Fréttablaðið - 16.05.2017, Side 2
Veður
Þokkalegt veður í dag. Vind lægir
og það léttir heldur til, en áfram
rignir á norðanverðum Vest-
fjörðum. sjá síðu 16
Riggað upp fyrir Rammstein
Nú styttist óðum í stórtónleika þýsku þungarokkaranna í Rammstein sem haldnir verða í Kórnum í Kópavogi þann 20. maí. Ljósmyndari Frétta-
blaðsins kom við í Kórnum í gær þar sem undirbúningur var kominn á fullt. Að mörgu þarf að huga enda þýska hljómsveitin þekkt fyrir tilkomu-
mikla tónleika. Búist er við að á annað þúsund þýskir aðdáendur Rammstein fylgi sveitinni til landsins. Fréttablaðið/andri Marinó
Mosatætarar
Vandaðir mosatætarar á hagstæðu verði
Garðsláttuvélar
sem slá á þínum gönguhraða
Gerir sláttinn auðveldari
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
stjórnsýsla Ármann Halldórsson,
eiginmaður fatlaðrar konu, er afar
ósáttur við seinagang Samgöngu-
stofu við að skrá innflutta bíla til
landsins. Hafa þau hjónin beðið
síðan í byrjun apríl eftir sérhann-
aðri bifreið til að flytja fatlaða ein-
staklinga.
Eiginkona Ármanns, Gróa Ingi-
leif Kristmannsdóttir, hefur misst
heilsuna, er í hjólastól og þarfn-
ast því sérhannaðrar bifreiðar til
að fara á milli staða. Þau ákváðu
að selja einkabílinn og bíða því
óþreyjufull eftir bifreiðinni. „Það
má segja að ég sé bara föst heima.
Nema ég ofgeri syni mínum með að
aðstoða mig inn í bíl og eyðileggi á
honum bakið,“ segir Gróa.
„Það verður bara að segjast að
þetta er algjör aumingjastofnun og
ekki talandi við nokkurn mann þar
innandyra,“ segir Ármann ómyrkur
í máli. „Það á að fá Frumherja eða
viðlíka fyrirtæki til að skrá inn bif-
reiðar til að aðstoða þessa stofnun
sem gerir sér þetta að leik til að
krefjast meiri peninga úr ríkissjóði,
þetta er til skammar.“
Fréttablaðið hefur síðustu daga
greint frá því að mikinn tíma tekur
að fá nýja bíla. Hér áður fyrr tók
það Samgöngustofu allt að tvo
virka daga að skrá nýja bifreið. Nú
hefur þessi tími lengst gríðarlega.
„Þetta er til háborinnar skamm-
ar. Og þar situr sem forstjóri Þór-
ólfur Árnason, sem hefur verið
rekinn oftar úr vinnunni en fé
rekið af fjalli,“ segir Ármann. „Við
rekum hér fjölskyldufyrirtæki og
konan mín ætlaði að hjálpa mér
við bókhaldið en hún getur það
ekki sökum þessa.“
Þessi seinagangur Samgöngu-
Kemst ekki fet vegna
teppu í Samgöngustofu
Gróa Kristmannsdóttir og Ármann Halldórsson bíða enn eftir því að fá afhentan
sérhannaðan bíl sem kom til landsins í byrjun apríl. Gróa er í hjólastól og er föst
heima. Samgöngustofu gengur illa að saxa á langa biðlista sem hafa myndast.
Gróa ingileif segir að hún hafi að mestu verið heima síðustu vikur þar sem
bíllinn er ókominn.
alþingi „Ég myndi segja að það væri
ókostur að við erum ekki með eins
mikinn strúktúr. Þær stöður sem
verða innan flokksins taka mun
meira pláss en ætlast er til af þeim
í stað þess að verið sé að dreifa
valdinu með skýrum hætti eins
og er gert í öðrum flokkum með
formennsku, varaformennsku og
þingflokksformennsku,“ segir Ásta
Guðrún Helgadóttir, fráfarandi
þingflokksformaður Pírata.
Ásta sagði af sér embætti í gær
vegna ágreinings innan þingflokks-
ins um hlutverk þingflokksfor-
manns, að sögn Ástu.
„Þetta snerist um hversu mikið
þingflokksformaður ætti að gera og
hvaða hlutverki hann gegnir innan
þingflokksins. Við höfðum mis-
munandi sýn á það. Ég vildi halda í
hefðirnar um stöðu þingflokksfor-
manns og ekki vera að finna upp
hjólið endalaust en samþingflokks-
menn mínir voru einfaldlega ósam-
mála mér varðandi það.“
Ásta segist vilja að þingflokksfor-
maður sé málsvari flokksins inn á
við og sjái um almenna yfirsýn og
rekstur frá degi til dags. Um þetta
hafi ekki verið einhugur.
Í kjölfarið var Einar Brynjólfsson
kjörinn formaður þingflokks, Birg-
itta Jónsdóttir varaformaður þing-
flokks og Smári McCarthy ritari
þingflokks. – snæ
Píratar sagðir
þurfa strúktúr
DanMÖrK Vegna þess hversu hátt
verðið er á nýjum íbúðum í borgum í
Danmörku hafa þar orðið til svoköll-
uð ríkismannagettó, að því er segir á
viðskiptavef Berlingske. Stærsti verð-
munurinn er í Óðinsvéum þar sem
fermetraverðið er næstum tvöfalt
hærra fyrir nýja íbúð en gamla.
Í Kaupmannahöfn kostar 80 fer-
metra ný íbúð að meðaltali 3,1 millj-
ón danskra króna eða rétt rúmar 47
milljónir íslenskra króna. Jafn stór
eldri íbúð kostar um 2,8 milljónir
danskra króna eða um 42,5 milljónir
íslenskra króna. – ibs
Gettó ríkra
vegna hás
íbúðaverðs
Gamalt húsnæði í danmörku er mun
ódýrara en nýtt. Fréttablaðið/PJEtUr
Ástga Guðrún Helgadóttir sagði af
sér embætti vegna ágreinings.
stofu kostar atvinnulífið einnig
mikið fé. Rútufyrirtæki hafa sent
bílstjóra út til að fylgja rútum til
landsins og fá þannig flýtimeð-
ferð. Þórólfur Árnason sagði við
Fréttablaðið í gær að vinnunni yrði
flýtt eins mikið og þeir gætu næstu
daga. Nýtt skráningarkerfi hefði átt
að vera löngu komið og þar liggi
vandinn að hluta.
sveinn@frettabladid.is
Það má segja að ég
sé bara föst heima.
Nema ég ofgeri syni mínum
með að aðstoða mig inn í bíl
og eyðileggi á honum bakið.
Gróa Kristmannsdóttir
1 6 . M a í 2 0 1 7 þ r i ð j u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:3
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
C
-8
7
A
C
1
C
D
C
-8
6
7
0
1
C
D
C
-8
5
3
4
1
C
D
C
-8
3
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K