Norðurslóð - 23.05.1987, Side 1
11. árgangur
Þriðjudagur 26. maí 1987
5. tölublað
Af mönnum
og hestum
Sumarkoma
- Bæjarlækur gerir usla
Þá er sumarið komið. Alla vegna
er orðið býsna sumarlegt yfir að
líta þó að enn sé ekki komið fram
í júní. Tré eru laufguð og tún
orðin græn yfir að líta víðast
hvar. Sums staðar hefur þau þó
kalið og hafa nokkrar jarðir í
miðsveitinni orðið fyrir búsifjum
af þeim sökum. Kalið má að
sjálfsögðu rekja til svellanna sem
lágu hér yfir öllu í vetur og þarf
engum að koma á óvart.
Síðustu dagar hafa verið með
eindæmum sólríkir og fallegir,
hnúkaþeyr af fjöllum og greini-
legur munur á græna litnum í
túnunum frá degi til dags svo
ntaður tali nú ekki um trjá-
gróðurinn. En öllu gamni fylgir
nokkur alvara. Óhjákvæmilegur
fylgifiskur hlýviðrisins eru miklar
leysingar og flóð í ám og lækjum.
Flestir lækir í svarfaðardal héldu
sig innan skynsamlegra marka en
einstaka spræna sleppti sér ger-
samlega og breyttist í stórfljót.
Þannig fór bæjarlækurinn á Tjörn
úr böndunum, hljóp fram með
miklum aurburði, möl og grjóti
sem stíflaði ræsi og olli verulegu
tjóni á túni og trjágörðum bæði í
Laugasteini og á Tjörn. Framan
við Urðir lagði annar lækur til
atlögu við þjóðveginn og áttu
vegagerðarmenn í vök að verjast
en tókst með harðfylgi að halda
honum í skefjum.
Sauðburður er nú víðast hvar
langt kominn og hefur að sögn
héraðsdýralæknis víðast hvar far-
ið vel fram. Mikil hlýindi eru þó
ekki æskilegasta veðráttan um
sauðburð þvf þá hættir lömbum
frekar til að sýkjast af hvers kon-
ar lambapestum. Að sögn Skarp-
héðins í Dýrholti er got vel á veg
komið hjá refalæðum og hefur
gengið ágætlega. Af öðrum refa-
bændum taldi hann að sömu sögu
væri að segja. Sæðingar virðast
ætla að bera góðan árangur.
Áburðarbílar hafa að undan-
förnu verið að silast fram sveitina
með þungar klyfjar en ekki hefur
Norðurslóð frétt hvort einhverjir
séu byrjaðir að bera á.
Kýr eru komnar út á nokkrum
bæjum og ber ekki á öðru en að
þær kunni því vel og hafi nóg að
bíta.
Vatnavextir.
Það fer vart fram hjá neinum,
hve hesturinn og hestamennsk-
an er orðin snar þáttur í tóm-
stundalífi fólks hér um slóðir
sem annarsstaðar. I vorblíð-
unni að undanförnu hefur mátt
sjá fjölda fólks á öllum aldri
spóka sig á gæðingum sínum.
Flestamannafélgaið Hringur
starfar fjörlega og gengst fyrir
ýmsum uppákomum. Má t.d.
nefna hestaíþróttakeppni með
um 70 skráningum á kosninga-
daginn, firmakeppni með um 50
þátttakendum um miðjan maí,
sýningu 30 kynbótahrossa 24.
maí og úrtökumót gæðinga fyrir
Fjórðungsmótið á Melgerðis-
melum 27. maí. Hápunktur
hestamennskunnar hér í sumar
(fyrir utan fjórðungsmótið) verð-
ur svo íslandsmót í hestaíþróttum
sem haldið verður á mótssvæði
Hrings á Flötutungum 18.-19.
júlí. Koma þar saman menn og
hestar kvaðanæfa af landinu til
leika og keppni og verður vafa-
laust mikið um dýrðir.
Ekki má gleyma unglingastarf-
inu, en hestamannafélagið hefur
sinnt þeim þætti all vel að undan-
förnu. Hafa þau Kolbrún í
Rauðuvík og Þorsteinn Hólm
leiðbeint unglingunum í hesta-
mennskunni nú í vor og vafalaust
verður svo reiðskóli í sumar eins
og undanfarin sumur.
Sigurvegari í firmakeppni Hrings,
unglingaflokki, Unnur Ármanns-
dóttir á Smyrli keppti fyrir Sparisjóð
Svarfdæla. Mynd: Baldur Þórarinsson.
Sigurvegarar í firmakeppni Hrings fullorðnir. 1. Sleipnir, knapi Rafn Arn-
björnsson, keppti fyrir Oskar Jónsson. 2. Tryggur, knapi Ingvi Antonsson.
3. Helmingur, knapi Stefán Friðgeirsson. Mynd: Baldur pórarinsson.
Hjálparsveitin
byggir yfir sig
Dalvíkurdeild Hjálparsveitar
skáta er fimm ára um þessar
mundir og verður að því tilefni
tekin fyrsta skóflustunga að
nýju húsnæði fyrir félagsskap-
inn á uppstigningardag
kl. 5.00.
Húsið mun standa að Gunn-
arsbraut 6 og reisa þeir það í
samvinnu við fyrirtækið Electro
co. sem einnig verður með starf-
semi sína þar. í húsinu munu bíl-
ar og önnur tæki sveitarinnar
vera geymd og einnig verður þar
aðstaða fyrir félagsstarfið.
í sveitinni eru 40-50 manns og
voru þeir kallaðir út þrisvar sinn-
um sl. vetur.
í lok mánaðarins er fyrirhugað
landsþing Hjálparsveitar skáta á
Akureyri og sagði Aðalsteinn
Hauksson, formaður Dalvíkur-
sveitarinnar að þessi athöfn yrði í
tengslum við þingið. Á eftir verð-
ur drukkið kaffi í Víkurröst.