Norðurslóð - 28.10.1986, Page 6
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírnir
28. september var skírður i Dalvíkurkirkju Kjartan Davíð.
Foreldrar hans eru Hanna Sigurbjörg Kjartansdóttir og
Sigurður Gísli Lúðvígsson tannlæknir, Drafnarbraut 7,
Dalvík.
28. september var skírður í Dalvíkurkirkju Elvar Freyr.
Foreldrar hhns eru Valgerður Gísladóttir og Snorri Snorra-
son skipstjóri, Karlsrauðatorgi 10, Dalvík.
Afmæli
Þann 3. nóv. verður áttræður Tryggvi Jónsson fyrrverandi
frystihússtjóri í Sognstúni 1 á Dalvík.
Andlát
16. október lést Anton Baldvinsson.
Goðabraut 18, Dalvík.
Anton fæddist á Grund í Svarfaðar-
dal 27. október 1897, sonur hjónanna
Guðlaugar Sigfúsdóttur og Baldvins
Jóhannssonar sem síðar bjuggu á
Steindyrum 1906-28. Þar ólst Anton
upp til fullorðinsára.
Hann vann margvísleg störf um
ævina og var dugnaðar- og kapps-
maður til vinnu 1935 kvæntist hann
eftirlifandi konu sinni Lilju Tryggva-
dóttur frá Ytra-Hvarfi. Þau hjón bjuggu þar 1935-44, síðan á
Hrappstöðum þar til þau fluttu til Dalvíkur 1949.
Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið ogeru þrjú þeirra
á lífi.
Anton var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 25. október.
J.H.Þ.
Þann 14. október átti áttræðisafmæli Dýrleif Friðriksdóttir í Árgerði.
Á dögunum héldu nokkrar kunningjakonur henni samsæti á Dalvík.
Heiðursgesturinn önnur frá hægri sitjandi við borðið.
Frá opnun blóma- og gjafabúðarinnar ILEX sem er eign þriggja hjóna á
Dalvík sem mynda hlutafélagið KAS h/f. F.v. Sigríður Rögnvaldsdóttir,
Kristín Júlíusdóttir og Anna Jóna Geirsdóttir.
Má ég kynna?
Kennaraskipti hafa orðið við
Tónlistarskóla Dalvíkur frá því
í fyrra. Englendingarnir eru
horfnir til síns heima, en í stað-
inn eru komnir Pólverjar. Það
er ekki að því að spyrja,
útlendingar bjarga tónlistar-
málum landsbyggðarinnar, þegar
allir okkar eigin menn í faginu
eru hlaupnir á brott til að setjast
við kjötkatlana í Reykjavík og
nágrenni.
Blaðið hafði tal af pólsku
kennurunum þar sem þeir voru
við störf sín við Húsabakka-
deild Tónlistarskólans.
Hún heitir Dorota Manczyk,
fædd 22. janúar 1960 og er frá
borginni Katowice í suður-
Póllandi, sem er stórborg með
300.000 íbúum og hátt í milljón
manns ef útborgir eru taldar
með.
Faðir hennar er píanóleikari
og spilar í sinfóníuhljómsveit
þar í borginni. Hún lauk prófi
frá Músík-Akademíu borgar-
innar fyrir 2 árum síðan og
hefur starfað við þá stofnun
síðan en er nú í ársleyfi.
Hingað kom Dorota fyrir
viku síð'an og er tekin til starfa
við píanókennslu ogsöngkennslu.
Einnig ætlar hún að æfa upp
lítinn kór með nemendum skól-
ans, en auk þess nrun hún taka
fólk í einkatíma í söng og píanó-
spili.
Henni líst prýðisvel á sig hér,
náttúran er stórfengleg, fjöllin,
sjórinn, allt. Aðaláhugamál
hennar fyrir utan músíkina er
saga, einkum trúarbragðasaga
en hún er katólsk eins og flestir
landar hennar og sækir vel
kirkju, þegar hún er heima.
Hann heitir Waclaw Lazarz,
fæddur 23. maí 1950 og býr í
Katowice eins og Dorota. Reynd-
ar þekkir hann vel föður hennar
og hefur leikið með honum í
sinfóníuhljómsveitinni þar.
Hann stúderaði við Músík-
Akademíuna í Krakow í suður-
Póllandi þar sem hann lauk
prófi 1974. Hann ‘stundaði
framhaldsnám í Katowice í
nokkur ár, en síðustu 3 árin
hefur hann spilað í Filharmoníu-
hljómsveitinni þar.
Hingað kom hann fyrir mánuði
síðan og kennir nú einkum á
þverllautu og blokkflautu en
líka á harmonikku.
Waclaw er fjölskyldumaður,
á konu og 12 ára son heima í
Póllandi og er ráðgert að þau
komi hingað til lands síðar meir
a.m.k. í heimsókn. Hann hefur
mikinn áhuga á tennis, en er
hræddur um að hann hafi litla
aðstöðu til að iðka það sport
hér. Þá er að demba sér í
skokkið, sem hann iðkar líka
heima njá sér. Hann hefur
uppgötvað Böggvisstaðasand-
inn sem ágætt æfingarsvæði og
segist hvergi hafa séð svona
fallegan og svartan sjávarsand.
Hann segir það hafa komið sér
þægilega á óvart, hve hér sé
stórbrotin náttúra á íslandi,
umhverfi Dalvíkur, norðurljós-
in, sem ekki verða þjóðnýtt, og
svo strjálbýlið, sem er líka mikil
blessun miðað við manngrúann
í Evrópu.
Norðurslóð býður þessa
áhugasömu kennara velkomna
til starfa og óskar þeim alls hins
besta.
Fréttahornið
Dr. Ingimar Jónsson hefpr
verið ráðinn æskulýðsfulltrúi
hér á Dalvík. Ingimar hefur
gengt mörgum trúnaðarstörfum
fyrir íþróttahreyfinguna um ára
bil m.a. verið forseti Skák-
sambands íslands og Blak-
sambandsins. Hann mun taka
fljótlega til starfa og er vafa-
laust mikill fengur í að fá svona
reyndan mann til starfa við
skipulagningu æskulýðsmála á
vegum bæjarins. Þess má geta
að fálagsmálaráð hefur óskað
eftir að hann verði að hluta
starfsmaður ráðsins og er það í
athugun.
Ibyrjun október var Leikfélag
Dalvíkur með leiklistar-
námskeið og var Þráinn Karls-
son leiðbeinandi. Mjög góð
þátttaka var á námskeiðinu sem
heppnaðist vel. Leikfélagið
stefnir að því að setja upp
dagskrá úr verkum Jónasar
Árnasonar fyrir áramót. Undir-
búningur er nú að byrja og er
ekki að efa að um skemmtilega
sýningu verður að ræða. Starfsemi
leikfélagsins hefur oft verið
öflug og haft mikið gildi fyrir
byggðarlagið. Ber það félaginu
og staðnum gott vitni að nú eru
tveir Dalvíkingar í leiklistar-
skóla ríkisins. Hjálmar Hjálmars-
son er nú byrjaður sinn síðasta
vetur í skólanum, lýkursem sagt
námi í vor. Björn Ingi Hilmars-
son þreytti í vor inntökupróf í
skólann ásamt um sjötíu öðrum.
Hann var einn af átta sem síðan
jnnrituðust í haust á grundvelli
þrófsins.
Um síðustu helgi hélt Leik-
félagasamband Norðurlands
haustfund sinn hér á Dalvík. Á
haustfundum sínum ber leik-
félagsfólk hér á Norðurlandi
saman bækur sínar um reynslu
liðins leikárs og horfur fram-
undan hjá hverju félagi. Á fund-
inum hér var Hávar Sigurjóns-
son leikstjóri með erindi um
stöðu áhugamannaleikfélaga og
vandamál þeirra að fá fólk til
starfa og til að sækja leiksýn-
ingar. í lok fundarins, sem stóð
tvo daga, settu þátttakendur
upp leiksýningu, danskt barna-
leikrit sem Hávar hefur þýtt.
Áhorfendur voru síðan aðallega
börn á öllum aldri og tóku þeir
virkan þátt í sýningunni sem
þótti takast hið besta.
Formaður leikfélagasambands-
ins er María Axfjörð frá Húsa-
vík, en fyrsti formaður þess var
Kristján Hjartarson á Tjörn.
Margir voru uggandi um að
Samkór Dalvíkur myndi
ekki koma Dalvíkingum í jóla-
stemmingu nú eins og hann
hefur gert undanfarin ár með
söng á götum úti fyrir jólin. Það
var Colin Virr sem kom þessari
skemmtilegu hefð á ogóttuðust
menn að hún hyrfi með honum.
Kórfólkið sjálft er sem betur fer
orðið háð þessari hátíðarstemmn-
ingu og hefur komið sér saman
um að reyna í vetur eins og áður.
Jón Helgi Þórarinsson ætlar að
sjá um æfingarnar til jóla, en
eftir áramótin er vonast til að
nýju kennararnir við tónlistar-
skólann komi til liðs við kórinn.
Um nokkurt skeið hefur
KEA haft í undirbúningi
framleiðslu á fiskréttum í hús-
næðinu sem losnaði þegar kjör-
búðin var lögð niður við Skíða-
braut. Nú hefur verið ráðinn
forstöðumaður fyrir þessa
starfsemi Viðar Valdimarsson
matreiðslumaður. Verið er að
hanna vörumerki og umbúðir
en ákveðið helúr verið að
framleitt verði undir nafninu
Fiskiland. Til að byrja með
verður aðallega um fullvinnslu
fisks og fiskrétta fyrir verslanir
KEA hér á Eyjaljarðarsvæðinu
að ræða en síðar er gert ráð fyrir
að setja framleiðsluna á stærri
markað í það minnsta hér
innanlands.
Við sögðum frá því hér í
fréttahorninu síðast að
hugmyndir væru uppi hjá þeim í
Sæluhúsinu að útbúa sali á
neðri hæð húss þeirra við
Hafnarbraut, þar sem verslunin
Ýlir hefur verið til húsa. Versl-
unin er nú flutt að Skíðabraut 3
þar sem bókasafnið var til húsa.
Um leið urðu eigendaskipti að
versluninni. Þær sem nú eru í
forsvari eru þær Anna Jóna
Geirsdóttir," Kristín Júlíus-
dóttirogSigríðurS. Rögnvalds-
dóttir. Verslunin var formlega
opnuð í nýja húsnæðinu föstu-
daginn 24. október s.l. Víkur-
bakaríið flytur í nýtt húsnæði á
næsta ári og losnar þá enn pláss í
Skíðabraut 3. Heyrst hefur að
þar verði einnig verslun en
Hallgrímur Antonsson verst
allra frétta í þessu sambandi og
verður hin dularfyllsti í framan
þegar rætt er um málið við
hann. Af þessu má þó ljóst vera
að líkur eru til að Skíðabrautin
lifni aftur sem verslunarsvæði
og er það vel. Hér áður var
þarna mikið verslunarlíf þegar
Siggabúðin, Bókabúðin hans
Jóa, Klemman og PAD voru
upp á sitt besta.