Norðurslóð - 23.05.1987, Page 3

Norðurslóð - 23.05.1987, Page 3
Skólaslit Dalvíkurskóli Húsabakkaskóli ftrnsnú þegar þú vilt góðan fisk Skólar eru nú hver af öðrum að Ijúka sínu starfsári og nemend- ur að fá sitt hefðbundna sumarfrí. í kvöld verður Dal- víkurskóla slitið og fer athöfn- in fram í Dalvíkurkirkju. 45 nemendur munu þá útskrifast úr 9. bekk en það er einn stærsti námshópur sem útskrif- ast hefur frá skólanum nú um langt skeið. f skólann voru innritaðir 312 nemendur nú í haust þar af voru grunnskólanemendur 278 að forskóladeild meðtaldri. 34 nemendur voru innritaðir í fram- haldsdeild í skipstjórnarnám, réttindanámskeið og fornám. Réttindanámskeiðum lauk á fyrri önn en þá útskrifuðust 11 nemendur með 1. stigs skip- stjórnarpróf og tveir með 80 tonna próf. Af skipstjórnarbraut útskrifuðust nú í haust 13 nemendur með 1. stig og er það stærsti hópurinn sem útskrifast frá skólanum í þessu námi. Að venju komu nemendur úr nágrannasveitarfélögunum í eldri bekki skólans en auk þeirra stunduðu 5 nemendur frá Gríms- ey nám í 7. og 8. bekk. Heimavist skólans var vel nýtt þetta skólaár og má segja að hún hafi verið fullsetin. Auk grunnskóla- nemenda úr nágrannasveitar- félögunum bjuggu allmargir nemendur af stýrimannabraut á vistinni. Útskrift nemenda af skip- stjórnarbraut fór fram laugardag- inn 16. maí. Námsárangur var mjög góður. Hæstu meðal- einkunn hlaut Birgir Stefánsson frá Ólafsfirði 9,50 og mun það hæsta meðaleinkunn sem náðst hefur á fyrsta stigi nú í ár. Hlaut Birgir að launum viðurkenningu frá Útvegsmannafélagi Norður- lands. Við útskriftina afhenti Jóhann Gunnarsson skipstjóri viðurkenningu frá Skipstjóra- félagi Norðlendinga fyrir bestan námsárangur í siglingafræði en þrír nemendur urðu jafnir með 39 stig af 40 mögulegum. Þeir voru Birgir Stefánsson, Baldur Baldursson frá Húsavík og Kristinn Snæbjörnsson frá Greni- vík. Sérstaka viðurkenningu hlaut Sigurjón Sigurbjörnsson frá Húsavík fyrir góða námsframför og ástundun. Eins og fram hefur komið í blaðinu þá hefur fengist heimild til að starfrækja 2. stig á næsta skólaári og hefur stór hóp- ur þeirra nemenda sem nú út- skrifuðust af 1. stigi frá skólanum sótt um skólavist. Ekki er gert ráð fyrir miklum kennarabreytingum nú í vor. Ljóst er þó að Guðlaugur Arason mun ekki kenna á næsta ári og þá hefur yfirkennari skólans fengið ársleyfi. Ekki hefur enn verið gengið frá kennararáðningum og því óljóst hver muni skipa stöðu yfirkennara næsta skólaár. í>á hefur verið auglýst eftir kennara í íslensku, stærðfræði og dönsku. Auk þess þarf að ráða kennara að 2. stigi skipstjórnarbrautar. Laugardaginn 9. maí var Húsa- bakkaskóla slitið í 31. sinn við athöfn í íþróttasal skólans. A sl. vetri voru nemendur 40 í 8 bekkjardeildum auk 3 for- skólanemenda. Fimm piltar luku prófí úr 8. bekk og munu sækja skóla á Dalvík á næsta vetri. Að venju voru veitt verðlaun fyrir góða frammistöðu á ýmsum sviðum. Fyrir hæstu meðaleink- unn yfir skólann fékk Harpa Rún Jóhannsdóttir frá Atlastöðum viðurkenningu frá Lionsklúbbi Daivíkur. Fyrir góða frammi- stöðu í móðurmáli fékk Ingibjörg Stefánsdóttir á Göngustöðum verðlaun úr verðlaunasjóði Húsabakkaskóla. Frá sama aðila fékk Edda Björk Ármannsdóttir viðurkenningu fyrir frammistöðu í sagnfræði. Nokkrir nemendur fengu einnig viðurkenningar frá skólanum. Við skólaslitin barst tækja- kaupasjóði Húsabakkaskóla pen- ingagjöf frá nemendum sem út- skrifuðust fyrir 20 árum. Þá til- kynnti skólastjóri að skólinn hefði hlotið 100.000 króna styrk frá Menningarsjóði Svarfdæla til þess að koma upp skólabóka- safni. Unnið verður að því á sumrinu að koma upp aðstöðu fyrir slíkt safn. Litlar breytingar hafa orðið á kennaraliði skólans á undanförn- um árum og er allt útlit fyrir að svo verði áfram. Allir fastir kenn- arar verða starfandi áfram næsta Frá fermingu í Dalvíkurkirkju sl. sunnudag, þar sem 24 ungmenni voru fermd. vetur. Einn stundakennari, Steinunn P. Hafstað hefur sagt starfi sínu lausu og þakkaði skólastjóri henni störf hennar í þágu skólans. Að Iokinni skólaslitaathöfn höfðu nemendur kaffisölu til ágóða fyrir ferðasjóð sinn og gafst gestum kostur á að skoða teikningar, handavinnu og önnur verkefni frá vetrinum. Tónlistarskóli Dalvíkur Tónlistarskóla Dalvíkur var slitið í Víkurröst sunnudaginn 17. maí s.l. 48 nemendur stunduðu nám við skólann á vormisseri, þar af 10 á Húsabakka. 14 nemendur luku 1.-3. stigsprófi í tónfræði. í hljóðfæraleik luku 11 nemendur 1. stigi, 4 nemendur 2. stigi og 1 nemandi 3. stigi. 2 fastráðnir kennarar störfuðu við skólann s.l. vetur auk skóla- stjórans Roars Kvam. Gunnar Jónsson frá Akureyri kenndi auk þess gítarnemendum í stunda- kennslu. Annar fastráðnu kenn- aranna, Waclaw Lazarz, mun starfa áfram við skólann en hinn, Dorota Manczyk, hefur sagt upp störfum og mun færa sig um set og kenna við Tónlistarskólann á Akureyri næsta vetur. í hennar stað hefur verið ráðin eiginkona Waclaws, Magdalena Lazarz. Sú nýbreytni var tekin upp við skólann í vetur að hafa tónlistar- stund einu sinni í mánuði. Mark- miðið með þeim er að æfa nemendur í því að koma fram og flytja fyrir aðra það sem þeir eru að æfa hverju sinni. Aðsóknin að þessum tónlistarstundum fór stöðugt vaxandi eftir því sem leið á veturinn og munu verða fastur liður í starfsemi skólans næsta vetur. Skólaslitunum lauk með kaffi- sölu, sem orðinn er árlegur við- burður. Hana önnuðust foreldrar nemenda og aðrir velunnarar skólans. Ágóða kaffisölunnar verður varið til að auka hljóð- færaeign skólans. Bókasafn Dalvíkur - Kynning - Frá 1. júní til 15. júlí verður kynning frá Nor- ræna húsinu á bókum sem tilnefndar voru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 1985. Athugið að frá 1. júní til ágústloka verður opnunartími safnsins sem hér segir: Mánudag kl. 14-19. Fimmtudaga 14-17 og 19-21. Bókaverðir. m Upprennandi konsertpíanisti, Ásta Bragadóttir á nemendatónleikum. Lögtaksú rskurðu r eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á Akureyri, Dal- vík og í Eyjafjarðarsýslu úrskurðast hér með, að lögtök geti farið fram fyrir eftirtöldum gjöldum, gjaldföllnum en ógreiddum: Söluskattur fyrir janúar, febrúar og mars 1987 svo og viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila. Ennfremur fyrir þinggjaldahækk- unum vegna fyrri ára og skipulagsgjaldi af nýbygging- um. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum ásamt dráttarvöxtum og kostnaði geta farið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 15. maí 1987. og fermíngar

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.