Norðurslóð - 31.03.1987, Side 2

Norðurslóð - 31.03.1987, Side 2
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvík Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn Sími 96-61555 Ljósmyndari: fíögnvaldur Sk. Friðbjörnsson Prentun: Dagsprent hl. Stunduni er þaö svo art aöstandcndur héraösblaöa vclta því lyrir sér hvert erindi leiöari slíkra lilaöa eigi viö alla þjóöina. Vamlaniál einstakra hyggðarlaga eiga sinn samhljóin hér «g hvar, og því t'yllilega réttmætt að skrifa mn slíkt. Ýmis niál eru þess eftlis ai> þau hafa lít- iö nieö húsetu nianna aö gera, «g eiga erindi viö alla. Sem betnr fer er þaö margt, sein tengir þjóðina sainan. Sennilega lleira en það seni skilur að. Ekki er að efa aö friöarvilji tengir islenska þjóö traustaii hönd- uni en niargar aðrar þjóöir. Vilji til friðar liefur ein- faldlega lifaö í þjoðarsálinni «g verið hollur fylgifisknr liennar í áranna rás. Ef við lniguin að liver rödd íslands hefur veriö á alþjóöavettvangi í friðarinálum komumst viö vafalaust að því, hve hjárónia hún hefur verið viö þaö sent í tlestra huga er rödd nieirihlutans. Nýlega fór fram könnun á afstöðu íslendinga til kjarnnrkuvopnalaiisra Noröurlanda. Hún leiddi í ljós mer einróma fylgi við þá hugmynd. í sjálfu sér kemnr þaö ekki á óvart. Vopn og ófriÖur eru einfaldlega ekki okkar eðli. Varnarræða utanríkisráöherra fyrir kjarn- orkiisprengingunt Bandaríkjanianna á Alþingi á dögunuin var ekki islensk hekliir bandarísk. Þannig iná nefna tleiri tilvik þegar fulltrúar þjóðar- innar hafa haldið ræður, aö vísu á íslensku en með haudarískunt hreim. Hér skal sú ósk sett fram að íslensk stjórnvöld taki fullan þátt «g af aivöru í undirhúningi kjarnorkuvopna- lausra Noröurlanda. Vilji þjóöarinnar er kontinn frani þaö er ineð ölhi óverjandi að lítill ininnihluti ráöi íi í þessu ináli, seni því miöur er astæðu til að d . A.» Gjafir og áheit til Urðakirkju árið 1986 Friðrika og Friðjón Fjölskyldan Urðum Helgi Símonarson Fverá Minningargjöf frá Lcnu og fjölskyldu Atlastöðum Áheit frá Höllu og Hafliða Urðum Áheit frá Jónínu Jóhannsdóttur frá Skeiði kr. 5.000.00 kr. 4.209,00 kr. 1.000,00 kr. 5.000,00 kr. 5.000,00 kr. 500,00 Þann 30. maí barst kirkjunni höfðingleg gjöf. Var það skírnarfont- ur gefinn til minningar um Jónasínu D. Karlsdóttur sem orðið hefði 40 ára þann dag. Gefendur voru foreldrar og systur. Einnig gáfu Mar- grét og Guðmundur, Göngustöðum, gestabók. Fyrrnefndum gefendunt, svo og öðrum ónefndum velunnurum kirkjunnar sem sýnt hafa henni hlýhug og ræktarsemi í orði og verki, flytjum við innilegt þakklæti. Þá má og einnig geta þess að nú standa yfir gagngerar endurbætur á gamla kirkjugarðinum og hafa nú þegar allmargir lagt ntálinu lið og gefið vinnu sína við það verk, sem eru 160 vinnustundir, að raunvirði um 25.000,00 kr. Þessum aðilum eru færðar alúðarþakkir. Sóknarnefndin. „Það er víðar England heldur en í Kaupmannahöfn,“ sagði karlinn. Og það er víðar Norðurslóð en á Dalvík. Þetta er ein af „slóðunum“ á Örfirisey við Reykjavík. í baksýn fiskimjölsverksmiðja á Granda. Helgi Hallgrímsson: Frá huldufólki í Svarfaðardal II Grásteinn á Hnjúki I örenfnaskrá Hnjúks í Skíðadal, eftir Jóhannes Óla Sæmundsson, stendur þetta m.a.: „Hjallar fjallsins heita Brúnir, og skiptast í Litlubrún og Stóru- brún. Á Litlubrún kallaður Grænihjalli. Þar ofan við er Strýthóll og Grásteinn, sunnan undir Stórholti. Þessi steinn er burstmyndaður klettur, og var talið að hludufólk byggi þar.“ (Álagablstts á Klængshóli var getið í 3. tbl. 1986). Steinar í Almenningi í viðbótum við örnefnaskrá Jóh. Óla Sæmundssonar, handriti sem geymt er á Skjalasafninu á Akur- eyri, er að finna þessa klausu þar sem fjallað er um Almenning í botni Skíðadals. „Á móti Sveinsstöðum í Almenningnum, niður við ána, eru afar stórir steinar og kallaðir bara Steinar. Einn er það stór, að hann er á stærð við lítið herbergi, eða á þriðja meter á kant, með sléttum fleti að ofan, og þarf að vega sig upp, til að komast upp á hann á einum stað. Sagt var eftir skyggnu fólki, að þar væri hludufólksbyggð, og sá fólk reknar kýr frá steininum, og maður á að hafa forðað sér upp á einn steininn undan nauti." Huldufólkssteinn við Hvítulæki Vestan Skíðadalsár í landi Krosshóls, rétt framan við Hvítu- læki stendur hár og fallegur steinn, nefndur Huldufólks- steinn. Engar sagnir eru við hann bundnar svo vitað sé. Huidufólkssteinninn hjá Hvítulækj- um. Maðurinn er mennskur, Sigurð- ur Ólafsson í S.-Holti. Ljíísmynd: Astdís Óskarsdóttir. Kálfadalur á Krosshóli/ Hverhóli Kálfadalur nefnist daldrag nokkurt, er liggur langs eftir fjall- inu neðantil, milli eyðibýlanna Krosshóls og Hverhóls og tilheyr- ir því báðum þessum jörðum. Framan eða neðan við hann er hryggur mikill, sem kallast Kambur, og varði hann bæina fyrir snjóflóðum úr fjallinu. Kamburinn mun vera berg- hlaup(?), sem þarna hefur fallið úr fjallshlíðinni á alllöngu svæði, og myndað einnig Kálfadalinn. Um hann segir svo í viðbótum við örnefnaskrá Hverhóls: „Kálfadalur er djúpur dalur, er liggur ofan við Kambinn. Hann er mjög grasi vaxinn, og slcttar grundir í botni hans, svo jafnvel mætti keyra bíl um hann allan. yst í dalnum er tjörn, í daglegu tali kölluð Tjörnin. Nafn sitt dregur hann af því, að þar voru kálfar látnir ganga á sumrum. Síðan voru hafðir hestar þar, og hafa fundist þar skeifnabrot. Mörg sumur voru kvíaær setnar þar og mjólkuðu vel. Lengd dals- ins mun vera sem næst 1,5 km.“ í Kálfadal eða nálægt honum, hefur oftar en einu sinni orðið vart við huldufólk, og hefur Jóhannes Óli Sæmundsson skráð tvær sögur þaraðlútandi, eftir Tryggva Haildórssyni á Þor- steinsstöðum, þar sem Tryggvi segir frá eigin reynslu og annara af þessari huldufólksbyggð. Fyrri sagan er birt í tímaritinu Súlum, 1. árg. 2. hefti, bls. 190-191, og nefnist: „Huldufé og huldusmal- ar í Kálfadal. “ Hún hljóðar svo: „Stefán Árnason og Valdimar Júlíusson áttu heima á Hverhóli og Krosshóli í Skíðadal, þegar þeir voru að alast upp. Þeir sögðu mér frá eftirfarandi atviki: Drengirnir sátu saman ærnar upp í svonefndum Kálfadal, eftir að fært hafði verið frá. Morgun einn, þegar þeir voru nýkomnir upp eftir, sáu þeir tvo drengi reka tíu eða tólf mislitar ær, upp eftir dalnum. Ein ærin rann á undan, og annar drengjanna hljóp fram fyrir hana, til að vísa hópnum upp að klettabelti ofar í hlíðinni. Hvarf þá skyndilega allt saman, eins og jörðin hefði gleypt það. Engir af næstu bæjum gátu komið til greina, að vera með kindur þarna efra, og engrar undankomu var auðið úr dalnum. með þennan kindahóp, nema framhjá þeim Stefáni og Valdimar. Þeir sögðu báðir, hvor í sínu lagi, frá sýn þessari, og bar þeim algerlega saman. Þeir voru alla tíð taldir mjög sannorðir, svo að engir rengdu frásögn þeirra. Töldu menn því, að hér hefði verið um fénað hludufólks að ræða, og smala þeirra." Síðari frásögnin birtist í 3. árg. Súlna 1. hefti 1973, bls. 56, og nefnist hún „Kálfadalsfólkið“. Tryggvi segist þá hafa verið á Melum, og verið að reka fé inn á Sveinsstaðaafrétt, að rúningi loknum, ásamt þeim Haildóri Hallgrímssyni á Melum, og Þor- valdi Baldvinssyni, síðar á Dalvík. Lögðu þeir af stað um háttatíma í niðaþoku, og voru komnir að Krosshóli um fótaferð- artíma, þar sem þeir hittu Ólaf Sigurðsson bónda að máli, en þá var þokunni að létta. „Meðan við stóðum við á hlað- inu og töluðum saman, sáum við allir, að upp frá næsta bæ (Hver- hóli, er var rétt fyrir utan Krosshol), ganga þrjár mann- eskjur, karlmaður og tvær stúlkur. Stefndi fólk þetta upp í svonefndan Kálfadal. Með því var svartur hundur, og allar virt- ust persónurnar dökkklæddar. Önnur stúlkan var sífellt að beygja sig niður, líkt og hún væri að tína eitthvað upp af götunni, og dróst hún af þeim sökum nokkuð aftur úr. Á þetta horfð- um við fjórir samtímis, og viss- um þá þegar, að um dularfulla sýn var að ræða.“ Tryggvi segir, að þeir hafi grennslast eftir um mannaferðir en einskis orðið vísari í því efni, og enginn kannaðist heldur við svartan hund þar á bæjum. Báðar þessar sögur eru nokkuð dæmigerðar fyrir huldufólkssýn- ir. Þær gerast mjög oft við þess konar aðstæður, sem hér var lýst, þar sem ætla má að mcnn hafi verið vansvefta, og bendir til skyldleika þessara fyrirbæra við drauma, þótt ekki sé þar með sagt að þær séu draumar, enda fráleitt að fjóra menn dreymi sama drauminn standandi út á Krosshólshlaði. Þetta segir ekki heldur, að huldufólkssýnir séu óraunverulegri vegna þess, held- ur að menn séu næmari fyrir slfk- ur fyrirbærumn við þessar aðstæður. Bæjarnafnið Krosshóll getur bent til sérstakrar trúar eða helgi á hólnum sem bærinn stóð á, eða einhverjum hól í grenndinni, og getur það tengst þeim mörgu huldufólksstöðum sem eru á þessu svæði. Grásteinn á Hverhóli „Framan í Kambinum (fyrr- nefnda) eru tveir klettastrókar, er Strákar heita. Þeir eru skammt frá merkjunum. Utan og neðan við þá er Háimelur og norður af honum Fuglhóllinn. Ber hátt á hólnum og halda rjúpur þar til þegar snjór er mikill. Grásteinn er utan og neðan við hól þennan, talinn huldufólks- bústaður. Hafa þaðan heyrst hurðarskellir, sést ljós o.fl. Út og upp af steini þessum er grasi vax- inn blettur, ekki mjög stór, ævin- lega kallaður Bletturinn. Beggja vegna hans eru lynghryggir og skriður." Svo segir í örnefnaskrá Hverhóls, í safni Jóhannesar Óla. Ljóst er af lýsingunni. að Grásteinn er ekki langt frá Kálfa- dalnum fyrrnefnda, reyndar aðeins norðar og neðar. Gæti fólkið sem Tryggvi og félagar sáu því eins hafa verið á leið að stein- inum. Ekki er ólíklegt, að Blett- urinn sé eitthvað tengdur Grá- steini og gæti nafnið bent til þess að þar væri álagablettur. þótt þess sé ekki getið. Skammt frá Grásteini er reyndar álagastaður, klettur sem nefndur er Gíslahaus, og var hans getið í „Álagaþáttunum". Er hann á svonefndum Steina- hjalla. Hefur ekki þótt gefast vel að byggja hús úr því grjóti sem þar er tekið, og bendir það til áhrifa frá huldufólki. Óskar Júlíusson frá Kóngs- stöðum kannast vel við Grástein á Hverhóli, segir hann meira en mannhæðarháan, en þó muni hægt að komast upp á hann. Börnum á Hverhóli var bannað að vera með hávaða eða læti umhverfis steininn. Óskar segir, að Snjólaug Aðalsteinsdóttir kona sín, hafi eitt sinn talið sig verða vara við huldukonu í grennd við steininn. Hún var þá um tvítugt og var að koma utan og neðan dalinn. Sá hún konu ganga frá Grásteini og stefna skáhallt inn og niður í veg fyrir sig. Hélt hún að það væri ein af systrum Óskars, sem ætlaði að hitta sig þarna. Skammt utan við Hverhólsbæinn eru hólar nokkr- ir, og þar missti Snjólaug sjónar á konu þessari, og kom hún aldrei fram. Þetta var að vorlagi. (Eftir frásögn Óskars á Elliheimili Dal- víkur, 8. ágúst 1984. Þess má geta að lokum, að Ingi- mar Óskarsson grasafræðingur segir sæturót (köldugras) vaxa upp á Grásteini á Hverhóli, og er það eini fundarstaður þessa burkna í Svarfaðardal, en burkn- inn var fyrrum notaður til lækn- inga. H. Hg. 2 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.