Norðurslóð - 23.05.1987, Page 4

Norðurslóð - 23.05.1987, Page 4
Leiklistarhátíð í Svarfaðardal - Fjóshlöðu breytt í leíkhús Góð stemmning á súgþurrkunarstokkunum. En ekki var allt búiö enn. Þeg- ar áhorfendur komu aftur út í bjarta vornóttina loguðu eldar útifyrir og tónlist barst fyrir fjós- hornið. Suður undir fjósveggnum hímdu tveir torkennilega búnir menn sem við nánari aðgæslu reyndust vera fakírar, Guðjón Pedersen leikari við annan mann. Fakírinn hófst nú handa við að strjúka sig allan utan með log- andi kyndlum og rjóða eldi á skrokk og útlimi og var ekki laust við að hrollur færi um suma. Þetta var þó aðeins byrjunin því nú tók hann til við að gleypa eldinn, sleikja logandi kyndla og slökkva elda með tungunni. Að endingu saup hann á staupi með eldfimum vökva og frussaði á eldinn svo eldtungurnar stóðu upp úr vitum hans nokkra metra upp í loftið. Eldgleypinum var að sjálfsögðu vel fagnað enda ekki á hverjum degi sem eldgleypar leggja leið sína í svarfdælsk fjós. Par með var dagskrá kvöldsins tæmd, enda klukkan orðin hálf tvö og ráðstefnugestum ekið heim í háttinn eftir ógleymanlegt kvöld. Ökuferð og veisla Á laugardaginn hélt landsþingið áfram. Menn ræddu vítt og breitt um tengsl við hin Norðurlöndin og hlýddu á erindi þar að lútandi. Um miðjan daginn byrjaði aðal- fundur bandalagsins og stóð til hálf sex en þá var liðinu smalað í rútur og ekinn hringur um dalinn í dásamlegu veðri undir leiðsögn Björns Daníelssonar og Hjalta Haraldssonar. Ökuferð þessi endaði síðan á Víkurröst þar sem gestanna beið veisla í boði Svarf- aðardalshrepps og Dalvíkurbæj- ar. Dagskrá dagsins endaði síðan með leiksýningu. Par var á ferð- inni nornin Baba Jaga hjá L.D. og var gerður að henni góður rómur. Ó þú Um miðjan dag á sunnudag var landsþinginu síðan formlega slitið. Fóru þá margir að tygja sig til brottfarar en aðrir lögðu leið sína fram á Grund þar sem leik- Nú um helgina uröum viö svarfdæiingar varir við miklar mannaferðir i nánd við Húsa- bakkaskóla og var þar greini- lega mikið líf og fjör enda veðrið eins gott og það getur orðið og skilyrði hin bestu til að gleðja sig. Við nánari eftir- grennslan kom í Ijós að þarna voru á ferðinni um 70 áhuga- menn um leiklist hvaðnæva að af landinu að halda landsþing Bandalags íslenskra leikfélaga. Leikið í Tjarnarhlöðunni Pingið hófst á föstudag og var fólk að tínast að í blíðviðrinu þann dag allan en að loknum fundum um ellefuleytið um kvöldið var öllum þingheimi safnað upp a heyhleðsluvagn og þeim ekið sem leið liggur út í Tjörn óg sturtað þar framan við hlöðudyrnar. Þegar hlöðudyrun- um var síðan hrundið upp gaf að líta yngsta leikhús landsins en ekki það ófrumlegasta. Þar inni hafði súgþurrkunarstokkum ver- ið raðað upp í áhorfendastúku og sviðsvængir hlaðnir úr heybögg- um. Þarna hafði þá Leikfélag Dalvíkur haslað sér völl og skap- að umgjörð við hæfi fyrir dagskrá úr verkum Jónasar Árnasonar, „Til sjávar og sveita“ sem eins og menn eflaust muna var flutt í „Unó“ um jólaleytið í vetur. Eflaust muna margir eftir leiknum „Táp og fjör“ þar sem Björn Björnsson fór á kostum í hlutverki hins hjartagóða fjósa manns sem neyðist til að flytja á mölina þegar bróðir hans, bónd- inn á bænum, ákveður að slátra kúnum og byrja að rækta refi. (frá höfundarins hendi voru það víst svín en refir hæfa betur í Svarfaðardal). Dagskráin í hiöðunni hófst á því að fluttir voru söngvar eftir Jónas við erlend lög í einkar frumlegum og skemmtilegum útsetningum Katjönu Leifsdóttur en eftir hlé var tekið til við leik- inn „Táp og fjör“. Eins og við var að búast sýndu þeir þremenn- ningar sem mest mæddi á í sýn- ingunni, þeir Björn Björnssn, Albert Ágústsson sem lék bónd- ann og Friðrik Vilhelmsson, alveg stjörnuleik svo áheyrendur ætluðu á stunudm hreinlega að rifna af fögnuði Björn hefur fyrir löngu sýnt og sannað að hann er ekkert meðalmenni í kómíkinni og slær á því sviði út margan atvinnumanninn. Albert er tiltölulega nýr í bransanum og hefur aðeins leikið í þremur sýningum hjá L.D. til þessa. Honum hefur þó tekist í þessum þrem mjög svo ólíku rull- um að sýna það og sanna að hann er afburða snjall leikari bæði í gamni og alvöru og í hlutverki hins drembiláta og hjartasmáa bónda gefur hann Birni ekkert eftir enda er samleikur þeirra með því spaugilegasta sem undir- ritaður hefur séð á leiksviði, Bjössi svo lítill og Albert svona stór. Friðrik steig sitt fyrsta skref á leiksviði í þessu leikriti og verð- ur það tæpast séð á leiknum. Vandræðaunglingurinn sem síð- an reynist fyrirmyndarunglingur í dulargervi en fær þó Lása fjósa- mann til að taka duglega í lurginn á bróður sínum í kveðjuskyni, leikur í höndunum á Friðriki og slanguryrði með norðlenskum framburði láta einkar vel í eyr- um. Helga Mathíasdóttir og Krist- ján Hjartarson léku þarna smærri hlutverk og gerðu það með sóma. Eldgleypir undir fjósvegg Að leiksýningunni lokinni brut- ust út mikil fagnaðarlæti og var Ieikstjóranum Kristjáni á Tjörn og áhöfn hans klappað óspart lof í lófa. Höfundurinn Jónas Árna- son var meðal gesta í hlöðunni og sýndist mér hann skemmta sér ákaflega vel. Beðið eftir að „tjaldið Ivftist". Katjana, útsetjari tóniistar og Jónas, höfundur texta.

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.