Norðurslóð - 29.06.1987, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 29.06.1987, Blaðsíða 1
Svarffdælsk byggð & bær 11. árgangur Mánudagur 29. júní 1987 6. tölublað 17. júní 17. júní rann hvorki upp bjartur né fagur í ár. Kalsaveður var og setti það strik í reikninginn, bæði varðandi skemmtanin og þátttöku í þeim. Um morguninn var víðavangshlaup og tók nokkur hópur barna og unglinga þátt í þeim. Eftir hádegi safnaðist fólk síðan saman á Ráðhústúninu. Heldur var þar fátt, einhverjir sátu þó í bílum sínum umhverfis túnið og reyndu að fylgjast með. Yrsja Helgadóttir flutti ávarp fjallkonunar af svölum Ráðhússins og sr. Pétur Þórarinsson flutti hátíðarræðu. Þá voru vöskustu hlauparar frá um morguninn verðlaunaðir. Ragn- ar Jónsson lék létt lög á orgel og farið var í leiki með börnunum og fengu þau jafnframt að fara á hestbak. Unga kynslóðin hafði bundið mestar vonir við flugvél sem boðað hafði verið að kæmi og dreifði sælgæti og síðan myndu fallhlífa- stökkvarar svífa til jarðar. Af þessu varð ekki vegna þess hve lág- skýjað var. A sunnudag, 21. kom svo flugvélin og þá viðraði þannig, að þó kalt væri, var mun fleira fólk saman komið og tókst hið besta til. Sæplast í nýju húsnæði Refabændur „minka við sig“ Refabændur í Svarfaðardal eru nú flestir að hefjast handa við byggingu minkaskála og hyggjast stunda minkarækt samhliða refa- búskapnum. Á loðdýrabænda- máli heitir það að minka við sig. Að sögn Björns Þórleifssonar oddvita hafa nú þegar þrjú bú sótt um byggingaleyfi fyrir minkahús. Það hefur sýnt sig að verð á refaskinnum er ákaflega óstöðugt á heimsmarkaðnum. En minknum er hinsvegar mun betur treystandi hvað söluverð varðar. Eins og kunnugt er fengu refa- bændur hastarlegan skell í fyrra þegar verð á framleiðslu þeirra hrapaði niður úr öllu valdi. Með því móti að hafa búin blönduð er unnt að mæta verðsveiflum refa- skinnsins með tiltölulega „stabíl- um“ tekjum af sölu minkaskinna. Auk þess má samnýta flesta þætti þessara tveggja búgreina, vinnu- kraft, fóður, vatn o.s.frv. Af öðrum byggingarfram- kvæmdum í sveitinni má nefna íbúðarhús í Ytra-Garðshorni og annað á Syðra-Hvarfi og verk- færahús á Þverá í Svarfaðardal. Framkvæmdir við sundskálann eru komnar á lokastig og verður hann líklega opnaður í ágúst. Þá er á vegum hreppsins í bígerð að gera við steypuskemmdir og mála syðra skólahúsið á Húsabakka. Það er semsagt mikil fram- kvæmdagleði í Svarfdælingum í sumar eins og hjá mörgum öðr- um en hörgull á byggingamönn- um gæti átt eftir að tefja eitthvað framkvæmdir. Atvinnumál: Nóg störf fyrir vinnufusar hendur Mikil gróska er nú í atvinnu- málum á Dalvík og hafa bygg- ingarfyrirtæki staðarins tæpast undan að byggja yfir einstakl- inga og atvinnufyrirtæki. Fyrirtækið Viðar h/f er farið af stað með 10 íbúða blokk, Tré- verk h/f er að byrja á 7 raðhús- íbúðum og tveir einstaklingar eru að smíða sér einbýlishús. Þó fer því fjarri að eftirspurn eftir íbúð- arhúsnæði sé annað. Fyrirtækin í bænum eru einnig mjög að sækja sig í veðrið. Bakaríið er komið í nýtt hús, Sæplastsmenn eru að fara af stað aftur og nýbúnir, Electro co og skátarnir eru byrjað- ir á sameiginlegu húsi og heyrst hefur að útgerðarfyrirtækið Har- aldur sé eitthvað að hugsa sér til hreyfings. Bæjarverkfræðingur, Arn- grímur Ævar Ármannsson, sagði í samtali við blaðið að líklega réði aukin bjartsýni samhliða breyttu lánafyrirkomulagi því að menn tækju nú svo duglega við sér enda hefði húsnæðisskortur- inn verið orðinn mjög tilfinnan- legur og er raunar enn. Á vegum Dalvíkurbæjar verð- ur framkvæmdagleðin einnig óvenju mikil. Þar vegur vatnsveitan þyngst en fleira má þó nefna. Nýlokið er stækkun húsnæðis barnaheimilisins Kríla- kots (eða „Kríló“ eins og börnin segja) og gatnagerð er töluverð samhliða nýbyggingunum. Gatan milli hafnargarðanna verður hækkuð og breikkuð og færð að nokkru út í sjó. Þá verður að vanda eitthvað malbikað t.a.m. hinar gamalgrónu holur á Grundargötunni sem liggur að bílaverkstæðinu og niður með því. Einnig er á framdvæmda- áætlun bæjarins vegalagning að fyrirhuguðu hesthúsahverfi í landi Hrísa en þangað ætla bæjaryfirvöld að flytja aðstöðu hestamanna og verður fljótlega hafist handa við að semja við hestamenn um búferlaflutninga. En nú er svo komið að mann- ekla er farin að há byggingariðn- aði sem og öðrum atvinnugrein- um á Dalvík. Verður nú mörgum ósjálfrátt hugsað til þess þegar byggingarmönnum var sagt upp í stórum stíl vegna verkefnaskorts. Föstudaginn 19. júní tók Sæplast við húsi því sem Híbýli h/f hefur byggt fyrir fyrirtækið við Gunnarsbraut. Húsið er rúmir 800 fermetrar að stærð og mjög vandað á allan hátt. Bygging þess tók níu mánuði og voru verklok í samningum við verktaka ákveðin 18. júní. Auk dagsetningarinnar í verks- amningi var á máluðu skilti við byggingarstað, tilkynntur þessi dagur sem verklok strax við upphaf byggingarinnar. Verk- takinn stóð við gerðan samn- ing af sérstakri prýði bæði með verklokin og frágang allan. Öllum þeim sem áhuga hefðu var boðið að skoða húsnæðið á föstudaginn og vera við athöfn þegar verktaki afhenti eigendum lykil að húsinu. Stjórnarformað- ur Sæplasts Matthías Jakobsson bauð fólk velkomið og fór nokkr- um orðum um framkvæmdirnar og fyrirtækið en Hörður Túliníus framkvæmdastjóri Híbýiis afhenti síðan stóran áletraðan lykil. Við lyklinum tók einn af starfsmönnum Sæplasts Dórótea Jóhannsdóttir. Því næst hélt framkvæmdastjóri Sæplasts Pétur Reimarsson tölu og sagði frá hús- inu og upplýsti um leið að það væri þegar orðið of lítið fyrir starfsemi fyrirtækisins áður en það er tekið í notkun. Pétur gat þess að búið væri að semja við sama verktaka um áframhaldandi byggingu sem tek- in yrði í notkun í haust. Léttar veitingar voru bornar fram við þessa athöfn og var allmargt fólk saman komið. Síðan bauð fyrir- tækið nokkrum gestum til kvöld- verðar í Sæluhúsinu. Kvöldið eft- ir var svo árshátíð hjá fyrirtæk- inu, svo segja má að þessum áfanga hafi verið fagnað á viðeig- andi hátt eins og vera ber. Nýja húsið er hið smekklegasta bæði að utan og innan. Þar er framleiðslusalur og góð starfs- mannaaðstaða auk skrifstofu. Búið er að malbika bílastæði og allt athafnasvæðið og þökuleggja stærstan hluta lóðarinnar. Því má segja að allur frágangur sé fyrir- tækinu til mikils sóma og öðrum til eftirbreytni. Hiö nýja húsna'öi Sæplasls.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.