Norðurslóð - 31.03.1987, Side 3

Norðurslóð - 31.03.1987, Side 3
Fréttir úr nágrannabyggð Frá Arskógsströnd Blaðamaður Norðursióðar hafði samband við Svein Jóns- son bónda og oddvita á Kálf- skinni og spurði frétta af mönnum og málefnum úr ná- grannabyggöinni. Sveinn hafði eftirfarandi að segja: Héðan af Ströndinni er allt heldur gott að frétta. Mönnum er auðvitað tíðrætt um þennan milda og snjólétta vetur sem hef- ur verið fram að þessu. Pótt ein- hverjir sakni þess að hafa ekki nægan snjó til sleða- og skíða- ferða, verða þeir þó líklega fleiri sem blessa himnaföðurinn fyrir milda veðráttu það sem af er árinu, sem kemur sér vel til sjós og lands. Síðan sjómannaverkfallinu lauk hefur sjórinn verið stund- aður af kappi og hér byggist afkoman óneitanlega að mestu á sjósókn og verkun aflans í landi. Aflabrögð hafa verið góð og það skapað stöðuga vinnu í landi að verka fiskinn í salt. Rækjuveiðar liggja niðri af heimabátum með- an verið er að ná þorskkvót- anum. Vegna ýmissa anna til sjós og lands verður minni tími til félags- starfa en oft áður. Þó er reynt að halda uppi svipuðu félagslífi og áður í starfandi félögum með árvissum uppákomum svo sem hjónaböllum, þorrablótum, félags- vistum og Bingóum. Björgunar- sveitin starfar af þrótti við æfing- ar og útvegum betri búnaðar. Nýlega hélt Lionsklúbburinn Hrærekur hátíðlegt 15 ára afmæli sitt, en eins og kunnugt er hefur hann starfað að margskonar líkn- ar- og menningarmálum á starfs- ferli sínum. Félögin hafa nú hald- ið aðalfundi sína hvert af öðru á hefðbundinn hátt, þar sem upp er gert starf liðins árs og næstu spor- in ákveðin í framfara átt. Um næstu helgi heldur Ung- mennafélagid Reynir árshátið sína og minnist einnig 80 ára afmælis síns sem það átti 3. mars s.l. Af þessu tilefni verður veisla í Árskógi 21. mars sem vonast er til að verði fjölmenn og ánægju- leg upplyfting fyrir sveitungana. Frá Stærra Árskógskirkju Á síðasta starfsári voru 10 almennar guðsþjónustur með samtals 845 kirkjugestum. Aðrar athafnir voru 4 með 390 kirkju- gestum. Skírð voru 5 börn í kirkju, 5 börn voru fermd. 1 gift- ing og 3 greftranir. Helstu fram- kvæmdir á árinu 1986 voru þær að skift var um timbur í þaki og turni kirkjunnar, sem farið var að fúna, settur nýr þakpappi og litað stál á þak og turn. Einnig var unnið nokkuð við stækkun kirkju- garðsins og lagfæringar við eldri hluta garðsins ásamt stækkun bíla- stæðis við kirkjuna. Á þessu ári verður kirkjan 60 ára, reynt verð- ur að minnast þess, en hvenær það verður gert er enn óákveðið. Pá er fyrirhugað að mála kirkj- una á þessu ári að innan, skifta um glugga í kór og turni. Þá hef- ur einnig verið rætt um að ein- angra og klæða kirkjuna að utan og nota til þess steindar kvarts- plötur þannig að kirkjan haldi samt sínu upprunalegu útliti sem mest. Einnig verður haldið áfram með fegrun umhverfis hennar. Organisti er Guðmundur Þor- steinsson, þjónandi prestur er séra Pálmi Þórarinsson á Möðru- völlum. Staðarhaldari og for- maður sóknarnefndar er Sigurð- ur Stefánsson. Stærra-Ársskógi. Framkvæmdir Á liðnu ári og það sem af er Rækjuverksmiðjan Árver hf., Árskógsströnd. Látrafjöll og Hrísey í baksýi þessu er allmikið um verklegar framkvæmdir í sveitinni. Byggðir voru minnkaskálar á Hellu og í Rauðuvík fyrir yfir 1000 minnka- læður. Afhentar voru 3 fullgerðar raðhúsaíbúðir byggðar af stjórn verkamannabústaða og byrjað er á öðrum 3 í sama kerfi. Einnig eru í byggingu 3 íbúðarhús, eitt á Litla-Árskógssanid og tvö á Hauganesi. Útgerðarfyrirtækið G. Ben. sf. á Litla-Árskógssandi byggði 800 m‘ fiskverkunarhús á s.I. hausti til viðbótar við sína aðstöðu og keypti einnig stærri bát svo nú er skipakostur fyrir- tækisins kominn yfir 300 tonn. Byggt var nýtt hús yfir starfsemi rækjuverksmiðjunnar Árver hf. sem stendur á nýja iðnaðarsvæð- inu uppi við þjóðveg sunnan Þor- valdsdalsár. Síðan um áramót hefur verið unnið við innréttingar þar, flutning og uppsetningu véla og frystikerfa í nýja húsinu sem er tæplega 1000 m að gólffleti. Á liðnu sumri var nokkuð unnið að vega- og gatnagerð í hreppnum. Þjóðvegirnir að báðum þorp- unum voru lagfærðir og að hluta endurbyggðir og lagðir bundnu slitlaei alveg að höfnunum bæði á Litla-Árskógssandi og Hauga- nesi. Einnig var nokkuð unnið að gatnagerð á báðum stöðum með jarðvegsskiptum og varanlegu slitlagi. Fyrirhugaðar eru áfram- haldandi framkvæmdir á þvf sviði næsta sumar. Einnig er ráðgert að fara í verulegar hafnarfram- kvæmdir á sumri komanda á Árskógssandi. Þar er áætlað að byggja sérstaka haróviðarbryggju inni í höfninni fyrir Hríseyjar- ferjuna og lengja núverandi hafnar- garð með grjótgarði um 60 m. Þessar framkvæmdir eru mjög nauðsynlegar og óhjákvæmilegar til að mæta þeirri aukningu á útgerð sem verið hefur þarna síð- ustu árin, og þeim umsvifum sem þeim fylgja. Vonandi heldur sú þróun áfram með meiri fjöl- breytni í veiðum með nýtingu fleiri fiskistofna ásamt nýtingu og fullvinnslu afla í enn lrekari mæli en nú er. Hjá Byggingarfélaginu Kötlu hf. er unnið að stækkun húsnæðis fyrir starfsemi fyrirtækisins sem hefur nýlega komið sér fyrir á hinu nýja iðnaðarrsvæði hrepps- ins. Verkefni fyrirtækisins hafa aðallega verið alhliða húsbygg- ingar og rekstur bíla og véla í flutningum og jarðvegsskiptum. Á s.l. ári hóf fyrirtækið fram- leiðslu á vörupöllum sem notaðir eru við margskonar llutninga á útflutningsvörum landsmanna og má þar nefna frosinn fisk alls- konar, rækju, saltfisk, fóður- vöru, vatnspökkum o.fl. o.fl. I sambandi við þessa framleiðslu sér fyrirtækið um innflutning á timbri til framleiðslunnar svo og ýmsum öðrum byggingarvörum. S.J. Héraðsskjalasafn Dalvíkur - Vel rekin stofnun Út er kominn 7. árgangur árs- skýrslu Héraðsskjalasafns Svarf- dæla fyrir árið 1986, vel unnið og ítarlegt rit að vanda. í skýrslu stjórnar fremst í ritinu segir svo: „Fyrri hluta ársins rættist úr húsnæðismálum safnsins í Ráð- húskjallara bæjarins. Þáverandi bæjarstjórn úthlutaði safninu marglofuðu herbergi við hlið þess húsnæðis, er safnið hefur verið í. Með þessari stækkun má segja, að nú fari allvel um safnið og allur aðbúnaður fyrir þá gesti, sem í það koma, sé með ágætum." Þess er getið, að safngestir á árinu hafi orðið um 100 og flestir hafi kom- ið til að nýta sér einhver þau gögn, sem þar eru geymd. Má líklegt þykja, að með vaxandi sögu- og ættfræðiáhuga muni aðsóknin aukast bæði til skoðun- ar á skjallegum gögnum svo á ljósmyndasafninu, sem að sínu leyti er ekki ómerkilegra. Á árinu 1986 barst safninu enn mikið af skjallegum heimildum. flestum um svarfdælsk efni. og er sérstaklega getið um sendibréf frá Guðjóni Baldvinssyni frá Böggvisstöðum svo og um heilla- skeytasafn Snorra Sigfússonar. en þessir menn voru báðir meðal helstu frumkvöðla svarfdælskrar alþýðufræðslu. Einna mest að vöxtum virðist þó vera gagnasyrpa úr fórum sr. Stefáns B. Kristinssonar prests á Völlum sem sonur hans, Sæm- Bjarkarbraut og Goöabraut. Arnarhóll og Bergþórshvoll t.h. Myndir úr Ijosmyndasatni HSD Karlsbrautin uin 1930. Ásbyrgi og Tunga næst á myndinni. undur æðarbóndi á Ystabæ í Hrísey, afhenti safninu á síðast- liðnu hausti. Kennir þar margra grasa t.d. likræður yfir fjölda manna og tækifærisræður margs konar. Ennfremur ágrip úr prest- þjónustubókum úr sóknunum 5 í Svarfaðardal og á Árskógs- strönd, sem sr. Stefán þjónaði. Að lokum er getið um 2 bækur með smágreinum. einkum mann- lýsingum. Ein þeirra mannlýs- inga er reyndar birt í heilu lagi. sem sýnishorn og er um fyrir- rennara hans á Völlum sr. Tómas Hallgrímsson. Mun mörgum þykja það fróðleg lesning. (Sr. Tómas var prestur á Völlum eftir sr. Hjörleif Guttormsson 1884- 1901. en sr. Stefán B. Kristinsson frá 1902-1941.) Myndir af klerk- unum Tómasi og Stefáni prýða ritið. Það fer ekki á milli mála. að Héraðsskjalasafn Svarfdæla er vel rekin stofnun og mega aðstandendur þess, íbúar Dalvík- ur og Svarfaðardalshrepps, vei við una. Safnvörður er Ragn- heiður Sigvaldadóttir. en stjórn- ina skipa nú Júlíus Kristjánsson formaður, Jóhann Daníelsson Dalvík, Þóra Rósa Geirsdóttir Dalvík, Guðbergur Magnússon Þverá og Sigurjón Sigurðsson Syðra-Hvarfi. NORÐURSLÓÐ - 3

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.