiðslan í ár
hátt í 20.000 skinn, refa og
minka, af þessum búum, þar af
hjá Pólarmink einum um 3/4af
magninu, ca. 15.000 stykki, þar
af minkur 2/3, refur 1/3.
Ekki er gott að spá, hvert
framleiðsluverðmætið verður,
það fer eftir uppboðsverðinu á
mörkuðunum i London og
Kaupmannahöfn á næstu mán-
uðum. En verði verðið gott, eins
og menn gera sér nú vonir um,
eftir hrunið í fyrra, þá gæti svo
farið að heildarverðmæti svarf-
dælskrar loðdýraræktar yrði
allt að því helmingi hærra en
Jón Hjaltason með hvítan melrakka.
verðmæti sauðfjárræktarinnar.
Ennfremur er loðdýraræktin
nú orðin töluverður atvinnu-
veitandi. Að staðaldri eru bundin
í henni a.m.k. 20 manns hér, en
síðan er töluverð ígripavinna í'
sambandi við pelsun og skinna-
verkun. Hér fer vtrkunin fram á
búunum og fær margt fólk,
karlar og konur bæði af Dalvík
og úr sveitinni vel þegna mögu-
leika til að drýgja tekjurnar með
þessari vinnu fyrir jólin.
Sláturtíð lokið
Metþungi dilka
Sauðfjárslátrun er lokið á Dalvík þetta árið. Hún stóð yfir tímabilið
23. sept. til 16. okt. eins og ráð var fyrir gert og stóðust allar
áætlanir, enda tíðarfar með ágætum eins og verið hefur lengst af
þetta árið.
Alls var slátrað 10.745 kind-
um, sem er 2-300 stykkjum
lleira en lofað var fyrirfram og
svarar það til þeirrar auknu
slátrunar innan úr Eyjafirði,
sem ákveðin var á síðustu
stundu. Al þessum fjölda voru
dilkar 9.130 en eldra fé 1.624.
Innlagðir dilkar voru þó aðeins
8.523 og skiptust þannig milli
deilda:
meöallall-
þungi kg.
Dalvík 952 15,76
Svarfaðard. 3.732 15.54
Árskógsstr. 1.814 15.40
Ólafsfjörður 1.161 17.28
Saurbæjarhr. 819 15,52
Veginn meðalfallþungi 15,78
Þessi mikli fallþungi dilka er
allra tíma met hér um slóðir. Fer
hér enn saman ágætlega hag-
stætt tíðarfar vor, sumar og
haust og síðan minnkandi álagá
mmarhagana.
Ágæt flokkun
Þá er þess að geta, að flokkun
skrokkanna var mjög góð. Að
vísu fóru aðeins 14 stykki í
stjörnuflokk! í I. flokk fóru
hinsvegar 7.731, í 2. Ilokk 436 í
3. Ilokk 99 og í O-flokk 249 eða
tæplega 39r af innlögðum skrokk-
um. Hinsvegar tóku eigendur
* 1
mrf't 4 Li k rfLjT mJHJIí'íÍ- u
■'M Ik ' ■ Æ f i Jðj
■•ÍJ, Í
Starfsfólk við stórgripaslátrun: E.v. Sigurður Cunnlaugsson, Magnús Jónasson, María Jónsdóttir, Hallgrímur
Kinarsson, Smári Jónsson, Hilmar Gunnarsson, Júlíus Sigurðsson og Stefán Jónmundsson.
Sigurður Gunnlaugsson settur sláturhússtjóri.
heim 607 skrokka, marga sem
trúlega hefðu lent í O-flokknum
því meðalfallþungi þeirra var
16,67 kg.
Meistarar í faginu
Að lokum skal að venju greint
frá þyngstu dilkum og mestum
meðalfallþunga á bæ. Menn
geta skemmt sér við að velta
fyrir sér tölunum. Allra þyngsta
dilkinn sem vóg 29 kg. átti
Garðar Steinsson í Engihlíð á
Árskógsströnd. Nr. 2, sem vóg
28,7 átti Árni Snorrason á
Völlum.
Hæsta meðalfallþunga þeirra,
sem lögðu inn 30 - 100 dilka
hafði Andrés Kristinsson á
Kvíabekk, 18,50 kg. Nr. 2 varð
Jón Árnason á Syðri-Á, 18,37
kg. N r. 3 varð Guðbjörg Andrés-
dóttir Kvíabekk, 18,29. Allt eru
þetta Ólafsfirðingar og kemur
fáum á óvart.
Þá eru það afrek þeirra, sem
lögðu inn meira en 100 dilka:
Ragnar Kristófersson í Garði
Ólafsfirði, 105 dilkar, 17,82 kg.
Nr. 2 Marinó Magnússon Þverá
Ólafsfirði, 143 dilkar, 17,49 kg.
Og nr. 3 Gunnar Rögnvaldsson
í Dæli í Skíðadal, 118 dilkar,
17,18 kg.
Það fór þó aldrei svo, að
Svarfdælingar kæmust ekki á
blað.
Slátrun fullorðins fjár varð
óvenju mikil hlutfallslega eins
og tölurnar sýna. Þarkomtilað
á síðustu stundu var ákveðinn
niðurskurður á þremur bæjum í
Saurbæjarhreppi, Villingadal,
Hólum og Krónustöðum alls
tæplega 400 fjár. Nú á sem sé að
leggja til atlögu við riðuveikina
á þessu svæði.
í lokin má segja, að vinna á
sláturhúsinu hafi gengið ágæt-
lega enda þótt sláturhússtjóri
lorfallaðist og yrði að bregða
sér á sjúkrahús. Þá tók við
stjórninni Sigurður Gunnlaugs-
son einn af starfsmönnum slátur-
hússins og stýrði málum heilum
í höfn. Nú þegar þessi orð eru
fest á blað stendur yfir naut-
gripaslátrun, sem tekur3-4daga
og síðast í lokin einhver hrossa-
slátrun.
En allra síðast ætlum við svo
að hengja aftan í þessar árlegu
slátrunarfréttir gamlan brag,
sem settur var saman og mikið
sunginn á fyrstu árum slátrunar
á Dalvík, fyrir einum 60 árum
síðan. Þetta eru að vísu ekki
merkilegar bókmenntir og e.t.v.
ekki heldur góð sagnfræði, en
við látum hann fljóta fyrst hann
barst okkur upp í hendur.