Fréttablaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 11
Nýlega festi erlendur auð-maður kaup á einni land-mestu jörð á Íslandi, Gríms- stöðum á Fjöllum, mestöllum hluta jarðarinnar í einkaeign. Sami aðili fer nú eins og ryksuga um Norð-Austur- land, kaupandi hverja jörðina á fætur annarri, að eigin sögn til að verja og vernda jarðirnar fyrir ágangi. Í Kastljósi Sjónvarpsins fyrir nokkru vildi hann ekki upplýsa hvað yrði um jarðirnar eftir sinn dag en af óljósu svari hans mátti ráða að hann teldi að þá væru þær orðnar sjálfbærar sem atvinnurekstur fyrir laxveiðar. Með öðrum orðum, varla byrði á eigendum, þvert á móti arð- vænleg eign. Auðmenn fjarlægja okkur landinu Þetta er vissulega þróun sem ekki er ný af nálinni en alltaf færumst við fjær því að „hinn almenni maður“ geti komist í laxveiðar á Íslandi. Eftirspurn auðmanna með fulla vasa fjár eftir því að renna fyrir lax á „ósnortnu“ Íslandi hefur séð fyrir því. Ekki færir það almenning nær landi sínu þegar eignarhaldið er komið út fyrir landsteinana. Og stöðugt berast fréttir af landakaupum erlendra auð- manna víðar á landinu og er fylgi- fiskurinn iðulega sá að þeir reyni að loka að sér. Vildu selja ríkinu en fengu aldrei svar Fram hefur komið að Grímsstaða- menn vildu helst selja ríkinu og á annað hundrað einstaklingar úr öllum stjórnmálaflokkum, öllum aldurshópum, frá öllum landshlut- um, úr nánast öllum starfsstéttum, höfðu óskað eftir því að svo yrði gert. Þeir sem skrifuðu undir áskorun í þessa veru, voru hins vegar aldrei virtir svars og þegar Grímsstaða- mönnum barst kauptilboð frá breska auðkýfingnum Radcliffe, sem endan- lega keypti, var ríkisstjórnin enn á ný spurð hvort ríkið vildi kaupa. Ekkert svar! Þetta er ekki bara dónaskapur heldu líka dapurlegur vesaldómur. Einhliða umfjöllun í Kastljósi Í umræddum Kastljósþætti var aðdragandi málsins rakinn. Hvergi var minnst á áskorun til ríkisstjórn- arinnar eða þingmál sem flutt höfðu verið í þá veru að sporna gegn upp- kaupum auðmanna á landi! Lítillega var sagt frá því að sett hefði verið reglugerð á sínum tíma sem torveldað hefði þessi kaup en sú reglugerð hafi verið afnumin því hún hafi ekki þótt standast lög. Þetta er mikil einföldun! Vel ígrundaður málatilbúnaður Í upphafi árs 2013 þegar ég var innanríkisráðherra kynnti ég laga- frumvarp svo og reglugerð með það í huga að sporna gegn landakaupum erlendra auðmanna á Íslandi. Ég gerði mér fulla grein fyrir því að málið kynni að verða umdeilt, bæði hér innanlands og erlendis. Enda fór svo að eftirlitsstofnun ESA ósk- aði eftir greinargerð. Leitaði ég þess vegna til færustu sérfræðinga sem völ var á að vera til ráðgjafar um útfærslu á þeim ásetningi mínum að setja landakaupum skorður. Í frétt á vef innanríkisráðuneytis- ins 25. janúar 2013, þar sem kynnt var frumvarp að lagabreytingu sem tæki til landakaupa útlendinga utan sem innan EES annars vegar og hins vegar reglugerðarbreyting gagnvart EES borgurum, segir: „Í tengslum við þessar athuganir hefur innan- ríkisráðuneytið aflað tveggja álits- gerða, annars vegar frá Eyvindi G. Gunnarssyni, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, og Valgerði Sólnes lögfræðingi. Hins vegar frá Jens Har- tig Danielsen, prófessor við lagadeild Háskólans í Árósum, og Stefáni Má Stefánssyni, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, en þar er fjallað sér- staklega um reglur EES-samningsins um frjálsa fjármagnsflutninga og fjárfestingu í fasteignum.“ Ítarleg kynning Frumvarpið lagði ég síðan fram til kynningar á Alþingi – en reglugerð- ina undirritaði ég 17. apríl þegar hún hafði staðið til kynningar í nær þrjá mánuði. Ég taldi það vera lykilatriði að greinar gerðir fræðimannanna kæmu fram við kynninguna svo hugsanlegum andmælendum gæfist kostur að taka upp málefnalega umræðu um hana. Eftirmaður minn í embætti, Hanna Birna Kristjánsdóttir, lét það verða eitt fyrsta verk sitt að afnema þessa reglugerð og hafði um hana þau orð að hún væri á gráu svæði. Það var allan tímann vitað sem áður segir, en engu að síður meiri líkur en minni að hún stæðist fullkom- lega stranga lagaskoðun enda vel ígrunduð og að henni staðið á fag- legan, opinn og lýðræðislegan hátt. Öðru máli gegndi þegar hún var afnumin án kynningar eða umræðu. Danir og Norðmenn vilja skorður við landakaupum Ýmsar þjóðir innan EES hafa viljað leita leiða til að sporna gegn upp- kaupum auðmanna á jörðum, bæði innlendra og erlendra. Nefni ég þar Dani og Norðmenn sérstaklega. Sjálfur deili ég þessum sjónarmiðum og hef margoft fært opinberlega rök fyrir þeim. Ég gerði mér grein fyrir því að taka þyrfti á málinu á marg- þættan hátt en aðeins að hluta til heyrði það undir það ráðuneyti sem ég fór fyrir, innanríkisráðuneytið, og sneri þá einkum að kaupum útlend- inga á landi. Sitja og góna á framvinduna Auk fyrrnefnds frumvarps og reglu- gerðar flutti ég því þingmál um ítar- lega athugun á þessum málum og lagði til að reynt yrði að sporna gegn því að auðmenn gleyptu landið eins og nú er að gerast með ríkisstjórn og Alþingi á áhorfendapöllunum. Dapurlegur vesaldómur ríkisstjórnarinnar Ögmundur Jónasson fv. innanríkis­ ráðherra Ýmsar þjóðir innan EES hafa viljað leita leiða til að sporna gegn uppkaupum auðmanna á jörðum, bæði innlendra og erlendra. Nefni ég þar Dani og Norðmenn sérstak- lega. Sjálfur deili ég þessum sjónarmiðum og hef margoft fært opinberlega rök fyrir þeim. Aukin þægindi allan daginn Veitir stuðning og minnkar álag á fæturna S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 1 6 . m A í 2 0 1 7 1 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :3 9 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C D C -A 0 5 C 1 C D C -9 F 2 0 1 C D C -9 D E 4 1 C D C -9 C A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.