Norðurslóð - 29.06.1987, Page 7
Ý
Halldor Jónsson á Jarðbrú
Kveðjuorð
Fæddur 23. apríl 1931 - Dáinn 11. maí 1987
Halldór Jónsson á Jarðbrú
andaðist á sjúkrahúsinu á Akur-
eyri þann 11. maí og var jarðsett-
ur í Dalvíkurkirkjugarði þann
19. maí að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Hann náði ekki háum
aldri, var liðlega 56 ára er hann
lést.
Halldór kenndi hjartasjúk-
dóms fyrir allmörgum árum síðan
en komst aftur til dágóðrar
heilsu. En sjúkdómurinn er eins
og falinn eldur, hann getur bloss-
að upp aftur þegar minnst varir
og svo varð hér raunin á. Halldór
barðist við sjúkdóm sinn af mik-
illi hugprýði að sögn hjúkrunar-
fólks, en varð að lúta í lægra
haldi. Eigi má sköpum renna,
segir hið fornkveðna.
Halldór fæddist í Jarðbrúar-
gerði síðastur barna sem litu
dagsins ljós í þessu litla kotbýli í
Jarðbrúarlandi, þar sem er eitt-
hvert fegursta útsýni yfir Svarfað-
ardal fram um sveit og út á sjó.
Við Jarðbrú voru nálega allir æfi-
dagar hans tengdir. Hann var
einn þeirra tiltölulega fáu ungu
manna, sem hiklaust stefndi að
því að gerast bóndi á föðurleifð
sinni þegar sá tími kæmi. Því var
það að eftir gagnfræðanám á
Akureyri fór hann í bændaskól-
ann á Hvanneyri og útskrifaðist
þaðan vorið 1950. Ariö 1963 hóf
Halldór eigin búskap á Jarðbrú í
sambýli við foreldra sína, Jón
Jónsson og Rannveigu Sigurðar-
dóttur. En 1969 tók hann við öllu
búinu og bjó síðan rausnarbúi,
og hafði hin síðari árin afnot af
nágrannabýlinu Laugahlíð, þar
til á síðastliðnu vori að hann seldi
jörð og bú og fluttist til Akureyr-
ar.
Venjulegur íslenskur sveita-
búskapur með kýr og kindur varð
þannig æfihlutverk Halldórs.
Hann hafði kosið sér það sjálfur
og undi því vel. Þar fyrir sinnti
hann mörgum öðrum störfum
sem til falla í íslenskri sveit. Sér-
stakt var það þó, að skömmu eft-
ir að hann lauk skólanáminu varð
hann við þeirri beiðni sveitar-
stjórnar að gegna starfi dýra-
læknis i Svarfaðardal en þá hafði
ekki enn verið stofnað hið útey-
firska dýralæknisumdæmi, sem
nú er. Halldór fékk tilsögn og
þjálfun til starfsins hjá dýralækn-
um á Akureyri og gegndi þessu
mikilvæga starfi síðan í sveit sinni
og nálægum sveitum reyndar í
meira eða minna mæli nær því
um aldarfjórðungs skeið. Það
starf fórst honum ágætlega úr
hendi og sinnti hann því af frá-
bærunt dugnaði og skyldurækni
eins og best varð á kosið.
Árið 1974 var Halldór kosinn
í sveitarstjórn og var strax gerður
að oddvita hennar. Stóð svo
næstu 12 árin þar til hann lét af
þeim störfum að eigin frumkvæði
við sveitarstjórnarkosningar
1986.
Halldór var að mörgu leyti
ágætlega gerður til að gegna
þessu mikilvægasta embætti
hvers sveitarfélags. Hann var
óvenjulega talnaglöggur maður
og hafði ágætt lag á bókhaldi og
allri pappírsvinnu, sem svo er
stundum nefnd og fylgir starfi
oddvitans. Reglusemi og snyrti-
mennska í embættisfærslu voru
einkenni hans.
Óhætt er að fullyrða að Hall-
dór hafði vakandi áhuga á öllum
velferðarmálum sveitarfélagsins,
ekki síst uppbyggingu og gengi
skólans á Húsabakka, sem er
næsti granni Jarðbrúarheimilis-
ins. Að öðru leyti nefni ég aðeins
þann mikla áhuga sem hann
sýndi uppbyggingu hinna þýðing-
armiklu velferðarstofnana sem
Svarfaðardalshreppur og Dalvík-
urbær hafa staðið að sameigin-
lega. Þar er fyrst að nefna heimili
aldraðra, Dalbæ, á Dalvík og
heilsugæslustöðina, heimavist
Dalvíkurskóla, héraðsskjalasafn-
ið og fleira mætti nefna. Hann
hallaðist stöðugt meira að þeirri
skoðun. að skipting hins svarf-
dælska byggðarlags í tvö sveitar-
félög væri ekki lengur æskileg og
vann heilshugar að samvinnu
þeirra sín á milli á öllum sviðum
þar sem hagsmunir eru sameigin-
legir.
Við Halldór vorum nágrannar
og áttum auk þess töluvert mikið
saman að sælda í félagsstarfinu.
Okkur hér reyndist hann hinn
besti nágranni, hjálpsamur og
umburðarlyndur, sem kom sér
vel þar sem ógirt lönd liggja sam-
an og ágangur búfjár mikill,
reyndar á báða vegu. Áldrei varð
það að ágreiningsefni.
Ennfremur kynntist ég honum
vel í samstarfi í Lionsklúbb,
sparisjóðsstjórn og víðar og
reyndist hann hvarvetna hinn
nýtasti liðsmaður, gjörhugull og
sjálfstæður í hugsun og ályktun-
um. Halldóri hlotnaðist líka far-
sæld í fjölskyldulífi sínu. Hann
Svarfdælingasamtökin gangast
fyrir sinni árlegu skemmtiferö
aðra helgina í júlí.
Að þessu sinni eru það Vest-
mannaeyjar. Farið verður með
Herjólfi frá Þorlákshöfn að
kvöldi föstudags 10. júlí og kom-
ið til baka á sunnudagseftirmið-
dag 12. júlí.
kvæntist Ingibjörgu Helgadóttur,
svarfdælskættuðum Ólafsfirðingi,
árið 1954. Þau eignuðust 6 börn,
5 syni og eina dóttur yngsta.
Börnin eru þessi í aldursröð: Atli
Rúnar, Jón Baldvin, Helgi Már,
Óskar Þór, Jóhann Ólafur og
Inga Dóra. Tveir elstu synirnir
eru nú þegar landskunnir menn
fyrir störf sín hjá Ríkisútvarpinu
og bera uppeldi sínu og svarf-
dælsku menningarumhverfi gott
vitni.
Þessi orð eru rituð í þakklætis-
og virðingarskyni við merkan
sveitunga og ágætan nágranna
sem nú er fallinn frá á miðjum
aldri. Hann átti sér marga vini en
jafnframt andstæðinga, því mað-
urinn var þeirrar gerðar, hafði
bráða lund og fastar skoðanir á
mönnum og málefnum og hikaði
ckki við að láta þær í ljós. Hann
bar fyrir brjósti heill og hag stétt-
ar sinnar og byggðarlags og var
þar með allan hugann þótt hann
flyttist á brott m.a. vegna tæprar
heilsu sinnar og byggi á Akureyri
síðasta árið. Eg vil persónulega
láta í ljós þakklæti mitt og fjöl-
skyldu minnar til Halldórs og alls
Jarðbrúarfólksins fyrir ágætt nág-
renni alla tíð og votta Ingibjörgu
og fjölskyldu hennar samúð við
fráfall heimilisföðurins.
H.E.Þ.
Á laugardag og sunnudag
verða skipulagðar skoðunarferðir
um Eyjar. Gist er í skólahúsi.
Þetta verður spennandi ferð til
að skoða staði, sem sýndir eru
konungum og öðrum þjóðhöfð-
ingjum. Réttur staður fyrir Svarf-
dælinga að heimsækja.
Frá Svarfdælingum syðra
Höfum opnað nýja verslun
og honditorí
Sími (96)61432 - P.O. Box 94
V/erið velkomin
NOR jö URSLÓÐ —7;